Fréttablaðið - 14.12.2003, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Naut með
marga veikleika
Bakhliðin
Á VALTÝ BIRNI VALTÝSSYNI
Hvernig ertu núna? Mér líður alveg
ágætlega, takk fyrir.
Hæð: 1,69 m.
Augnlitur: Gráblár.
Starf: Íþróttafréttamaður.
Stjörnumerki: Naut.
Hjúskaparstaða: Einhleypur.
Hvaðan ertu? Frá Eskifirði í móðurætt
og Grýtubakkahreppi í föðurætt.
Helsta afrek: Dætur mínar, Birna Ósk
og Svanhvít.
Helstu veikleikar: Of margir til að
telja upp hér.
Ertu í bókinni Íslenskir samtímamenn?
Hef ekki hugmynd.
Helstu kostir: Læt aðra um að dæma
um það.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: ÍÞRÓTTIR
Á SÝN.
Uppáhaldsútvarpsþátturinn: Mín skoð-
un á Skonrokki klukkan 12.20-14.00.
Uppáhaldsmatur: Rjúpur og heyrðu
það Siv!
Mestu vonbrigði lífsins: Ég held ég
haldi því fyrir mig.
Hobbý: Matreiðsla, golf og margt
fleira.
Jeppi eða sportbíll: Benz 320 EP.
Handbolti eða fótbolti: Bæði + karfa,
golf og fleira.
Bingó eða gömlu dansana: Tónleika
með U2.
David Beckham eða Eric Cantona? Að
sjálfsögðu Beckham. Við eigum nú
einu sinni sama afmælisdag.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór? Flugmaður.
Skelfilegasta lífsreynslan: Föðurmissir
17 ára gamall.
Hver er fyndnastur? Norðurljósa-
uppistandsgengið.
Hver er kynþokkafyllst? Mjög margar
íslenskar konur.
Hvað kemur þér í jólaskap? Að höggva
jólatré með stórfjölskyldunni.
Trúir þú á drauga? Erfið spurning
þetta.
Hvaða dýr vildirðu helst vera: Tígris-
dýr.
Áttu gæludýr? Nei, ekki eins og er.
Hvar líður þér best? Með góðum vin-
um, heima og í vinnunni.
RÚV ákveður að endurvekja Lög unga
fólksins með því skilyrði að þú takir að
þér umsjón þáttarins. Hverju svarar
þú? Því miður, ég er í vinnu hjá Norð-
urljósum og mér var einu sinni sagt að
tónlistarsmekkur minn væri ekki góð-
ur. En er ég ekki orðinn of gamall?
Hvað með lög miðaldra fólksins?
Besta bók í heimi: Laxness eins og
hann leggur sig.
Næst á dagskrá: Jólin handan við horn-
ið.
H Ú S G A G N A H Ö L L I N • S K E I F A N • H R I N G B R A U T V I ‹ J L • M O S F E L L S B Æ R • D A L S H R A U N H F J • H V A L E Y R A R B R A U T H F J • S E L F O S S • V E S T M A N N A E Y J A R • H Ö F N
OPI‹ Í DAG