Fréttablaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 03.01.2004, Blaðsíða 8
8 3. janúar 2004 LAUGARDAGUR Mismunar SPRON? „Mér var ekki boðið að verða stofnfjáreigandi.“ Egill Skúli Ingibergsson, borgarstjóri 1978–1982, í DV 2. janúar. Þjóðlegri afstöðu sturtað niður „Þjóðleg afstaða virðist ekki lengur til. Henni hefur trúlega verið sturtað niður í ræsið með tilkomu frjálshyggjunnar og yfirgengilegrar græðgi sér- hagsmunaaflanna - á kostnað alþjóðar! Og nú flýtur allt fyrir blindum augum að þjóðlegum feigðarósi, meðan auðmennirn- ir hamast við að flytja illa fengið fé úr landi í fjárfesting- ar erlendis.“ Rúnar Kristjánsson í bréfi til Morgunblaðsins 2. janúar. Orðrétt Aflýstu flugi sex véla til LA: Um misskilning að ræða FRAKKLAND Franskir embættismenn segja það ekki rétt að rangar upp- lýsingar frá bandarísku alríkislög- reglunni, FBI, hafi orðið til þess að flugi þriggja farþegaflugvéla fran- ska flugfélagsins Air France til Bandaríkjanna, hafi verið aflýst um jólin eins og fram kom í frétt á vefsíðu Evrópuútgáfu bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal í gær. Í fréttinni segir að FBI hafi gef- ið frönsku lögreglunni upp nöfn sex grunaðra liðsmanna al-Kaída-sam- takanna sem hyggðust ræna franskri farþegaflugvél. Í fyrsta tilfellinu hefði flugi verið frestað frá París til Los Ang- eles vegna þess að nafni barns af farþegalista hefði verið ruglað saman við nafn þekkts hryðju- verkaforingja frá Túnis, í öðru til- felli hefði verið um að ræða trygg- ingasölumann frá Wales og í því þriðja kínverska konu, sem einu sinni rak veitingastað í París, en í öllum tilfellum hefði verið um mis- skilning að ræða. Franskir embættismenn segja FBI ekki hafa gefið upp nöfn aðeins tiltekin flug en viðurkenna að flugi sex véla til Los Angeles hefði verið aflýst um jólin að skipan franskra stjórnvalda. ■ Síðasta íslenska flutninga- skipinu flaggað út Olíudreifing skráði um áramótin flutningaskipið Keili undir færeyskum fána. Þá var helmingi 11 manna áhafnar Keilis sagt upp og verða erlendir sjómenn ráðnir. Stjórnarmaður í Sjómannafélagi Reykjavíkur óttast að Eimskip og Samskip hendi íslenskum sjómönnum í land og ráði erlenda. KAUPSKIPAFLOTINN „Það siglir ekkert kaupskip lengur undir íslenskum fána, Keilir var það síðasta,“ sagði Birgir Björgvinsson, gjaldkeri Sjó- mannafélags Reykjavíkur. Keili, flutningaskipi Olíudreif- ingar, var flaggað út um áramót og siglir skipið eftir- leiðis undir fær- eyskum fána. Jafnframt var helmingi 11 manna áhafnar Keilis sagt upp en ætlunin er að ráða erlenda sjó- menn um borð. „Færeyingar eru komnir með þennan þæginda- fána, eins og það er kallað eða sjó- ræningjaflagg. Nú getur útgerðin ráðið erlenda sjómenn um borð, á lægri launum og algjörlega rétt- indalausa þegar kemur að veikinda- rétti og öðru slíku. En við munum bregðast við og fylgja því fast eftir að íslenskir kjarasamningar gildi um borð. Það verður ekki slegið af. Við ætlum að safna liði og mæta á bryggjuna þegar Keilir fer að sigla með erlenda sjómenn,“ sagði Birgir Björgvinsson. Hann segir þessa þróun hafa verið mörg undangengin ár og leyn- ir ekki gremju sinni með aðgerða- leysi félaga sinna í öðrum stéttar- félögum sjómanna. Sjómannafélag Reykjavíkur standi oftar en ekki eitt í baráttunni fyrir því að verja störf farmanna. „Þetta væri auðvitað löngu farið ef við hefðum ekki barist gegn þess- ari þróun. En bardaginn mun halda áfram, það er ekki spurning að stóru félögin, Eimskip og Samskip, munu innan fárra ára fara sömu leið. Þau eru búin að flagga sínum skipum út og hafa án efa hugleitt þann sparnað sem ná mætti