Fréttablaðið - 03.01.2004, Síða 38
Konan mín 38 3. janúar 2004 LAUGARDAGUR
Kvikmyndin Kaldaljós í leik-stjórn Hilmars Oddssonar
hefur verið valin opnunarmynd
kvikmyndahátíðarinnar í Gauta-
borg sem stendur yfir dagana
23. janúar – 2. febrúar. „Þetta er
ein stærsta og virtasta kvik-
myndahátíð Norðurlandanna,“
segir Laufey Guðjónsdóttir, for-
stöðumaður Kvikmynda-
miðstöðvarinnar. „Íslendingar
eru óvenju áberandi í Gauta-
borg í ár því auk Kaldaljóss
verður heimildarmyndin Skjóni
fer á fjall eftir Þorfinn Guðna-
son, Karamellumyndin eftir
Gunnar Björn Guðmundsson og
dansmyndin Burst eftir þau
Katrínu Hall og Reyni Lyngdal
sýndar á hátíðinni.“
Kvikmyndin Nói albínói virð-
ist hafa vakið áhuga á íslenskum
kvikmyndum en sú mynd hrepp-
ti aðalverðlaunin í Gautaborg í
fyrra. „Jannike Ahlund, stjórn-
andi kvikmyndahátíðarinnar í
Gautaborg, kom hingað til lands
á dögunum til að skoða íslenskar
myndir með hátíðina í huga.
Hún hreifst mjög af Kaldaljósi
og það er mikill heiður fyrir
myndina að hafa verið valin sem
opnunarmyndin í ár. Þær mynd-
ir eru oftast flaggskip hverrar
kvikmyndahátíðar og slá oft
tóninn fyrir það sem á eftir
kemur en auk þess hefur þetta
mjög mikið kynningargildi fyrir
kvikmyndina.“ ■
Kvikmyndir
LAUFEY GUÐJÓNSDÓTTIR
■ Kvikmynd Hilmars Oddssonar er
flaggskip kvikmyndahátíðarinnar í Gauta-
borg í ár en auk þess verða Karamellu-
myndin, Burst og heimildarmyndin
Skjóni fer á fjall sýndar á hátíðinni.
„Hún er alveg pottþétt,“ segir
Guðjón Guðmundsson, eða Gaupi
íþróttafréttamaður, um konu sína
Karen Christensen.
Fréttiraf fólki
1
6 7
8 9
14
16 17
15
18
2 3 4
1311
10
12
5
Forseti Íslands, Ólafur RagnarGrímsson, og kona hans, Dorrit
Moussaief, mættu í Hjálpræðis-
herinn á aðfangadagskvöld og
snæddu jólamáltíðina með gestum
hersins. „Þetta var mjög skemmti-
legt og sérstakt þar sem gestirnir
vissu ekki af komu forsetahjón-
anna,“ segir Anne Marie Holdtst-
en, framkvæmdastjóri Hjálpræð-
ishersins á Íslandi, en heimsóknin
var að frumkvæði Ólafs Ragnars.
„Matarboðið hófst um sex en Ólaf-
ur og Dorrit komu í heimsókn um
sjöleytið. Þau heilsuðu gestunum
öllum með handabandi og þáðu síð-
an mat til að snæða með okkur og
spjölluðu frjálslega við fólkið.“
Á aðfangadagskvöld er venjan í
Hjálpræðishernum að lesa úr jóla-
spjallinu, syngja mikið og ganga í
kringum jólatréð. „Það voru um
140 manns hér á aðfangadagskvöld
í ár en það er ekki eins mikill
fjöldi og í fyrra. Við höfum ekki
fengið svona gesti áður til okkar á
á þessum hátíðardegi. Ólafur var
beðinn um að ávarpa gesti í lokin
sem og hann gerði,“ segir Anna.
