Fréttablaðið - 13.01.2004, Síða 1
VIÐSKIPTI Hópur fjárfesta undirbýr
kaup á ráðandi hlut á flutninga-
hluta Eimskipafélagsins. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
standa eftirfar-
andi að hópnum:
Feðgarnir Erlend-
ur Hjaltason,
f r a m k v æ m d a -
stjóri Eimskipafé-
lagsins ehf. sem
er skipafélagið,
og Hjalti Geir
K r i s t j á n s s o n ,
Þórður Magnús-
son, fyrrverandi
f r a m k v æ m d a -
stjóri fjármála-
sviðs félagsins, og
Árni Oddur sonur
hans. Þeir feðgar áttu með öðrum
fjárfestingarfélagið Gildingu. Þá
eru í hópnum Hannes Smárason,
aðstoðarforstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, og Saxhóll sem
er í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar.
Í stjórn Eimskips hefur verið
mörkuð sú stefna að flutninga-
starfsemi og fjárfestingarstarf-
semi verði skipt upp í tvö félög.
Áformað er að afgreiða tillögu á
aðalfundi félagsins í mars. Við þá
breytingu verða til tvö hlutafélög;
annars vegar fjárfestingarfélagið
Burðaráss og Eimskip sem skipa-
félag. Samkvæmt heimildum eru
hugmyndir hópsins þær að skipa-
félagið verði áfram skráð á mark-
aði, en hópurinn vill tryggja sér
ráðandi stöðu í hluthafahópnum.
Hópurinn vill samkvæmt
heimildum reka félagið sem
skipafélag, eins og það var lengst
af 90 ára sögu sinni. Ekki er búið
að ganga frá endanlegri skipt-
ingu félagsins og því liggur lítið
fyrir um hver endanleg útfærsla
verður.
Þórður Magnússon staðfesti að
aðilar honum tengdir væri orðnir
nokkuð stórir hluthafar í Eimskipa-
félaginu en vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um málið. „Eimskipafélagið
er áhugaverð fjárfesting að okkar
mati og það verður svo bara að
koma í ljós hvað verður.“ Magnús
Gunnarsson, stjórnarformaður
Eimskips, segist vita til þess að
nokkrar breytingar hafi átt sér stað
í hluthafahópi félagsins en segir
enga „strategíska breytingu“ að
ræða að hálfu Landsbanka Íslands.
„Hins vegar hef ég mikla trú á
því að það verði mikill áhugi á að
kaupa hlutabréf í skipafélaginu og
ég held að bæði þessi fyrirtæki
sem koma út úr þessu verði feiki-
lega öflug fyrirtæki sem eiga eftir
að gera sig gildandi og eiga mikinn
vöxt framundan,“ segir Magnús.
haflidi@frettabladid.is
thkjart@frettabladid.is
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
ÞRIÐJUDAGUR
KENNARATÓNLEIKAR
Guðrún S. Birgisdóttir flautuleikari og
Kristinn H. Árnason gítarleikari spila á
tónleikum í Salnum í kvöld. Tónleikarnir
eru á vegum Tónlistarskóla Kópavogs en
bæði eru kennarar þar.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
STÓRVIÐRI NORÐAN OG VESTAN
TIL Bullandi óveður á þeim svæðum og
ekkert ferðaveður. Hvassviðri eða stormur
með skafrenningi á Norðvesturlandi og
Vestfjörðum. Í borginni verður hvasst en
úrkomulítið. Sjá síðu 6.
13. janúar 2004 – 12. tölublað – 4. árgangur
● 37 ára í dag
Sigrún Eðvaldsdóttir:
▲
SÍÐA 16
Afmælisnudd
er lúxus
● stórt númer á berlínarhátíðinni
Tómas Lemarquis:
▲
SÍÐA 30
Valinn í
„Shooting Star“
● íslensku tónlistarverðlaunin
Dr. Gunni
▲
SÍÐA 27
Saknar Leoncie
● guðjón bergmann ● íslenskar heilsuvörur
Stundar útreiðar,
sund og fjöll
heilsa o.fl.
Hinrik Ólafsson:
▲
SÍÐA 18 og 19
JÁKVÆTT HLJÓÐ Halldór Björnsson,
formaður Starfsgreinasambands Íslands,
segir í fyrsta skipti komið jákvætt hljóð í
viðræðunum við ríkið um nýja kjarasamn-
inga. Sjá síðu 4
Í GLUGGALAUSU HERBERGI Ósak-
hæfur maður var vistaður í einangrunar-
klefa á réttargeðdeildinni að Sogni. Hún var
yfirfull og einangrunarklefið eina lausa her-
bergið. Deildarstjóri segir að stækka þyrfti
deildina um helming. Sjá síðu 2
DEILT Í EFNAHAGSNEFND Nefndar-
menn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis
deildu um hæfi Péturs Blöndal formanns til
að stýra störfum nefndarinnar. Á endanum
varð ekkert af umræðu um kaup KB-banka
á SPRON. Sjá síðu 4
NÁST FREKAR EN AÐRIR Banka-
ræningjar nást frekar en aðrir ræningjar.
