Fréttablaðið - 03.01.2004, Side 28
28 3. janúar 2004 LAUGARDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
Fréttiraf fólki
Eins og venjulega byrjarkvikmyndaárið á syrpu
dramatískra mynda sem gefnar
eru út um þetta leyti í von um að
þær komist í Óskarsverðlauna-
slaginn. Á næstu þremur mán-
uðum eigum við von á nokkrum
myndum sem þegar er byrjað að
spá tilnefningu. Mona Lisa
Smile (9. janúar) er kennara-
drama sem skartar Juliu Ro-
berts í aðalhlutverki. The Last
Samurai (16. janúar) er nýjasta
stórmynd Tom Cruise og hefur
fengið prýðisdóma erlendis.
Cold Mountain (um miðjan
febrúar), skartar einum föngu-
legasta leikarahóp í manna
minnum og verður án efa í
slagnum miðað við viðbrögð
gagnrýnenda.
Einhverjir spá því að leik-
stjórinn Tim Burton verði með í
Óskarsverðlaunaslagnum í ár
með nýja mynd sína Big Fish
(30. janúar). Myndin skartar
Ewan McGregor í aðalhlutverki
og hefur verið lýst sem „Forrest
Gump á sveppum“.
Sama dag verður myndin The
Human Stain (30. janúar) frum-
sýnd. Myndin er gerð eftir sam-
nefndri bók Phillip Roth og
skartar Nicole Kidman og Ant-
hony Hopkins í aðalhlutverkum.
Til þess að létta mönnum um
brún í Óskars-æðinu bjóða
Farrelli-bræður upp á gaman-
myndina Stuck on You (6. febrú-
ar) sem fjallar um afar ólíka
síamstvíbura.
Fleiri fá að kenna á beittu
sverði brúðarinnar í Kill Bill. vol 2
(5. mars). Niceland, ný mynd Frið-
riks Þórs, ætti svo að skila sér í bíó
fyrir páska. Tvær athyglisverðar
myndir, Monster og Lost in
Translation, ættu svo að gera það
líka.
Páskamyndirnar í ár verða Pet-
er Pan (2. apríl), Scooby-Doo 2 (2.
apríl) og The Cat in the Hat (9. apr-
íl).
Með sumrinu hrynja svo stór-
myndirnar inn, hver á fætur
annarri. Sú fyrsta verður Van
Helsing (7. maí) sem fjallar um
vampírubanann alræmda. Hugh
Jackman, úr X-men, er í aðalhlut-
verki. Þar eftir koma Harry Potter
og fanginn frá Azkaban (mitt sum-
ar), Spider-Man 2 (16. júlí), Shrek
2, King Arthur, Around the World
in 80 Days og Cat Woman sem
skartar Halle Berry í leðrinu.
Í vetur kemur svo hrina stór-
mynda. Mynd Oliver Stone um
Alexander Mikla, The Village
sem er ný mynd M. Night
Shyamalan, The Incredibles
sem er ný teiknimynd frá Pixar,
framhaldsmynd Bridgetar Jo-
nes, Ocean 12 og jólamyndin
Polar Express frá Robert Zem-
eckis með Tom Hanks í aðal-
hlutverkum. ■
Hilmar Oddsson hefur glímt viðþað verkefni að færa skáldsög-
una Kaldaljós eftir Vigdísi Gríms-
dóttur yfir á filmu síðastliðin 15 ár
og það er ekki hægt að segja annað
en biðin hafi verið þess virði.
Kaldaljós er ákaflega áferðar-
fögur og vönduð mynd sem hreyfir
við áhorfandanum og skilur eitt-
hvað eftir sig, en slíkt er að verða
æ sjaldgæfara þegar kvikmyndir
eru annars vegar.
Ingvar E. Sigurðsson leikur
Grím Hermundsson sem stundar
myndlistarnám í Reykjavík. Hann
er þjakaður af hörmungaratburð-
um sem dundu á honum í æsku og
fortíðardraugarnir koma í veg fyr-
ir að hann geti tekist á við lífið og
tilveruna.
