Fréttablaðið - 03.01.2004, Síða 33
33LAUGARDAGUR 3. janúar 2004
Núpalind 1 Kópavogi • Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði
899
999
VERÐSPRENGJA
Núna næstu daga getur þú sótt til okkar
ljúffengar Pizzur á frábæru verði
Stór Pizza með 2 áleggstegundum á kr.
Stór Pizza með 4 áleggstegundum á kr.
59 12345Opið frá kl. 16-22Alla daga vikunnar
LI
TL
A
PR
EN
T
eh
f.
BLAK ÍS og Stjarnan leika til úr-
slita í bikarkeppni karla í blaki í
dag. Leikurinn verður í íþrótta-
húsinu við Austurberg og hefst
klukkan 16.15.
Stjarnan hefur titil að verja
en félagið varð bikarmeistari í
fyrra eftir 3-1 sigur á HK í úr-
slitaleik. Stúdentar urðu síðast
bikarmeistarar árið 2002 þegar
þeir unnu Þrótt frá Reykjavík 3-
1 í úrslitum.
ÍS vann Aftureldingu 3-0 í 1.
umferð keppninnar í vetur og
Þrótt 3-1 í undanúrslitum en
Stjarnan vann Þrótt frá Nes-
kaupstað 3-1 í 1. umferð og b-lið
Þróttar frá Reykjavík 3-0 í
undanúrslitum.
KA og Þróttur Reykjavík
keppa til úrslita í bikarkeppni
kvenna eftir tvær vikur. ■
FÓTBOLTI „Ég hef rætt við félagið
í nokkurn tíma og þetta virðist
áhugavert,“ sagði Teitur Þórðar-
son við NTB um viðræður sínar
við 2. deildarfélagið Ull/Kisa.
„Ég ákveð mig og læt félagið vita
eftir fundinn á föstudag.“
Teitur segir að hann hafi bæði
fengið tilboð frá félögum í
Noregi og í öðrum löndum. Hann
hefur þjálfað Lilleström, Brann
og Lyn í norsku úrvalsdeildinni
en gerir lítið úr því að það sé
skref niður á við að þjálfa félag í
2. deild. „Þetta verður öðruvísi
en örugglega í lagi. Ég hef þjálf-
að í efstu deild í fimmtán ár og
eftir þetta mörg ár þar verður
fínt að vera eitt ár þar sem
kröfurnar eru minni.“ ■
Rio Ferdinand:
Banninu seinkar
FÓTBOLTI Rio Ferdinand byrjar ekki
að afplána átta mánaða leikbann
annan mánudag eins og sérskipaður
dómstóll Ensku knattspyrnusam-
bandsins úrskurðaði. United bað um
formlegar útskýringar á dómnum
en vegna fría um jól og áramót fær
United líklega ekki gögnin fyrr en í
næstu viku. United hefur tveggja
vikna frest til að áfrýja dómnum
eftir að félagið fær gögnin en
Maurice Watkins, lögfræðingur
United, hefur lýst því yfir að óhjá-
kvæmilegt sé að áfrýja dómnum.
Töfin gæti þýtt að áfrýjun
United verði ekki tekin fyrir fyrr en
í lok febrúar, eða byrjun mars, en
Alex Ferguson hefur lýst því yfir að
Ferdinand muni leika með United
þar til bannið tekur gildi. ■
RIO FERDINAND
Leikur hann með United til loka febrúar?
Bikarúrslitaleikur:
ÍS og Stjarnan keppa
Norska knattspyrnan:
Teitur þjálfari Ull/Kisa?