Fréttablaðið - 18.01.2004, Qupperneq 24
24 18. janúar 2004 SUNNUDAGUR
Stafagátan
31
148
4
7
711
142914
14
14624
28149
7
28
32
19
19
14
28
9
19
22
18
31
14
26
28
32
3
3
15
31
14
15
1
7
11
6
27
28
20
1 14
7
142612
32
28147
4
10
17 433
2128
32332
3
16
28
13
6
17156
2628
25
4282171431562824
28
23
1
7
4
6
9
19
13
5
19
17162230
GÁTAN hér að ofan er í ætt við svonefnda hjartagátu sem margir kannast við. Gefið er eitt orð og stafina í
því orði seturðu í gátuna þar sem sömu tölustafi er að finna. Það er svo þitt að finna aðra stafi og þegar
því er lokið er auðvelt að fylla út lausnarorðið hér fyrir neðan sem er kvenmannsnafn. Í gátunni er að
finna alla stafi íslenska stafrófsins nema c, z, q og w. Lausnarorð síðustu gátu var: Pálmar
LAUSNARORÐIÐ ER: 16 14 7 7 15 11
H ÐRÖ
Krossgátan
Lárétt: 2 hægur, 6 óstýrilát, 7 tindra, 9 lengra frá, 12 stólpar, 13 myndarskap, 15 færnin, 18 leika á, 20 hæglæti, 22 verkfæri,
23 annað nafn á Þrándheimi.
Lóðrétt: 1 kraftur, 2 gera grein fyrir, 3 værukær, 4 lofaðar, 5 skortur, 8 maurapúkar, 10 band, 11 spilltur, 12 krydd, 13 mugga,
14 var að kveðja, 16 reiður, 17 nirfill, 19 gljáhúð, 21 að utan.
1
14
21
17
1110
16
23
20
15
22
18
13
8
15
6
19
12
7
432 5
Lausn.
Lárétt:2rólegur, 6óþekk,7leiftra,9aftar, 12staurar, 13mannsbrag,15leiknin,18plata,20rólyndi,22skæri,23niðarós.
Lóðrétt:1afl,2reifa,3latur, 4rómaðar, 5ekla,8aurasálir, 10taug,11rotinn,12sinnep,13móða,14nýfarin,16illur, 17nánös,
19lakk,21inn.
Myndlist vikunnar er ljós-myndaverkið The Glaciar
series eftir Ólaf Elíasson frá ár-
inu 1999. Listasafn Íslands keypti
verkið árið 2001 á tæpar tvær
milljónir.
Ólafur lærði við Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmannahöfn
á árunum 1989–’95. Hann hefur frá
unga aldri búið erlendis en íslensk
náttúra er þó aldrei langt undan í
list hans, hvort sem um er að ræða
ljósmyndir eða rýmisverk. Í verk-
um sínum setur Ólafur ýmis nátt-
úrufyrirbæri í nýtt samhengi og
beinir um leið athygli áhorfandans
að mismunandi skynjun eða upplif-
un á fyrirbærum eins og þoku, ís,
vindi og vatni. Með hjálp tækninn-
ar lyftir hann náttúrufyrirbærum
úr sínu eðlilega umhverfi og inn í
listheiminn og um leið gerir hann
áhorfandanum kleift að upplifa
eigin skynjun á þessum náttúru-
fyrirbærum á nýjan hátt.
Ljósmyndaverk Ólafs saman-
standa af mörgum myndum af
sama fyrirbæri, til dæmis brúm,
ám eða jöklum þar sem hver ein-
stök mynd fangar viðfangsefnið á
ákveðnum tíma og ákveðnum stað
og myndar því tilbrigði við sama
stef. Ljósmyndunum raðar Ólafur
síðan saman til að kalla fram eina
heildarmynd sem dregur upp
mörg sjónarhorn og leiðir í ljós þá
umbreytingu sem stöðugt á sér
stað í náttúrunni.
Ólafur Elíasson beinir sjónum
okkar að náttúrunni en um leið
minnir hann okkur á mannlega til-
vist með því að nýta sér þau tæki og
þá tækni sem tilheyra menningu
okkar. Jafnvel yfirlitsmyndir hans
af jöklum Íslands, sem við fyrstu
sýn virðast ekki tengjast neinum
mannlegum mætti, má tengja við
mannleg viðmið því aðeins með
hjálp flugvélar hefur hann getað
tekið þessar myndir. Hinar ómældu
víddir óbyggðanna tengjast þannig
mannlegum viðmiðum. ■
Myndverk vikunnar
Náttúrufyrirbæri með
mismundandi skynjun
THE GLACIAR SERIES
Höfundur er Ólafur Elíasson. Með verkum sínum setur hann ýmis náttúrufyrirbæri í nýtt
samhengi og beinir um leið athygli áhorfandans að mismunandi skynjun eða upplifun á
fyrirbærum eins og þoku, ís, vindi og vatni.
Maðurinn er ...
Um hann er spurt á blaðsíðu 18.Að sjálfsögðu er þetta enginn
annar en sjónvarpsmaðurinn
knái Sigmar Vilhjálmsson,
betur þekktur sem Simmi,
sem hefur farið á kostum í
kynnishlutverkinu í Idol-
stjörnuleit ásamt Jóa.
Sigmar hefur vaxið gríð-
arlega sem fjölmiðlamaður en
hann hóf feril sinn í 70 mínútum á
Popptívi ásamt Jóa. Saman
myndar þeir Jói eitt
skemmtilegasta par sjón-
varpsins. Auk þess að
kynna Idol hefur Sigmar
unnið við markaðsstörf hjá
Popptívi. ■
Sigmar Vilhjálmsson