Fréttablaðið - 18.01.2004, Síða 33
33SUNNUDAGUR 18. janúar 2004
FÓTBOLTI Úlfarnir stálu senunni í
enska boltanum í gær þegar þeir
lögðu meistara Man. Utd á
Molineux-vellinum. Kenny Miller
gerði eina mark leiksins rúmum
20 mínútum fyrir leikslok. United
gerði allt hvað þeir gátu til þess
að jafna leikinn en heimamenn
vörðu mark sitt með kjafti og
klóm og því tókst meisturunum
ekki að koma boltanum í markið
hjá slökustu vörn deildarinnar.
Dave Jones, stjóri Wolves, var
hæstánægður með sína menn eins
og gefur að skilja. „Þetta er stór-
kostlegur sigur fyrir alla hjá
félaginu því það gefur mönnum
von um að það sé hægt að bjarga
sér. Ég hef margoft sagt það að ef
menn trúa einhverju nógu mikið
þá getur allt gerst,“ sagði Jones
sem valdi Jóhannes Karl Guðjóns-
son ekki í leikmannahóp sinn að
þessu sinni.
Sir Alex Ferguson var stein-
runninn þegar breskir blaðamenn
spjölluðu við hann eftir leikinn.
„Mér fannst þetta ekki slakur leik-
ur hjá okkur en við urðum örvænt-
ingarfullir eftir að þeir skoruðu.
Ég gagnrýni mína menn bara fyr-
ir að hafa ekki nýtt færin betur og
er ekki á því að þetta hafi verið
annars flokks frammistaða í dag.“
Liverpool olli einnig vonbrigð-
um í gær þegar þeir töpuðu fyrir
Tottenham á White Hart Lane.
Liverpool virkaði mjög andlaust í
leiknum og aldrei líklegt til af-
reka. Þeir hefðu reyndar átt að fá
víti á lokamínútunni en fengu ekki
og urðu því að sætta sig við sjö-
unda tap sitt í vetur.
Mesta fjörið var þó í leik Midd-
lesbrough og Leicester á
Riverside. Boro tók forystuna
snemma í leiknum en Leicester
svaraði með þrem mörkum. Það
var síðan á lokamínútunni sem
Boro tók hressilegan dauðakipp.
Fyrst minnkaði Maccarone mun-
inn og John Curtis var svo fyrir
því mikla óláni að setja boltann í
eigið net rétt áður en flautað var
til leiksloka. Sorgleg niðurstaða
fyrir Leicester sem mátti ekki við
því að missa af þessum stigum. ■
Reykjavíkur
Þróttur bik-
armeistari
BLAK Þróttur frá Reykjavík
tryggði sér í gær bikarmeistar-
titilinn í kvennaflokki þegar þær
lögðu stöllur sínar í KA í fimm
hrinu leik.
KA hafði leikinn lengstum í
höndum sér og þær höfðu góða
forystu í fjórðu hrinunni. Þá tóku
Þróttarstúlkur sig saman í andlit-
inu og með ótrúlegri seiglu tókst
þeim að koma sér inn í fjórðu hri-
nuna og sigra hana, 26-24. Það
var aðeins eitt lið á vellinum í
oddahrinunni því Þróttarstúlkur
fóru þar með öruggan sigur af
hólmi, 15-6. ■
STAÐAN
Man. United 22 16 2 4 40:15 50
Arsenal 21 14 7 0 40:14 49
Chelsea 21 14 3 4 40:17 45
Charlton 22 10 7 5 31:23 37
Liverpool 21 9 5 7 31:23 32
Fulham 21 9 4 8 33:29 31
Newcastle 21 7 9 5 27:22 30
Southampton 22 8 6 8 21:18 30
Birmingham 20 8 5 7 21:25 29
Bolton 22 7 8 7 26:33 29
Aston Villa 21 7 6 8 21:25 27
Tottenham 22 8 3 11 26:31 27
Middlesb 21 6 7 8 20:26 25
Everton 22 6 6 10 25:29 24
Man. City 22 5 8 9 31:33 23
Blackburn 22 6 5 11 32:36 23
Portsmouth 22 6 4 12 25:33 22
Leicester 22 4 8 10 31:38 20
Wolves 21 4 6 11 19:43 18
Leeds 22 4 5 13 19:44 17
ÚRSLIT
Wolves-Man. Utd 1-0
1-0 Kenny Miller (67.).
