Fréttablaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 32
Sjónvarp 36
LAUGARDAGUR
TOPPLIÐIÐ MÆTIR KR Þrír leikir
fara fram í 1. deild kvenna í körfubolta.
Njarðvík tekur á móti ÍS klukkan 14 og á
sama tíma leikur topplið ÍR gegn KR í
Seljaskóla. Klukkan 17.15 mætir Keflavík
liðið Grindavíkur á heimavelli.
DAGURINN Í DAG
AÐGERÐALÍTIÐ VEÐUR Það bætir
þó heldur í vind vestanlands þegar á
daginn líður. Hlýtt í dag og á morgun svo
kann að kólna lítið eitt. Sjá síðu 6.
3. janúar 2004 – 2. tölublað – 4. árgangur
EFASEMDIR VEGNA UMMÆLA
Lögmaður Jóns Ólafssonar efast um að
lögregla geti rannsakað skattamál Jóns
vandræðalaust vegna orða forsætisráð-
herra. Lögregla segir málið það stærsta
sinnar tegundar. Sjá síðu 2
ÓSÁTT VIÐ BREYTINGAR Jóhanna
Sigurðardóttir segir hugmyndir um breyt-
ingar á húsnæðislánakerfinu vera lið í að
færa kerfið úr höndum ríkis til einkaaðila.
Bankarnir muni mala gull og kjör til
almennings ekki batna. Sjá síðu 4
AFLÝSA FLUGI Flugfélagið British
Airways aflýsti flugi frá Lundúnum til Was-
hington í Bandaríkjunum í gær, annan dag-
inn í röð. Fluginu var aflýst af öryggis-
ástæðum. Sjá síðu 2
ÓTTAST UM ÍSLENSKA SJÓMENN
Ekkert flutningaskip siglir undir íslenskum
fána lengur. Stjórnarmaður í Sjómannafélagi
Reykjavíkur óttast að Eimskip og Samskip
hendi íslenskum sjómönnum fljótlega í land
og ráði erlenda í þeirra stað. Sjá síðu 8
Simmi og Jói:
Barnabókahöfundurinn Philip
Pullman nýtur mikilla vinsælda hjá
öllum nema strangtrúuðum
kirkjunnar mönnum. SÍÐA 24
▲
Bækur:
Allir vilja vera frægir
MÓTMÆLI Tvítug íslensk kona, Saga
Ásgeirsdóttir, fékk gúmmíkúlu í fót-
inn þegar hún var að mótmæla
byggingu ísraelsks varnarmúrs í
þorpinu Búdrus á Vesturbakkanum
á nýársdag. Að sögn friðarsamtak-
anna ISM notaði ísraelski herinn
táragas og gúmmíkúlur til að brjóta
á bak aftur friðsamleg mótmæli
þorpsbúa og erlendra sjálfboðaliða.
„Ég var skotin af tíu til fimmtán
metra færi,“ segir Saga. „Ég er
bólgin á löppinni og finn mikið til en
ég get gengið.“ Saga segist ekki
hafa leitað sér læknishjálpar enda
sé það nánast ógerlegt á þessu
svæði. Hún ítrekar að gúmmíkúlur
Ísraelsmanna geti verið mjög
hættulegar, þetta séu stálkúlur með
plasthúð og þær geti jafnvel valdið
dauða ef skotið er af stuttu færi.
Saga viðurkennir að henni hafi
verið töluvert brugðið. „Maður er
undir miklu álagi hérna og það er
erfitt að átta sig á þessu. En það er
langt frá því að ég sjái eftir að hafa
komið,“ segir hún.
Til harðra átaka kom milli hers
og heimamanna í Búdrus á gamlárs-
dag. Þá var fjöldi mótmælenda
handtekinn og voru þeir að eigin
sögn beittir miklu harðræði af ísra-
elskum yfirvöldum. „Þetta var
svakalegt á gamlársdag og ég var
orðin raunverulega hrædd um að ég
myndi hugsanlega deyja,“ segir
Saga sem kom ekki til Búdrus fyrr
en á nýársdag. „Þegar við komum í
þorpið var mikið af fjölmiðlafólki á
svæðinu vegna atburðanna á
gamlársdag. Ég held að ísraelsku
hermennirnir hafi að vissu leyti
verið hræddir við fjölmiðlana“.
Að sögn Sögu gekk allt vel til að
byrja með en svo fór hermönnunum
að fjölga og landamæralögreglan
mætti á svæðið. Mótmælendurnir
urðu órólegir og óttuðust að verða
króaðir inni. Þegar herinn tók að
skjóta gúmmíkúlum og táragasi að
fólkinu lagði það á flótta. Fimmtán
Palestínumenn særðust auk tveggja
erlendra sjálfboðaliða. Saga, sem
stóð á milli heimamanna og hersins,
fékk gúmmíkúlu í fótinn og ungur
Svíi varð einnig fyrir skoti.
Þrátt fyrir allt lætur Saga vel af
dvölinni í Búdrus. „Það var ótrúlega
gott að koma hingað því þetta er
fyrsta þorpið sem við komum í þar
sem er virkilegur baráttuandi í
heimamönnum.“ Saga er nú í bæn-
um Deir Dallout en ætlar aftur til
Búdrus á morgun til að taka þátt í
frekari mótmælaaðgerðum.
