Fréttablaðið - 13.01.2004, Side 8

Fréttablaðið - 13.01.2004, Side 8
8 13. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR Undarleg atvik „...Ég stefndi á að vera á þingi en það atvikaðist þannig að ég komst ekki inn“. Ásta Möller, varaþingmaður, verkefnastjóri og nemi, í Fréttablaðinu 12. nóvember um orsök þess að hún féll í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Afbrýðisamur bifvélavirki „...Ég var náttúrlega afbrýðisam- ur og þegar ég sá manninn í bílageymslu í Hamraborginni ákvað ég að hræða hann að- eins...“. Sævar Helgason bifvélafvirki í DV 12. nóvember um ástæður þess að hann ók niður kínverskan nuddara sem hann taldi að héldi við eiginkonu sína. Hannes og hjólið „...Ég vildi ekki finna upp hjól- ið“. Hannes Hólmsteinn Gissurarson ævisagnaritari um vinnubrögð sín við skráningu ævisögu Halldórs Kiljans Laxness í samtali við blaðamann Morgunblaðsins á fundi Reykjavíkur- Akademíunnar, laugardaginn 10. janúar. Orðrétt Hagrannsóknarstofnun samtaka opinberra starfsmanna: Skipulagsskrá samþykkt HAGRANNSÓKNIR Hagrannsóknar- stofnun samtaka launafólks í almannaþjónustu, HASLA, tekur brátt til starfa en samkomulag um skipulagsskrá stofnunarinnar tókst skömmu fyrir áramót. Að hagrann- sóknarstofnuninni standa Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, (BSRB), Bandalag háskólamanna (BHM), Kennarasamband Íslands (KÍ) og Samband íslenskra bankamanna (SÍB). HASLA er ætlað að stuðla að því að hagrannsóknir og aðrar rann- sóknir í þágu og frá sjónarhóli launafólks í almannaþjónustu séu stundaðar reglulega með stuðningi ríkisins, þannig að betra jafnvægi náist í upplýsingastreymi og þjóð- félagsumræðu. Stofnun HASLA hefur ekki í för með sér að hagfræðideildir ein- stakra sambanda verði lagðar niður, heldur er um hreina viðbót að ræða. HASLA fær 20 milljónir króna til starfseminnar á þessu ári, sam- kvæmt fjárlögum Alþingis. Ekki liggur fyrir hvar HASLA verður til húsa en ákvörðun um það verður tekin á næstu dögum.■ Meiri rétt til áminninga Forstjóri Barnaverndarstofu telur koma til álita að heimildir hennar til að grípa inn í barna- verndarmál verði rýmkaðar. Hann segir að heimildir til að áminna barnaverndarnefndir séu afskaplega þröngar og setji eftirlitsstarfinu vissar skorður. BARNAVERND „Við höfum í fjöl- mörgum tilvikum vandað um við barnaverndarnefndir,“ sagði Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, aðspurður um afskipti barnaverndaryfir- valda af málsmeðferð barna- verndarnefnda. „En við höfum ekki lagaheimildir til að beita þær viðurlögum eða refsa þeim með beinum hætti, svo sem að víkja nefnd frá. Við getum að- eins áminnt þær í þeim tilvik- um, að þær fari ekki að okkar leiðbeiningum.“ Bragi segir, að nefndirnar hafi yfirleitt fylgt leiðbeining- um yfirvalda vandræðalaust. Fyrir hafi komið, að nefndum hafi verið tilkynnt að þær væru á lokafresti, áður en til form- legrar áminningar kæmi. Þær hafi undantekningalaust brugð- ist við því. Vinnubrögð barnaverndar- nefndar á Bolungarvík árið 1994 hafa vakið athygli. Þá átti nefndin fund með manni sem hafði verið klagaður fyrir kyn- ferðislegt áreiti við börn. Nefndin gaf honum „formlega áminningu“. Meira gerði barna- verndarnefndin ekki í því tiltek- na máli.. Sami maður var í síðustu viku fundinn sekur í Héraðsdómi Vestfjarða um kynferðisafbrot gagnvart stúlkubarni um árabil. „Mál þetta er eldra en Barna- verndarstofa og sú barnavernd- arnefnd sem kom að þessu máli er ekki til í dag,“ sagði Bragi. „Enginn af þeim sem þarna kom við sögu situr í barnaverndar- nefndinni á norðanverðum Vest- fjörðum, eftir því sem ég veit best. Þetta mál kallar ekki á nein viðbrögð að okkar hálfu í dag.