Bolton-Portsmouth 1-0
1-0 Kevin Davies (53.).
Everton-Charlton 0-1
0-1 Graham Stuart (41.).
Man. City-Blackburn 1-1
1-0 Nicolas Anelka (54.),
1-1 Garry Flitcroft (57.).
Middlesbrough-Leicester 3-3
1-0 Juninho (9.), 1-1 Paul Dickov (49.),
1-2 Paul Dickov (65.), 1-3 Marcus Bent
(76.), 2-3 Massimo Maccarone (90.),
3-3 John Curtis, sjm (90.).
Southampton-Leeds 2-1
1-0 Brett Ormerod (36.), 2-0 Kevin
Phillips (43.), 2-1 Matthew Kilgallon (76.).
Tottenham-Liverpool 2-1
1-0 Robbie Keane, víti (22.), 2-0 Helder
Postiga (54.), 2-1 Harry Kewell (75.).
LEIKIR DAGSINS
Aston Villa-Arsenal
Chelsea-Birmingham
HETJA ÚLFANNA
Kenny Miller fagnar hér fyrsta marki sínu fyrir Wolves í vetur. Það reyndist í meira lagi
mikilvægt því það nægði til þess að leggja meistara Man. Utd.
Úlfarnir bitu frá sér
Lögðu meistara Man. Utd. Spurs lagði Liver-
pool og Middlesbrough náði ævintýralegu
jafntefli gegn Leicester.
Eyjastúlkur í góðum málum:
Stórsigur gegn Etar
HANDBOLTI Eyjastúlkur eru á hrað-
ferð í næstu umferð í Áskorenda-
keppni Evrópu eftir stórsigur á
búlgarska liðinu Etar Veliko 64,
38-16, í fyrri leik liðanna.
Óhætt er að segja að Eyjastúlk-
ur hafi verið mörgum skrefum á
undan stöllum sínum frá Búlgaríu
á öllum sviðum handboltans því
strax frá fyrstu mínútu var ljóst
hvert stefndi. Heimamenn hrein-
lega keyrðu yfir Etar frá því blás-
ið var til leiks og þegar gengið var
til búningsherbergja var staðan
19-8 fyrir ÍBV. Sama keyrsla var í
síðari hálfleik og stórsigur því
staðreynd.
Ana Yakova var yfirburða-
manneskja í liði ÍBV með 12 mörk
og Guðbjörg Guðmannsdóttir
gerði sex. Alla Gorkorian skoraði
fimm og Birgit Engl fjögur. ■
GÓÐAR
Alla Gorkorian og Ana Yakova voru sterkar
í liði ÍBV í gær.
RE/MAX-deild kvenna:
Stjarnan missti af
mikilvægum stigum
HANDBOLTI Þrír leikir fóru fram í
RE/MAX-deild kvenna í gær.
Stjarnan og Víkingur áttust við í
Garðabæ, FH tók á móti Gróttu/KR
í Hafnarfirði og Valsstúlkur ferðuð-
ust norður í land til þess að leika
gegn liði KA/Þórs.
Stjarnan á í harðri baráttu við
Hauka um þriðja sætið í deildinni
og mátti því illa við að tapa í gær.
Það gerðu þær samt því Víkings-
stúlkur mættu gríðarlega vel
stemmdar til leiks og fóru með sig-
ur af hólmi, 19-18, í miklum spennu-
leik. Stjarnan er því eftir sem áður í
fjórða sæti deildarinnar en Víking-
ur er í því sjötta.
Öllu minni spenna var þó í Hafn-
arfirði þar sem FH fór illa með
Gróttu/KR. Gestirnir af Seltjarnar-
nesi sáu aldrei til sólar í leiknum og
töpuðu, 30-21. FH er því í fimmta
sæti deildarinnar en Grótta/KR í
sjöunda sæti.
Ferðalagið norður fór ekki illa í
Valsstúlkur því þær léku við hvern
sinn fingur á Akureyri og unnu stór-
an sigur, 29-20, og eru því enn í
toppsæti deildarinnar en KA/Þór er
sem fyrr í áttunda sæti. ■