Fréttablaðið - 13.01.2004, Síða 6
6 13. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ Lögreglufréttir
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 69.11 -1.00%
Sterlingspund 128.11 0.08%
Dönsk króna 11.95 0.08%
Evra 88.99 0.09%
Gengisvísitala krónu 121,58 -0,18%
Kauphöll Íslands
Fjöldi viðskipta 427
Velta 9.910 milljónir
ICEX-15 2.193 1,94%
Mestu viðskiptin
Eimskipafélag Íslands hf. 1.707.213.883
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. 1.392.616.915
Pharmaco hf. 592.811.79
Mesta hækkun
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. 17,43%
Tryggingamiðstöðin hf. 7,91%
Bakkavör Group hf. 5,15%
Mesta lækkun
Flugleiðir hf -3,17%
Grandi hf. -1,43%
Medcare Flaga hf. -0,80%
Erlendar vísitölur
DJ* 10.458,6 0,0%
Nasdaq* 2.097,8 0,5%
FTSE 4.449,6 -0,4%
DAX 3.995,9 -0,5%
NK50 1.397,7 0,0%
S&P* 1.124,6 0,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Hversu mörg ár í röð var tap á rekstrilífeyrissjóðanna fyrir síðasta ár?
2Hvað heitir forstöðumaðurHvalasafnsins á Húsavík sem vill fá
beinagreind Keikós frá Noregi?
3Hvað unnu Íslendingar Svisslendingaoft í landsleikjum í handbolta um
helgina?
Svörin eru á bls. 30
ÍSRAEL Tugir þúsunda Ísraela mót-
mæltu í gær áætlunum ísrael-
skra stjórnvalda um að rífa niður
hluta landnemabyggða gyðinga á
Vesturbakkanum. Mótmælin fóru
fram í miðborg Tel Aviv, með
þátttöku nokkurra þingmanna en
þar á meðal voru ráðherrar úr
ríkisstjórn Ariels Sharon.
Mótmælunum var aðallega
beint gegn Sharon en hann sagði
nýlega að nauðsynlegt væri að
rífa niður einhverjar jaðarbyggð-
ir til þess að tryggja árangur af
fyrirhuguðum friðarviðræðum á
grundvelli alþjóðlega vegvísis-
ins.
Mótmælendur hrópuðu slag-
orð og báru mótmælaspjöld með
áletrunum eins og: „Niðurrif
landnemabyggða mun kljúfa
þjóðina“ og „Vegvísir guðs, biblí-
an, færði okkur þetta land“. ■
ÖRYGGI „Við settum í kröfugerð okk-
ar fyrir kjarasamningana að örygg-
ismál starfsmanna verði tekin til
skoðunar,“ segir Elías Magnússon,
forstöðumaður þjónustusviðs Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur, en
fleiri rán, bæði vopnuð og óvopnuð,
hafa verið framin í verslunum frá
fyrsta apríl í fyrra en í bönkum á
sama tíma.
Sex af átta bankaránum hafa
verið upplýst og eru tveir menn í
haldi vegna þess nýjasta. Hins veg-
ar hafa tíu rán verið framin í versl-
unum og eru aðeins þrjú þeirra upp-
lýst. Sett hafa verið öryggisbox við
hvern kassa í verslunum 10-11. Það
tryggir að aðeins um tíu þúsund
krónur í skiptimynt séu í hverjum
kassa. Peningaseðlarnir eru settir í
öryggisbox og þarf að slá tvívegis
inn kóða með nokkra mínútna milli-
bili til að þau opnist og tekur ferlið
yfir tíu mínútur. Einnig eru öryggis-
verðir frá ellefu á kvöldin til níu á
morgnana í þeim verslunum sem
opnar eru allan sólarhringinn.
Elías segir ekki vera neinar
ákveðnar hugmyndir um hvað beri
að gera, en nauðsyn sé að finna leið
til að tryggja starfsfólk verslan-
anna betur með einhverjum hætti.
„Við erum tilbúnir til samstarfs
bæði við Vinnueftirlitið og vinnu-
veitendur um að skoða þessi mál
frekar þannig að betur megi fara
þar sem rán eru nánast orðið dag-
legt brauð.“ Hann segir varnir gegn
ræningjum flokkast helst undir lög
um aðbúnað og hollustuþætti og þar
skipti Vinnueftirlitið miklu. Í kröfu-
gerð, sem Verslunarmannafélagið
lagði fram 15. desember vegna
komandi kjarasamninga, er öryggi
starfsmanna eitt af því sem tekið er
til. Fyrstu skrefin hafa verið stigin í
kjarasamningunum og á næstu vik-
um mun meiri alvara færast í samn-
ingana.
