Fréttablaðið - 18.01.2004, Blaðsíða 13
13SUNNUDAGUR 18. janúar 2004
Söngvarinn bláeygi, Geir Ólafs-son, byrjaði með nýjan þátt á
Útvarpi Sögu í síðustu viku og það
má segja að um leið hafi hann
byrjað í stífu líkamsræktar-
prógrammi þar sem honum er illa
við lyftur og stúdíóið er á þrett-
ándu hæð Húss verslunarinnar.
„Ég hleyp þetta upp og niður
svona þrisvar á dag og finn ekkert
fyrir þessu, verð ekki einu sinni
móður þó ég fari nokkrar ferðir í
röð,“ segir Geir sem forðast lyft-
ur í lengstu lög. „Ég lenti í því
þegar ég var lítill að lokast inni í
lyftu og hef aldrei unnið almenni-
lega úr þeirri lífsreynslu. Ég ætla
fara að vinna í þessu máli í róleg-
heitum á minn hátt fljótlega,“ seg-
ir Geir sem er svo illa við lyftur
að hann spurði hvort hann gæti
notað stiga þegar hann heimsótti
The World Trade Center í New
York fyrir nokkrum árum.
„Maðurinn missti auðvitað
andlitið og sagði mér að það
myndi taka mig svona um það bil
sex klukkutíma að labba upp og
ekki minna en þrjá að komast nið-
ur. Þannig að ég lét mig hafa það
að taka lyftuna. Ég verð auðvitað
að gera eitthvað í þessu en þetta
er allt í lagi á meðan ég er heilsu-
hraustur og get hlaupið.“
Þáttur Geirs heitir Þyrl og er á
dagskrá Sögu klukkan 15 á laugar-
dögum en tilgangur þáttarins er að
opna augu Íslendinga fyrir því að
það er fleira hæfileikafólk á bak
við diskana sem við kaupum en
bara söngvararnir sem eru alltaf í
forgrunni. „Í þættinum tala ég ein-
göngu við hljóðfæraleikara sem
hafa verið lengi í bransanum,“ seg-
ir hinn íslenski Frank Sinatra sem
lætur ekkert slá sig út af laginu
nema þá helst lyftuferðir. ■
Tröppugangur
GEIR ÓLAFSSON
■ Sveiflukóngurinn er hræddur við lyftur
og er því á stöðugum hlaupum á milli
hæða í Húsi verslunarinnar eftir að hann
hóf störf hjá Útvarpi Sögu.
Lyftuhræðslan ekki vandamál
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON
Bæjarstjórinn á Akureyri hefur haft nokkrar
áhyggjur af sölu ÚA og áhrif þess á bæjar-
félagið. Í frístundum sínum finnst honum
best að lesa góðar bækur og veiða fisk á
flugu.
??? Hver?
Bæjarstjóri á Akureyri með öllum hans
kostum og göllum.
??? Hvar?
Staddur í Reykjavík.
??? Hvaðan?
Akureyri, Dalvík.
??? Hvað?
Veiði fisk á flugu.
??? Hvers vegna?
Það veitir manni andlega og líkamlega
útrás. Hugsvölun í náttúru landsins og
algjör hvíld frá daglegu amstri.
??? Hvernig?
Veiði mest andstreymis, bæði í veiði-
vatni og í daglegu starfi.
??? Hvenær?
Á flugu veiði ég á mestan part yfir sum-
armánuði, en annar veiðiskapur stendur
alla aðra mánuði ársins.
■ Persónan
■ Nýjar bækur
GEIR ÓLAFSSON
Stjórnar þættium Þyrl á Útvari Sögu FM 99,4
og hleypur upp og niður 13 hæðir nokkrum
sinnum á dag í stað þess að taka lyftu.
Ný og endurbætt útgáfa bókar-innar Siðfræði lífs og dauða
eftir Vilhjálm Árnason prófessor
er komin út. Í bókinni fjallar Vil-
hjálmur um öll helstu siðferðileg
álitamál í heilbrigðisþjónustu á
ítarlegan en aðgengilegan hátt.
Hann greinir ýmis lykilhugtök
mannlegs siðferðis og leitast við
að jarðtengja þau með umfjöllun
um einstök vandamál sem upp
koma við umönnun sjúkra og
deyjandi, og við mótun heilbrigð-
isstefnu. Rauði þráðurinn í mál-
flutningi Vilhjálms er krafan um
að virða sjúklinginn sem mann-
eskju. Í því skyni þurfi fagfólk í
heilbrigðisþjónustu að temja sér
samráð við sjúklinga, ástunda
samræður sem miða að gagn-
kvæmu trausti.
Siðfræði lífs og dauða var til-
nefnd til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna 1993 og sama ár
hlaut höfundur viðurkenningu
Hagþenkis fyrir bókina.
A.A. MILNE
Höfundur hinna sívinsælu bóka um
Bangsímon fæddist á þessum degi árið
1882.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
18. janúar