Tveir ungir Íslendingar eru nú á
hernumdu svæðum Palestínu við
sjálfboðaliðastörf ásamt Sögu, þau
Finnbogi Vikar Guðmundsson og
Steinunn Gunnlaugsdóttir. ■
komu óvænt í heimsókn
Forsetahjónin:
▲
SÍÐA 38
Snæddu á
Hjálpræðishernum
er 29 ára
Sölvi Blöndal:
▲
SÍÐA 16
Vöru-
talningarbarn
chelsea leikur gegn watford
Íslendingaslagur:
▲
SÍÐA 32
Eiður og
Heiðar mætast
kvikmyndauppgjör ársins
Kvikmyndir:
▲
SÍÐA 18
Blóðugt ár
framhaldsmynda
Þótt enn eigi eftir að velja Idol-popp-
stjörnuna er ljóst að umsjónarmennirnir
Simmi og Jói eru þegar orðnir stórstjörnur.
▲
SÍÐA 22
Óttaðist um lífið
Íslenskur sjálfboðaliði á hernumdum svæðum Palestínu, Saga Ásgeirsdóttir, særðist í mót-
mælaaðgerðum í þorpinu Búdrus á Vesturbakkanum. Friðsamlegar mótmælaaðgerðir heima-
manna og erlendra sjálfboðaliða voru brotnar á bak aftur með hörku.
Meðallestur 25-49
Höfuðborgarsvæðið
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
75%
56%
Höfundurinn sem ögrar kirkjunni
Bandarískar borgir:
Flest morð í
Chicago
CHICAGO, AP Chicago nýtur þess
vafasama heiðurs að vera sú borg í
Bandaríkjunum þar sem flest morð
voru framin á síðasta ári. Engu að
síður fækkaði morðum í borginni úr
648 árið 2002 niður í 599 árið 2003.
Chicago, sem er þriðja stærsta
borg Bandaríkjanna, var einnig í
efsta sæti þessa alræmda lista 2001.
Í fyrra var það aftur á móti Los
Angeles sem átti vinninginn með
658 morð. Í New York, sem er næst-
um því þrisvar sinnum fjölmennari
en Chicago, voru framin 596 morð á
síðasta ári Þess má geta að árið 1990
voru framin 2.245 morð í New York.
Lögregluyfirvöld í Chicago
kenna glæpagengjum, mikilli
byssueign og eiturlyfjum um háa
tíðni morða. ■
Deila sérfræðilækna og Tryggingastofnunar ríkisins:
Engir fundir og deilan í hnút
SÉRFRÆÐILÆKNAR „Við buðum samn-
inganefnd heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytisins í byrjun desember að
framlengja þágildandi samning
óbreyttan, út þetta ár. Nefndin vildi
hins vegar að við gæfum eftir rétt-
indi sem áréttuð voru í dómi Hæsta-
réttar frá 11. desember 2003. Í
dómnum felst viðurkenning á rétti
lækna til að taka sjúklinga til með-
ferðar án greiðsluþátttöku Trygg-
ingastofnunar ríkisins, ef sjúkling-
ur óskar þess, en einnig í raun við-
urkenning á rétti sjúklinga til að
kaupa sér læknisþjónustu án
afskipta hins opinbera. Á þetta gát-
um við ekki fallist,“ sagði Óskar
Einarsson, formaður samninga-
nefndar sérfræðilækna.
Enginn samningur er nú í gildi
milli sérfræðilækna og stofnunar-
innar eftir að slitnaði upp úr við-
ræðum um nýjan samning um
greiðsluþátttöku Tryggingastofnun-
ar í sérfræðilæknishjálp.
Sjúklingar verða því að bera all-
an kostnað sjálfir, leiti þeir til sér-
fræðinga. Dæmi eru um að kostnað-
ur af heimsókn til sérfræðings hafi
margfaldast. Til dæmis kostar við-
tal hjá barnalækni nú 4000 krónur
en kostaði 1000 krónur fyrir áramót.
Þá eru einhver dæmi um að sjúk-
lingar hafi frestað heimsóknum til
sérfræðinga.
„Sérfræðilæknarnir eiga næsta
leik, þeir ætla að ræða málin hjá sér
og við bíðum viðbragða frá þeim,“
sagði Garðar Garðarsson, formaður
samninganefndar heilbrigðisráðu-
neytisins. Sérfræðilæknar fara yfir
stöðu málsins á félagsfundi í dag. ■
ÚTSÖLUR Margar verslanir hófu útsölur í gær. Ekki voru allar verslanir komnar á fullt skrið enda vörutalningar í mörgum þeirra. Búast
má við að enn fleiri verslanir bætist í hópinn í dag. Sjá nánar á bls. 6.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SAGA OG STEINUNN
Saga Ásgeirsdóttir og Steinunn Gunnlaugs-
dóttir hafa sinnt sjálfboðastörfum á her-
numdum svæðum Palestínu síðan fyrir jól.
VEÐRIÐ Í DAG