„Ég veit að margar verslanir eru
að skoða öryggisþáttinn en hugsan-
lega þurfa fleiri að koma að, eins og
við, lögreglan og Vinnueftirlitið, svo
þetta nái lengra en ella.“
„Mál eru misjöfn, sum upplýsast
og önnur ekki, og það er svo sem
ekki meira um það að segja. Það er
brugðist nákvæmlega eins við rán-
um í verslunum eins og í banka,
sömu vinnuaðferðir notaðar,“ segir
Kristján Gunnarsson hjá lögregl-
unni í Hafnarfirði þegar hann er
spurður um hvort skýringar, á hver-
su illa gengur að upplýsa rán í
verslunum miðað við banka, séu
þær að þau séu ekki tekin jafn föst-
um tökum og bankaránin.
hrs@frettabladid.is
Alltaf ód‡rast á netinu
83 flug á viku til 13 áfangastaða
Verð á mann frá 19.500 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
35
0
1
0/
20
03
Fjöldamótmæli:
Tugþúsundir mót-
mæltu niðurrifi
SLAGORÐ GEGN SHARON
Þingmenn og ráðherrar voru meðal mót-
mælenda.
Bankaræningjar
nást frekar en aðrir
Elías Magnússon hjá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur segir að finna verði leið til að tryggja
starfsfólk verslana betur þar sem rán séu orðin algeng. Sex af átta bankaránum eru upplýst og
tveir í haldi vegna eins þeirra. Aðeins þrjú af tíu ránum í verslanir á sama tíma eru upplýst.
AÐEINS TÍU ÞÚSUND KRÓNUR Í PENINGASKÚFFUNNI
Sett hafa verið upp öryggisbox við hverja sjóðsvél í verslunum 10-11. Aldrei meira en tíu
þúsund krónur eru í kassanum og því ekki von um góðan ránsfeng.
RÁN FRÁ FYRSTA APRÍL Í FYRRA
Banki Dagsetning Upplýst/óupplýst
Sparisjóður Hafnarfjarðar 1. apríl Upplýst
Sparisjóður Kópavogs 16. maí Upplýst
Landsbankinn í Grindavík 5. júní Upplýst
Íslandsbanki Eiðistorgi 29. ágúst Upplýst
Íslandsbanki Lóuhólum 18. september Óupplýst
Sparisjóður Hafnarfjarðar 14. nóvember Upplýst
Búnaðarbankinn Vesturgötu 17. nóvember Upplýst
SPRON, Hátúni 9. janúar Tveir í haldi
Verslun Dagsetning Upplýst/óupplýst
Subway 3. júní Upplýst
Söluturninn Biðskýlið 18. júní Óupplýst
Söluturninn Biðskýlið 24. ágúst Óupplýst
11-11 Þverbrekku 12. nóvember Óupplýst
10-11 Staðarbergi 22. nóvember Óupplýst
Biðskýlið Kópavogi 30. nóvember Óupplýst
Videóspólan 3. desember Upplýst
10-11 Arnarbakka 3. desember Óupplýst
Bónus Kópavogi 7. desember Upplýst
Egyptinn Hafnarfirði 9. janúar Óupplýst
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Lyfjaframleiðandi:
Samið um
2000 kærur
BERLÍN, AP Þýski lyfjaframleiðand-
inn Bayer hefur samið utan dóm-
stóla vegna rúmlega 2000 kæru-
mála sem höfðuð voru á hendur
fyrirtækinu eftir að það dró lyf af
markaði árið 2001. Um hundrað
dauðsföll hafa verið rakin til
notkunar lyfsins sem er talið
valda vöðvarýrnun meðal þeirra
sem neyta lyfsins.
Enn á eftir að ljúka meira en
tíu þúsund kærumálum. Heildar-
bætur sem fyrirtækið hefur
þegar greitt nema rúmlega 54
milljörðum króna. ■
DRYKKJULÆTI Lögreglan fjarlægði
fullorðinn karlmann úr heimahúsi
á Ísafirði að ósk húsráðanda í síð-
ustu viku. Maðurinn var mjög ölv-
aður og erfiður sökum ölvunar.
Hann gisti fangageymslur þar til
víman var runnin af honum.
SKAUT FLUGELDUM OG RUSLI Lög-
reglan hafði afskipti af ökumanni á
þrítugsaldri sem hafði kastað log-
andi flugeldi út úr bíl sínum í mið-
bæ Ísafjarðar aðfaranótt laugar-
dags. Hann sást einnig henda rusli
út um bílgluggann. Hann má búast
við sekt vegna framferðisins.
ÁREKSTUR Í KÓPAVOGI Tveir bílar
lentu í árekstri á Fífuhvammsvegi í
Kópavogi í gærmorgun. Engin slys
urðu fólki en fjarlægja þurfti báða
bílana með kranabíl.