“ Bragi benti á að á þessum tíma hefði ekki verið óalgengt að mál hefðu verið afgreidd með þessum hætti. Það væri meðal annars ástæða þess að Barna- verndarstofa hefði verið sett á laggirnar á sínum tíma, Barna- hús hefði verið stofnað, barnaverndarnefndum fækkað verulega og fleiri breytingar gerðar til að efla fagleg vinn- urbrögð barnaverndaryfirvalda. Hann sagði að meginreglan væri sú, að væri grunurinn sterkur væri mál vísað til lög- reglumeðferðar. Framburður barnsins skipti þar höfuðmáli. Ef grunur byggðist á öðrum at- riðum, framkvæmdu nefndirnar frumrannsókn á málinu á eigin vegum, eftir atvikum með könn- unarviðtali við barn í Barna- húsi. Lögreglan hefði ekki heim- ildir til að ræða sjálf við barnið heldur þyrfti að efna til skýrslu- töku fyrir dómi. Ekki væri farið út í svo viðurhlutamikla aðgerð nema grunurinn væri verulega rökstuddur til dæmis með fram- burður barnsins. Ef þessi skil- yrði eru ekki fyrir hendi má segja að lagareglurnar virki þannig hamlandi viðvíkjandi að- komu lögreglu að málinu. Kerf- ið, eins og það væri nú, væri ekki mjög hvetjandi til að vísa málum til lögreglu heldur frem- ur letjandi. „Mér finnst vera orðið tíma- bært að endurskoða þessi laga- ávæði í ljósi reynslunnar,“ sagði forstjóri Barnaverndarstofu, „það er mitt sjónarmið að lög- reglan þurfi að eiga aðkomu að öllum málum þar sem grunur vaknar um kynferðisbrot gegn barni, ekki aðeins hluta þeirra. Gildandi lagareglur hamla því vissulega“. jss@frettabladid.is Vesturlandsvegur: Fallist á tvöföldun SAMGÖNGUR Skipulagsstofnun hefur fallist á að Vesturlandsvegur verði tvöfaldaður á svæðinu frá Víkur- vegi í Reykjavík að Skarhólabraut í Mosfellsbæ. Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar segir að áhrif tvöföldunarinnar á há- vaða á fyrirhuguðum íbúðarsvæð- um í nágrenni Vesturlandsvegar verði ásættanleg. Enn fremur megi fyrirbyggja að afrennsli vegarins fari óhreinsað í Úlfarsá og er sett sem skilyrði fyrir framkvæmdinni að ráðist verði í mótvægisaðgerðir. Niðurstöðuna má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 13. febrúar. ■ Engin eldsneytisvél: Ekkert óvenjulegt VARNARLIÐIÐ Engin eldsneytisvél er nú á Keflavíkurflugvelli á vegum bandaríska varnarliðsins og hafa spurningar vaknað um öryggismál og möguleika þyrlusveita til að halda á haf út. Friðþór Eydal, upp- lýsingafulltrúi varnarliðsins, segir að um sé að ræða eina vél sem sé reglulega skipt út. „Þessar vélar koma og fara eftir því sem þær eru tiltækar, en þær eru fáar og afar eftirsóttar. Ég bendi á að svona eldsneytisvélar eru einnig staðsettar á Bret- landseyjum þannig að ef okkar björgunarþyrlur þurfa að fara eitt- hvað langt þá er sá möguleiki alltaf fyrir hendi að þær mætist á leið- inni. Það hefur oft verið gert.“ ■ ÞÁTTASTJÓRNANDINN Robert Kilroy-Silk hefur í 17 ár stjórnað spjallþætti í BBC. Breskur þáttastjórnandi: Biðst afsökunar á ummælum LONDON, AP Breski þáttastjórnand- inn Robert Kilroy-Silk segist sjá mikið eftir orðum sínum, sem birt- ust í aðsendri grein hans í dagblað- inu Sunday Express. Þar sagði hann araba vera „sjálfsmorðs- sprengjumenn, aflimara, kvenna- kúgara“, og hafa þessi ummæli vakið hörð viðbrögð í Bretlandi. „Þetta var alhæfing um 200 milljón araba þar sem tólf sinnum er sagt að þeir séu allir, ekki sum- ir, morðingjar, allir stuðningsmenn Saddams Hussein, þeir séu allir sjálfsmorðsárásarmenn,“ sagði Trevor Phillips, formaður nefndar um jafnrétti kynþátta. Sjónvarpsstöðin BBC hefur tek- ið spjallþáttinn hans, Kilroy, af dagskrá um stundarsakir. ■             !"" ##$%&       '!'!    (  !      )  !#)     %&                                                         !     "  #      $       % &        % "    '()      % &  *        +     ,-.. ,/..                     *           0.     ,/  $    ,1 2 $ 3..4 (   )*    %  +,!  -0...        ! "#    #   #   $ Í STAÐ ÞJÓÐHAGSSTOFNUNAR Þjóðhagsstofnun var lögð niður um mitt ár 2002 og verkefni hennar færð til Hagstofu og fjármálaráðuneytisins. Alþýðusamband- ið fékk auknar fjárveitingar til efnahags- rannsókna og nú er komið að samtökum opinberra starfsmanna. BRAGI GUÐBRANDSSON Í fjölmörgum tilvikum hefur verið vandað um við barnaverndarnefndir. Ólögmætur sjávarafli: Röng sektar- upphæð SJÁVARÚTVEGUR Í frétt blaðsins í gær um gjald vegna ólögmæts sjávarafla var ranglega farið með þá upphæð sem lögð var á Stakka- vík í Grindavík vegna Clintons GK-46. Sektin sem Stakkavík var gert að greiða, nam 30.800 krón- um og leiðréttist það hér með. Samtals innheimti Fiskistofa í fyrra rúmar 100 milljónir króna af útgerðum vegna ólögmæts sjávarafla. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.