Sex af átta bankaránum hafa verið upplýst
og tveir í haldi vegna þess sjöunda. Ein-
ungis þrjú af tíu ránum í verslunum hafa
verið upplýst. Sjá síðu 6
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
áfrýjað til Hæstaréttar sýknudómi
Héraðsdóms Vestfjarða yfir tæp-
lega fimmtugum Vestfirðingi sem
ákærður var fyrir kynferðisbrot.
Fjölskipaður dómur Héraðs-
dóms Vestfjarða taldi ítrekuð kyn-
ferðisbrot mannsins, gegn barn-
ungri stúlku á árunum 1985 til
1989 fyrnd og sýknaði hann.
Sýknudómur Héraðsdóms
Vestfjarða hefur vakið upp spurn-
ingar um hvernig túlka beri
ákvæði laga um fyrningarfrest.
Stúlkan kærði málið til lög-
reglu áður en 15 ára fyrningar-
frestur var liðinn en manninum
var ekki kynnt sakarefnið fyrr en
rúmum sjö mánuðum síðar. Dóm-
urinn taldi að fyrningarfresturinn
hefði ekki rofnað fyrr en mannin-
um var kynnt sakarefnið en þá
taldist málið fyrnt. Fjöldi lög-
fræðinga er á annarri skoðun og
telur að fyrningarfrestur hafi
rofnað um leið og kæran var lögð
fram. Ekki sé gert að skilyrði að
ákærða sé kynnt sakaraefnið svo
fyrningarfrestur rofni.
Nú kemur það í hlut Hæstarétt-
ar Íslands að kveða upp úr um
hvernig túlka beri ákvæði laga um
fyrningarfrest. ■
Hópur fjárfesta vill
eignast óskabarnið
Hópur fjárfesta hefur verið að styrkja stöðu sína í hluthafahópi Eimskipa-
félagsins. Ætlun hópsins er að kaupa flutningareksturinn. Eimskipafélag-
inu verðu skipt upp í skipafélag og fjárfestingarfélag á aðalfundi í mars.
Sýknudómur yfir vestfirskum kynferðisbrotamanni:
Áfrýjað til Hæstaréttar
HALDIÐ Í JÓMFRÚARFERÐINA Stærsta og dýrasta farþegaskip heims hélt í gær upp í fyrstu áætlunarsiglingu sína. Queen Mary 2 sigl-
di út úr höfninni í Southampton og setti stefnuna á Fort Lauderdale í Flórída. Mikið var um dýrðir við brottför skipsins og fylgdust þús-
undir með þegar það lét úr höfn.
Rafmagnslaust:
Notast við
kertaljós
ÓVEÐUR Íbúar í Árneshreppi á
Ströndum hafa búið við raf-
magnsleysi frá hádegi í gær en
þá hrökk rafmagnslína í sundur
vegna ísingar.
Línumenn hjá Orkubúi Vest-
fjarða lögðu af stað á snjósleðum
frá Hólmavík í gær til að gera við
línuna en þurftu frá að hverfa
vegna veðurs. „Þeir sáu ekki
handa sinna skil,“ segir Þor-
steinn Pálsson línumaður. Vonir
eru bundnar við að gera megi við
línuna í dag.
Einn þeirra sem hefur orðið að
bjarga sér án rafmagns er Þórólf-
ur Guðfinnsson sem hefur haft
kertaljós til lýsingar. Hann á allt
eins von á því að vera rafmagns-
laus nokkra daga til viðbótar.
„Þetta kemur fyrir annað slagið
og er ekkert nýtt fyrir okkur.“ ■
Vonskuveður:
Áfram
illviðri
VEÐUR Vonskuveður verður áfram
víðast um landið í dag, þó sérstak-
lega á Norðurlandi. Spáð er
áframhaldandi mikilli ofankomu
fyrir norðan og vestan en líkur
eru til þess að ekki verði úrkoma
á Suðvesturhorninu. Ekki er búist
við því að veður lægi í dag og að
það verði í fyrsta lagi skaplegt á
fimmtudag.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar í gærkvöldi að nær all-
ir fjallvegir væru lokaðir og að víða
ættu ökumenn í erfiðleikum. ■
Læknadeilan:
Gæti rofað
til í dag
LÆKNADEILAN Ekkert varð af fundi
samninganefnda Læknafélags
Reykjavíkur og heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytis í gær. „Við
gerðum ráð fyrir því í gær
[sunnudag] að það yrði fundur í
dag [í gær] en af því gat bara ekki
orðið,“ segir Garðar Garðarsson,
formaður samninganefndar ráðu-
neytisins.
Hann segir að boðaður hafi ver-
ið fundur í dag kl. 16 en í gær-
kvöldi kl. 20 hafði Óskar Einars-
son, formaður Læknafélagsins,
ekki fengið formlega fundarboðun.
Boðað hefur verið til félags-
fundar í Læknafélagi Reykjavík-
ur í kvöld og er vonast til þess að
þá verði hægt að leggja fram
samning til samþykktar. Fundar-
boðið var sent út á sunnudag eftir
óformlegan fund formanna samn-
inganefndanna. ■
„Eimskipa-
félagið er
áhugaverð
fjárfesting
að okkar
mati og það
verður svo
bara að
koma í ljós
hvað verður.
GARÐAR GARÐARSSON
Ekki gat orðið af fundi í gær.