Drunginn í sálarlífi hans litar
myndina alla sem er falleg og hlý
þó yfir henni hvíli einhver undar-
leg séríslensk feigð sem sjaldan
hefur verið komið jafn vel til skila í
kvikmynd.
Einn helsti styrkur myndarinn-
ar liggur þó fyrst og fremst í góð-
um leik þar sem valinn maður er í
hverju rúmi. Ingvar fer létt með að
koma Grími á fullorðinsárum til
skila og Kristbjörg Kjeld er frábær
að vanda en að þeim og öllum öðr-
um ólöstuðum bera Áslákur og
Snæfríður Ingvarsbörn myndina
uppi. Samleikur systkinanna er
með ólíkindum afslappaður og eðli-
legur og þrátt fyrir ungan aldur
tekst þeim að skapa persónur sem
ekki er annað hægt en að heillast af
og finna til með.
Hér leikur allt í höndunum á
Hilmari, börn, fullorðnir, tónlist og
myndmál, sem skilar sér í fallegri,
fagmannlegri, látlausri, sorglegri
en fantavel leikinni eðalmynd.
Þórarinn Þórarinsson
Ljós í myrkri
Umfjöllunkvikmyndir
SKYTTURNAR
Byggð á skáldsögu eftir Vigdísi Grímsd.
Leikstjóri: Hilmar Oddsson
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson,
Áslákur Ingvarsson, Kristbjörg Kjeld
BIG FISH
Margir kvikmyndagagnrýnendur hafa kallað Big Fish, nýjustu mynd Tims Burton, hans besta leikstjórnarverk frá upphafi.
Hvernig verður bíóárið 2004?
Kvikmyndir
VÆNTANLEGAR ÁRIÐ 2004
■ Það stefnir allt í ágætiskvikmyndaár.
Rétt handan við hornið er bunki af
myndum sem keppa líklegast um Óskar-
inn, sumarið verður hlaðið stórmyndum
og í lok árs kemur önnur alda þrekvirkja.
Lloyd Christmas: Life is a fragile thing,
Har. One minute you’re chewin’ on a
burger, the next minute you’re dead
meat.
- Gamanmyndin Dumb & Dumber frá árinu 1994 er full
af skemmtilegum frösum sem þessum, annað en
framhaldsmyndin frá því í fyrra.
DUMB AND DUMBER
Bíófrasinn
Söng- og leikkonan NatalieImbruglia og söngvarinn
Daniel Johns úr Silverchair giftu
sig á laun á nýársdag.
Parið gifti sig í við-
veru fárra útvaldra á
Thala-ströndinni sem
er í norðausturhluta
Ástralíu. Eftir athöfn-
ina voru hjónin keyrð
í burtu í gylltri limúsínu. Natalie
er fjórum árum eldri en eigin-
maður sinn. Þau ætla að selja
blöðum brúðkaupsmyndir sínar
og láta gróðann renna til góð-
gerðamála.
Breski gamanleikarinn RowanAtkinsson hefur verið lagður
inn á geðdeild vegna gífurlegs
þunglyndis. Hann tók höfnuninni
sem fylgdi slæmu
gengi myndarinnar
Johnny English í
Bandaríkjunum
víst fremur illa.
Hann ætti kannski
að flytjast aftur til
Bretlands því þar
gekk myndin mun betur, þrátt
fyrir hörmulegar viðtökur gagn-
rýnenda.
Söngkonan Shania Twain þakk-ar eiginmanni sínum fyrir alla
velgengni sína í tónlist. Hún
kynntist honum í upphafi síðasta
áratugar og hann hjálpaði henni
að koma sér á framfæri í tónlist-
arbransanum. Hann er 20 árum
eldri en hún og starfar sem upp-
tökustjóri. Í dag búa þau með
syninum Eja í Sviss.
Þetta er bara
draumur...
Bara draumur...
mjög vondur
draumur...
Góðan daginn, Jói!
Af hverju pírirðu
augun svona?