Fréttablaðið - 03.01.2004, Síða 40

Fréttablaðið - 03.01.2004, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar REYNIS TRAUSTASONAR Hákarl og hafsnauð ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 23 12 4 12 .2 00 3 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 3 Rýmum fyrir nýju ári 27/12 - 18/01 Útsala Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is Fréttir geta verið margvíslegar ogeignast gjarnan sjálfstæðara líf eftir því sem þær ganga á milli fleiri manna. Háir sem lágir taka gjarnan þátt í því að krydda munnmælasögur og færa þær í stílinn. Þetta er ekki að- eins bundið við munnmæli heldur einnig nútímafjölmiðla sem eru rekn- ir áfram af þörfinni fyrir að finna eitthvað nýtt til að bragðbæta sögu sem komin er fram yfir seinasta sölu- dag. Sá Íslendingur sem fékk hvað mesta umfjöllun í heimspressunni á seinasta ári var skipstjórinn og kjark- mennið Sigurður Pétursson sem sneri baki við íslensku allsnægtasamfélagi til þess að búa við frumstæðar að- stæður í Kuummiit, 350 manna þorpi á austurströnd Grænlands, þaðan sem hann stundar veiðar á grálúðu og ná- hval á smábátnum Eiríki rauða innan um hafís og við aðstæður sem líkjast í fáu því sem íslenskir sjómenn þekkja. HEIMSPRESSAN tók kipp í haust þegar Fréttablaðið sagði frá því að Ís- maðurinn í Kuummiit hefði með ber- um höndum fangað hákarl í fjöru- borði við Grænlandsströnd. Atvikið var í sjálfu sér fréttnæmt enda fáheyrt að menn leggi til atlögu við þennan helsta ógnvætt undir- djúpanna; hvað þá berhentir. Fréttin flaug á ógnarhraða með aðstoð frétta- veita um gjörvalla heimsbyggðina og var í fyrstu óbrengluð og lýsti því einu að Sigurður skipstjóri hafi ásamt mönnum sínum verið við hvalskurð þegar hákarl kom syndandi til að gæða sér á innyflum. Ísmaðurinn hafði engar vöflur á heldur óð í sjóinn og tók um sporð hákarlsins og hélt honum sem að hans sögn er ekki þrekvirki þar sem hákarl á grunnsævi er fremur máttlaus. Síðan hóaði hann í grænlenskan samstarfsmann sinn, Frede, og bað hann að taka við sporð- inum og óð fram með dýrinu, sem var að mati sjónarvotta um 300 kíló, og stakk hann til bana. FRÉTTIN hefur gert víðreist og hver fjölmiðillinn af öðrum tekið hana upp. Smám saman tók hún þó breytingum í meðförum. Mestum hæðum náði hún í Ástralíu þar sem hákarlinn var orðinn 600 kíló að þyngd eftir að hafa verið nokkrum sinnum umreiknaður frá kílóum í pund og til baka aftur. Ein- hverjum fjölmiðlinum hefur væntan- lega þótt vanta hetjudáðina í dráp hákarlsins og þá var skotið inn setn- ingu um að kapteinn Sigurður hefði verið að bjarga mannskap sínum frá hákarlinum ógurlega og í því skyni stungið sér til sunds og ráðist á há- karlinn á jafnréttisgrundvelli. Í sömu svifum breyttist smábáturinn Eiríkur rauði í togara sem barðist um í hafs- nauð innan um hafís og hákarla sem skipstjórinn stútaði berhentur. Fleiri fjölmiðlar fylgdu á eftir með nýju útgáfuna. SAGAN um hænuna og fjöðrina þar sem ein fjöður varð að mörgum hæn- um er enn í fullu gildi. En auðvitað er fréttnæmt þegar maður fangar há- karl með berum höndum. Þetta er þá aðeins spurning um að réttum stærð- um sé haldið til haga. ■ www. .is Taktu þátt í spjallinu á ... www.gunnimagg . i s Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.