Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2004, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 03.01.2004, Qupperneq 15
■ Af Netinu 15LAUGARDAGUR 3. janúar 2004 A . J ac ob se ns B ok tr . A S, 3 95 0 B re vi k. Útsala 30%-50% TIMBERLAND SHOP Kringlunni – Sı́mi: 53 32 290 Grein um ástand mála í Dala-byggð eftir Þrúði Kristjáns- dóttur birtist í Fréttablaðinu 16. desember síðastliðinn. Sú sem þar skrifar talar fyrir almenna borg- ara í Dalabyggð og mun það rétt vera að öllum þykir nóg um hvernig komið er. Ég og margir aðrir höfum meiri áhyggjur af hvað sé að gerast hér við okkar bæjardyr heldur en að það skuli komast í fjölmiðlana. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að við séum í fréttunum. Það væri ekki mikill fréttamaður sem ekki rynni á lyktina. Einhver myndi segja að ég væri ekki hlutlaus þar sem ég slysaðist inn í sveitar- stjórnina fyrir hálfu ári eða svo. En hvaða Dalamaður er hlutlaus í þessu máli? Aðkast og einelti Guðrún J. Gunnarsdóttir hefur orðið fyrir þvílíku aðkasti og ein- elti að ekki er hægt að sitja hjá og þegja. Flestir aðrir hefðu gefist upp og þegið góð boð annars staðar frá. Sú ákvörðun hefði valdið mörgum kjósendum L-list- ans vonbrigðum. Af því kaus hún að vera um kyrrt og hún treystir á að réttlætið nái fram að ganga. Mér hefur fundist Guðrún standa sig mjög vel. Hún kemur alltaf vel undirbúin á fundi, kynnir sér mál- in ítarlega, vill fara nákvæmlega ofan í þau og hafa allt á hreinu. Sumum virðist reyndar finnast það óþarfa tímaeyðsla. Aldrei hef ég heyrt annað en að Guðrún beri hag sveitarfélagsins og íbúa þess fyrir brjósti. Ég trúi ekki að þeir sem hafa setið á fundum sveitar- stjórnar geti með góðri samvizku neitað því. En hvað er þá að? Þessi sorgarsaga byrjaði með úrslitum síðustu sveitarstjórnar- kosninga. Hér í sveit vita allir um hin hörðu viðbrögð fráfarandi meirihluta við ósigrinum. Mjög óviðurkvæmileg orð þeirra fengu vængi og flugu alla leið til Reykjavíkur og til baka aftur. Fráfarandi meirihluti lá heldur ekki á þeirri skoðun sinni að þessi úrslit yrðu ekki umborin. Koma þyrfti Guðrúnu Jónu út með ein- um eða öðrum hætti. Þessi yfir- lýsing var sett fram meðan hún var enn óskrifað blað sem sveitar- stjórnarmaður. Spurningin er því hvaða hvatir lágu þarna að baki? Andstæðingar hennar hafa unnið að því markmiði sleitulaust síðan og hefur Gróa á Leiti blandað sér svikalaust í slaginn. Greinarhöfundur vill ekki við- urkenna að við tökum illa á móti fólki. Það er heldur ekki gott af- spurnar ef svo er. Nei, það er sam- kvæmt grein Þrúðar Kristjáns- dóttur viðkomandi sjálfum að kenna af því hann er svona eða hinsegin. Hver er það sem ákveð- ur hverjir hljóta viðurkenningu? Þar kemur að mjög veigamiklu atriði. Það er eineltið. Einelti er mikið böl og hefur lagt margra líf í rúst. Þrúður talar um þetta fólk sem „persónur sem séu í raun brjóstumkennanlegar“. Guðrún Jóna fellur ekki í þann hóp og ekki hefur farið mikið fyrir samúðinni í hennar garð frá andstæðingum hennar. Einskis hefur verið svifist í hennar tilfelli. Ímynd Dalanna sködduð Auðvitað er það aðalatriði að í sveitarstjórn sé gott fólk, sem beri hag sveitarfélagsins fyrir brjósti. En þeir sem hafa lengi haft völdin, mega heldur ekki vera svo heima- ríkir, að þeir eyði kröftum sínumí það að berjast á móti nýju fólki sem vill líka láta að sér kveða. Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra eins og dæmin sanna. Aðförin sem gerð hefur verið að Guðrúnu Jónu er komin langt út fyrir allt velsæmi og hefur skaðað ímynd Dalanna. Illt er til þess að hugsa því hér býr gott fólk. Ég skora á okkur öll, Dalamenn sem aðra Íslendinga að hafa að leiðar- ljósi: „Það, sem þér viljið að aðrir gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra“. ■ Hertu upp hugann Hannes! „Einhverjir hefðu kannski haldið að það myndi hlakka í mér yfir þeim vandræðum sem Hannes virðist kominn í vegna bókar- skrifa sinna um Halldór Laxness. Það er langt í frá. Ég vildi óska að menn gengju ekki svona hart fram gagnvart Hannesi í þessu máli. Enginn er annars bróðir í leik og þótt ég myndi gjarnan vilja skriðtækla Hannes inn á stjórnmálavellinum þá finn ég til óvæntrar hlýju til hans nú þegar kaldir vindar blása um hann per- sónulega. Ég vil gjarnan gera eitt- hvað til að styðja hann. Er hálf- partinn að vona ég geti með ritun þessarar greinar borið blak af honum í þessum ójafna slag við flestalla fræðimenn þjóðarinnar.“ ANDRÉS JÓNSSON Á WWW.POLITIK.IS Lofsvert framtak „Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með Ungum jafnaðar- mönnum síðustu daga. Það er ekkert jólafrí á þeim bæ! Frum- kvæði þeirra í að kalla eftir upp- lýsingum um stofnfjáraðild stjórnmálamanna og embættis- manna að Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis er lofsvert. Aðild þessi hefur mönnum hlotnast vegna stöðu sinnar og eðlilegt að menn upplýsi um það og hvernig þeir hyggist ráðstafa hagnaði sín- um. Það er auðvitað óskandi að sem flestir sjái ástæðu til að verja honum eins og til var stofnað, í almannaþágu, til líknar- og menningarmála.“ HELGI HJÖRVAR Á WWW.HELGI.IS Stefnulaus fylking „Samfylkingin er flokkurinn sem tekst ekki að búa til stefnu. Þetta er gengið svo langt að nú á að senda varaformanninn í nám í pólitík á Bretlandi. Hún þvælist þá kannski ekki fyrir formannin- um á meðan. Samfylkingin er búin að koksa á því að vera Evrópuflokkur; segir að það mál sé of flókið fyrir kjósendur. Útspil um einkarekstur í heilbrigðiskerfi reyndist ekki byggja á neinni hugsun; það vantaði bara smá fútt í ræðu hjá formanninum. Af- staða flokksins til auðmagnsins er dæmigerð - jú, kannski heyrist gagnrýni hjá einstaka flokks- mönnum um að stórkapítalistar séu að gleypa allt, en í raun er eins og flokkurinn þrái mest að að ljómi peninganna skíni aðeins á hann, að Baugur láti svo lítið að klappa honum aðeins.“ EGILL HELGASON Á VEF SÍNUM Á WWW.STRIK.IS Samningur við hestaheilsu „Evrópusinnar vilja stundum ganga í Evrópusambandið til þess að afnema einhverja til- tekna tolla og það eins þó að Ís- lendingum sé fyllilega heimilt að afnema þá þegar í stað án þess að ganga í Evrópusambandið og þá gangast undir ákvarðanir þess. Og stundum segja Evrópu- sinnar að nú sé EES-samningur- inn orðinn svo veikur að því mið- ur verði að semja um nýrri og nánari tengsl við Brussel- stjórnina, og það eins þó þeim takist ekki að benda á nein alvarleg sjúkdómseinkenni.“ VEFÞJÓÐVILJINN Á WWW.ANDRIKI.IS Pistill úr Dalabyggð Andsvar SNÆBJÖRG BJARTMARSDÓTTIR ■ skrifar um bæjarmál í Dalabyggð.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.