„Mér fannst þetta afar vel gert hjá
hjónunum og gestirnir kunnu að
meta þetta.“ ■
Nýársdagur var dagur athafna-mannsins Björgólfs Guð-
mundssonar í það minnsta hvað
íslenska kvikmyndagerð varðar
en eins og alþjóð veit styrktu
Björgólfarnir Hrafn Gunnlaugs-
son um nokkrar milljónir til þess
að hann mætti ljúka við Opinber-
un Hannesar sem RÚV bauð
áhorfendum sínum upp á á fyrsta
degi ársins 2004. Þann sama dag
var Kaldaljós eftir
Hilmar Oddsson
frumsýnd í Há-
skólabíó. Björgólf-
ur mætti á frum-
sýninguna enda
styrkti Lands-
bankinn gerð
Kaldaljóss. Ís-
lenska kvikmyndasamsteypan,
fyrirtæki Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, framleiðir myndina en fyr-
irtækið á í umtalsverðum fjár-
hagsvandræðum og þegar Friðrik
fylgdi Kaldaljósi úr hlaði með
stuttu ávarpi notaði hann tæki-
færið til að þakka Landsbankan-
um fyrir að draga verkefnið að
landi og lét það fylgja með að án
Landsbankans væri engin kvik-
myndagerð á Íslandi.
Lárétt: 1 ljúfur, 6 læsing, 7 tónn, 8 píla,
9 hljóðfæri, 10 stjórnpallur á skipi,
12 ærða, 14 fley, 15 á fæti, 16 merki um
áverka, 17 blóm, 18 gera máttlausan.
Lóðrétt: 1 vaxa á trjágreinum, 2 kassi,
3 klaki, 4 pakkningar, 5 borg, 9 ókyrrð,
11 kveðja, 13 svæði í norður Noregi,
14 snjóhula, 17 öfugur tvíhljóði.
Lausn.
Lárétt: 1blíður, 6lás,7mí,8ör, 9óbó,
10brú,12óða,14far,15il,16ör, 17 urt,
18lama.
Lóðrétt: 1blöð,2lár, 3ís,4umbúðir, 5
ríó,9óró,11fara,13alta,14 föl,17ua.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6:
1.
2.
3.
Steingrímur Sigurgeirsson.
Ólafur Stefánsson hand-
boltakappi.
Reykjavík.
Snæddu jólamatinn á
Hjálpræðishernum
Jólin
ÓLAFUR RAGNAR OG
DORRIT MOUSSAIEFF
■ Á aðfangadag snæddu forsetahjónin
á Hjálpræðishernum.
LAUFEY GUÐJÓNSDÓTTIR
Segir kvikmyndahátíðina í
Gautaborg vera eina þá stærstu
og virtustu á Norðurlöndum
Opnunarmyndin
í Gautaborg
Áramótin hljóta að vera orðinfunheitur ferðamannatími á
Íslandi en þannig steig til dæmis
þýska handboltahetjan Stefan
Kretzmar trylltan dans í Iðnó á
gamlárskvöld. Hann var í för
með fyrrum félaga sínum hjá
Magdenburg, Ólafi Stefánssyni,
og sagan segir að hann hafi með-
al annars verið að leita skjóls á
Íslandi fyrir gulu pressunni í
Þýskalandi sem fylgist náið með
skilnaði sem Kretzmar stendur í.
Þýskir slúðurblaðamenn hefðu
heldur betur komist í feitt í Iðnó
þar sem Kretzmar glímir við
meiðsl sem gætu komið í veg fyr-
ir að hann leiki með þýska lands-
liðinu á EM í næsta mánuði þó
þau aftri honum ekki frá því að
dansa eins og óður maður.
Heyrst hefur að einn frægastikvikmyndaleikstjóri heims,
Quentin Tarantino, hafi sýnt því
mikinn áhuga að koma í heim-
sókn til Íslands. Ferðalöngun
Tarantino á að hafa kviknað út
frá samtali hans við Eli Roth,
leikstjóra kvikmyndarinnar
Cabin Fever, þar sem hann lýsti
ánægju sinni með dvölina hér á
landi. Áform eru uppi um að
seinni hluti kvikmyndarinnar
Kill Bill verði forsýnd á Íslandi í
mars, viku eftir frumsýninguna
í Bandaríkjunum og er nú verið
að vinna að því að leikstjórinn
heimsfrægi geti séð sér fært að
vera viðstaddur forsýninguna
hér á landi. ■
Tarantino til Íslands
QUENTIN TARANTINO
Útlit er fyrir að frægasti kvikmyndaleikstjóri
heims geti bæst í hóp Íslandsvina innan
tíðar.
ÓHEFÐBUNDIÐ AÐFANGADAGSKVÖLD
Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff birtust
óvænt í Hjálpræðisherinn á
aðfangadagskvöld og matargestir
kunnu vel að meta nærveru þeirra.
Í matinn var hangikjöt, hamborgar-
hryggur og lamb.
Fréttiraf fólki