fram með því að skipta íslenskum sjó- mönnum út fyrir erlenda,“ sagði Birgir. Birgir segir að fleiri hundruð störf farmanna hafa tapast á síð- ustu árum vegna þessarar þróunar og nú verði stjórnvöld að bregðast við og skapa sömu skilyrði hér og í nágrannalöndunum. „Þótt ýmislegt hafi verið gert þá er enn munur á aðstöðu. Erlendis eru skattalegar ívilnanir sem við vildum líka sjá hér. Þá yrði ávinn- ingurinn af útflöggun minni en ella,“ sagði Birgir Björgvinsson. the@frettabladid.is Innbrot að Kárahnjúkum: Vita ekkert um þjófinn LÖGREGLUMÁL Enginn hefur verið yfirheyrður vegna innbrots sem framið var í söluturni á virkjunar- svæðinu við Fremri Kárahnjúk á nýársnótt. Peningum og vörum, sam- tals að andvirði um einnar og hálfrar milljónar króna, var stolið. Lögregl- an á Egilsstöðum rannsakar nú mál- ið og leitar eftir upplýsingum. Þar sem vegir að virkjunar- svæðinu voru ófærir um það leyti sem innbrotið var framið telur lög- reglan á Egilsstöðum, sem rannsak- ar málið, ólíklegt að utanaðkomandi aðilar séu sekir um ránið. Rannsókn- in beinist því fyrst og fremst að starfsmönnum við Kárahnjúka. ■ VILJA RÝMRI LÍFEYRISRÉTT Siglfirskir sjómenn skora á ríkisstjórnina að rýmka lífeyrisréttindi sjómanna og gera þeim kleift að hætta störfum við 55 ára aldur, hafi þeir verið til sjós í 25–30 ár. Siglfirskir sjómenn álykta: Krefjast viðunandi starfsloka KJARAMÁL Aðalfundur sjómanna- deildar verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, beinir því til ríkisstjórn- arinnar og þá sérstaklega til forsæt- isráðherra að hann beiti sér fyrir því að íslenskir sjómenn geti hætt störfum með viðunandi hætti þegar aldurinn færist yfir þá. Í ályktun sjómanna segir að störf þeirra séu, ekki síður en störf stjórnmálamanna, mjög sérhæfð og krefjandi. Því sé full ástæða til að sérstakt tillit sé tekið til þeirra við starfslok og þeim gert kleift að hætta störfum fyrr en við 67 ára aldur. Þar með yrði jafnframt tryggð eðlileg endurnýjun í stétt- inni. Í ályktun sjómannanna segir að sanngjarnt sé að þeir geti hætt störfum, hafi þeir náð 55 ára aldri og hafi verið til sjós í 25–30 ár. ■ Sendinefnd til Norður Kóreu: Skoða líklega Yongbyon NORÐUR-KÓREA Stjórnvöld í Norður- Kóreu eru sögð hafa samþykkt að taka á móti bandarískri sendi- nefnd í næstu viku og er talið lík- legt að nefndinni verði leyft að heimsækja kjarnorkuverið um- deilda í Yongbyon. Samkvæmt fréttum banda- rískra fjölmiðla verður sendi- nefndin meðal annars skipuð virt- um kjarnorkuvísindamönnum og nokkrum sérfræðingum á sviði utanríkismála, en þó ekki á vegum stjórnvalda. Verði þeim leyft að heimsækja Yongbyon verður það í fyrsta skipti sem erlendum aðilum er leyft að skoða kjarnorkuverið síð- an kjarnorkueftirlitsmönnum SÞ var vísað úr landi fyrir ári. ■ FLUGVÉL AIR FRANCE Franskir embættismenn segja að flugi sex véla hafi verið aflýst um jólin að skipan franskra stjórnvalda. LANDAMÆRAVARSLA Norður-Kóreumenn hafa samþykkt að taka á móti bandarískri sendinefnd. SÍÐASTA KAUPSKIPINU FLAGGAÐ ÚT Olíudreifing flaggaði olíuskipinu Keili út og siglir það nú undir fær- eyskum fána. Þar með siglir ekkert flutnignaskip undir íslenskum fána lengur. ÍSLENSKIR FARMENN DEYJANDI STÉTT Birgir Björgvinsson, gjaldkeri Sjómannafélags Reykjavíkur segist óttast að stóru skipafélögin, Eimskip og Samskip, segi upp íslenskum sjómönnum á kaupskipum sínum og ráði erlenda sjómenn í þeirra stað. „Við mun- um bregðast við og fylgja því fast eftir að íslenskir kjarasamn- ingar gildi um borð.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S M E FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.