Fréttablaðið - 13.01.2004, Page 18

Fréttablaðið - 13.01.2004, Page 18
■ Að utan heilsa o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um hei lbr igðan l í fsst í l Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heilsa@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Grænmetisnámskeið Verð kr. 4.900 Við kennum að versla inn hollt hráefni & elda gómsæta & næringaríka rétti úr grænmeti, baunum & tofu, að ógleymdum sykurlausum eftirréttum. Kennari er Sólveig á Grænum kosti Námskeiðsdagar í janúar: Fimmtudagur 22 jan. kl. 19-23. Fimmtudagur 29 jan. kl. 19-23. Skráning á námskeiðin & upplýsingar eru á vefsíðunni: www.hagkaup.is eða á Grænum Kosti í síma 5522607 Soprano-hálstöflur sem líta úteins og ópal, hálsmixtúra, fjallagrasahylki og fjalla- grasasnafs eru vörutegundir sem nýlega hafa rutt sér rúms á mark- aði og njóta aukinna vinsælda bæði hér á landi og erlendis. Þær eru framleiddar á vegum fyrir- tækisins Íslensk fjallagrös en af verktökum bæði úti um land og erlendis. Framkvæmdastjóri fyr- irtækisins er Sigríður Baldurs- dóttir líffræðingur. Hún segir margra ára vísindalegar rann- sóknir benda til að í fjallagrösum séu efni sem vinni gegn bakterí- um, veirum og krabbameinsfrum- um og mýki slímhúð í hálsi og maga. „Fólk á fyrri tíð vissi hvað það var að gera þegar það lagðist út á vorin til að tína grös og flutti þau heim í sekkjum. Trúin á lækn- ingamátt grasanna var ekkert út í hött,“ segir hún. Hún segir Soprano-töflurnar búnar til með tvenns konar bragði og njóta vinsælda söngfólks og annarra þeirra sem þurfi mikið að nota röddina. Þær séu búnar til hjá Nóa Siriusi en hjá fyrirtækinu Búbót á Húsavík sé hálsmixtúran framleidd sem góð sé við háls- bólgu og öðrum skyldum kvillum. Sú innihaldi ekki alkóhól og henti því börnum betur en aðrar. „Bú- bót sér um að safna þurrkuðum grösum frá fólki víða um land og framleiða úr þeim fjallagrasa- þykkni sem síðan er notað í bæði töflurnar og mixtúruna,“ segir Sigríður. Fjallagrasahylkin eru framleidd í Englandi vegna véla- skorts hér. Þau eru tvenns konar, annars vegar með grösum og hins vegar með grösum, sólhatti og engifer. Mikið dúndur, að sögn Sigríðar. Fjallagrasasnafsinn er brugg- aður hjá Engjaási í Borgarnesi og fæst einungis í Íslenskum mark- aði í hálfs lítra flöskum. „Hann selst ansi vel. Útlendingum finnst þetta spennandi afurð og Íslend- ingar kippa oft með sér þessum lífselexír handa vinum erlendis. Enda er bragðið rammíslenskt,“ segir Sigríður. ■ Í hinni fornfrægu bók BhagavadGíta (sem er einnig til undir nafninu Hávamál Indíalands) seg- ir Krishna við Arjúna að maður- inn sé og verði það hann hugsar ávallt um. Í gegnum aldirnar hafa þessi orð endurómað í kenningum margra heimspekinga og í dag heyrum við þau meðal annars í ræðum fyrirlesara um heilsu, markmiðasetningu og fjármála- stjórn. Þú ert það sem þú hugsar! Á þeim nótum er áhugavert að skoða tilhneigingu okkar til að einblína á það sem við ætlum að hætta að gera. Ef við ætlum til dæmis að hætta að reykja – og einblínum á það – er líklegt að löngun okkar til að halda áfram aukist. Hvers vegna? Það sem við hugsum stöðugt um magnast! Með því að hugsa ekki um það sem við viljum heldur um það sem við viljum ekki verður niðurstað- an sú sama hvort sem við ætlum að hætta að borða nammi, losa okkur við nokkur kíló eða hætta að drekka, svo eitthvað sé nefnt. Lausnin felst í því að hugsa stöðugt um það sem maður vill í stað þess að hugsa um það sem maður vill ekki. Í staðinn fyrir að vera sífellt að hætta einhverjum ósiðum ætti maður að taka upp góða siði. Ef maður vill til dæmis breyta um mataræði ætti maður fyrst og fremst að hugsa um það sem maður vill borða í stað þess að vera upptekinn af því sem mað- ur má ekki eða ætti ekki að borða. Þess vegna ættu markmið og ára- mótaheit ekki að snúast um að hætta einhverri hegðun, heldur að byrja á einhverju nýju. gbergmann@gbergmann.is SIGRÍÐUR BALDURSDÓTTIR Hefur tröllatrú á íslenskum fjallagrösum. VEIKINDAFJARVISTIR VEGNA GEÐRASKANA Æ stærra hlut- fall allra veikindafjarvista á Norðurlöndunum er vegna geðraskana en óþægindi frá stoðkerfi eiga einnig stóran hlut að máli. Þetta kemur fram í bæklingi sem nýbúið er að gefa út samtímis í Nor- egi, Svíþjóð, Danmörku og á Íslandi. Veikindafjarvistir hafa aukist mikið á Norður- löndum á síðustu árum en í bæklingnum er bent á ýmis- legt sem unnt er að gera til að draga úr þeim. Íslenski bæklingurinn er gefinn út af Vinnueftirlitinu. Slóðin þang- að er: www.ver.is Líkamiog sál GUÐJÓN BERGMANN ■ jógakennari og rithöfundur skrifar um andlega og líkamlega heilsu. Íslensk fjallagrös framleiðir heilsuvörur og snafs: Bragðið er rammíslenskt Ekki hætta, byrjaðu! FÉLAGIÐ HAMSKIPTI STOFNAÐ Nýlega sagði Fréttablaðið frá konu í Kaliforníu semmissti alla húðina af líkamanum af völdum illvígs ofnæmis fyrir sýklalyfi en tókst að bjarga. Hér á landi hafa yfir 10 manns lent í svipuðum atvikum vegna slíks ofnæmis og nokkrir þeirra hyggja á stofnun samtaka. Þau eiga að heita Hamskipti. Samtökin verða angi úr félagi ofnæmissjúklinga. Þeim sem hafa áhuga á þátttöku er bent á að hafa samband við Helga Hafsteinsson sem hefur net- fangið: hildur.helgi@isl.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.