Fréttablaðið - 13.01.2004, Side 13

Fréttablaðið - 13.01.2004, Side 13
13ÞRIÐJUDAGUR 13. janúar 2004 Óðir hundar: Réðust á dreng FRANKFURT, AP Tveir rottweiler- hundar réðust á sjö ára dreng í Höchberg í Þýskalandi og særðu hann lífshættulegum sárum. Drengurinn var ásamt móður sinni og fjögurra ára bróður sínum fótgangandi á leið heim til sín þegar hundarnir réðust á hann og bitu. Móðir drengjanna og þrír fullorðnir menn reyndu eftir megni að koma hundunum burt frá drengnum. Meðal annars barði lögreglumaður á eftirlaunum hundana með staf. Loks tókst þeim að koma drengnum inn í hús og hringja þar á sjúkrabíl. Drengurinn liggur lífshættulega særður á sjúkrahúsi. ■ FILIPPSEYJAR Yfirvöld á Filipps- eyjum segja að um 25.000 manns séu heimilislaus eftir að þúsundir heimila urðu eldi að bráð í stór- bruna í Baseco-fátækrahverfinu í Manilla í fyrrinótt. Að sögn talsmanns yfirvalda er ekki vitað til þess að neinn hafi farist í brunanum en að minnsta kosti 23 munu hafa slasast eða hlotið brunasár, þar á meðal einn slökkviliðsmaður. Eldurinn kom upp um miðnætti að staðartíma og breiddist mjög hratt út en talið er að hann hafi gjöreytt öllum byggingum á um átján hektara svæði. Það tók slökkvilið að minnsta kosti sjö klukkustundur að ná tök- um á eldinum, en hverfið var aðal- lega byggt hreysum úr timbri og öðru eldfimu efni sem fuðraði upp. Einnig var erfitt að koma dælu- bílum í hverfið þar sem fáar öku- leiðir voru um hverfið og hreysin byggð svo að segja hvert ofan í öðru. Eldsvoðar eru algengir í fá- tækrahverfum Manilla og leikur grunur á að kviknað hafi í út frá kerti eða gasloga ■ Eldsvoði í Manilla: Tugir þúsunda heimilislausir ÚR BRUNARÚSTUNUM Þúsundir heimila eyðilögðust í brunanum í Manilla í fyrrinótt. Á GEIMBRAUT Lekinn sem orsakaði fallandi þrýsting er fundinn. Alþjóða geimstöðin: Lekinn fundinn GEIMURINN Sergei Gorbunov, tals- maður rússnesku geimferðastofn- unarinnar, segir að tekist hafi að finna lekann í alþjóðageimstöð- inni sem leiddi til fallandi loft- þrýstings inni í rými stöðvarinn- ar. Það fór að bera á fallandi loft- þrýstingi í stöðinni í lok síðasta mánaðar og reyndist lekinn vera í hosu í bandaríska hluta hennar. Geimfararnir tveir sem dvelja í stöðinni, Bandaríkjamaðurinn Michael Foale og Rússinn Alex- ander Kaleri, voru ekki taldir í hættu og að sögn Gorbunovs ætti þeim að takast að gera við bilun- ina á næstu dögum. Engin vara- leiðsla mun vera í geimstöðinni. ■ Í SÓTTKVÍ Karlmaður, 35 ára að aldri, greindist HABL- smitaður í Kína um helgina. Bráðalungnabólgan: Staðfesta þriðja smit KÍNA Kínverska heilbrigðis- ráðuneytið staðfesti í gær að þrið- ja HABL-tilfellið, síðan veikin greindist aftur í landinu fyrr í mánuðinum, hefði greinst í manni 35 ára að aldri í Guangdong- héraði um helgina. Maðurinn var þegar settur í einangrun á sjúkra- húsi og hefur að sögn lækna sýnt batamerki. Að sögn heilbrigðisyfirvalda er ekki vitað hvernig maðurinn smit- aðist en hann mun að sögn ekki hafa umgengist villt dýr sem ótt- ast er að beri smitið. Maðurinn var látinn gera grein fyrir ferðum sínum og hefur enginn sem hann hefur umgengist á undanförnum vikum greinst smitaður. ■ BITINN Í LJÓNAGRYFJU Ungur maður slapp með minniháttar meiðsl þegar ljón glefsuðu í hann eftir að hann stökk í ljónagryfju í dýragarðinum í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Þegar í gryfjuna var komið hélt hann jakka sínum út eins og skikkju nautabana og hugðist bregða á leik. Ljónin voru hins vegar fljót að bera hann ofurliði. ■ Ameríka

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.