Fréttablaðið - 18.01.2004, Page 37

Fréttablaðið - 18.01.2004, Page 37
SUNNUDAGUR 18. janúar 2004 37 FÓLK Leikarinn Sean Penn fór til Íraks í nóvember síðastliðnum og skrifar nú um ástandið þar í pistli bandaríska dagblaðsins San Francisco Chronicle. Í fyrstu grein sinni um ferð sína lýsti hann ástandinu í landinu við púður- tunnu. „Þetta er hernumið land. Land sem á í stríði. Margir Írakar sem ég talaði við sögðu að það væri ekkert frelsi í þessu ástandi, né traust til þess að einhliða lausn náist,“ skrifaði Penn meðal ann- ars í fyrstu greininni. „Fyrir íbúa Bagdad og varnarliðið, er óreiðan og stjórnleysið á götum úti raun- veruleg ógn.“ Ritstjóri blaðsins, Phil Bron- stein, sagði að Penn fengi greidd venjuleg blaðamannalaun fyrir skrif sín en ferðina til Íraks hefði hann kostað sjálfur. Penn er þekktur friðarsinni og stjórnarandstæðingur og hefur meðal annars keypt heilsíðu aug- lýsingar í blöðum til þess að mót- mæla ákvörðunum ríkisstjórnar Bandaríkjanna. Penn ferðaðist fyrst til Bagdad í desember árið 2002. Hann sneri svo aftur viku fyrir handtöku Saddams Hussein til þess að kynna sér hvort lífs- mynstur íbúa hefði breyst. ■ 70 MÍNÚTUR Í SMÁRALIND Það var mikið um sprell í Smáralindinni á laugardag þegar þáttastjórnendur 70 mínútna kynntu nýjan liðsmann í hópinn og kostunaraðila. George Clooney er pirraðurþessa dagana. Ástæðan er að sú saga er komin á kreik í Hollywood að hann og kærasta hans Krista Allen eigi von á barni. Clooney er búinn að hafa mikið fyrir því að sannfæra alla um að kærastan hans sé ekki ófrísk og að hún hafi ekki verið ófrísk frá því að hún eignaðist son sinn fyrir sex árum síðan. Halle Berry hefur leitað sér sál-fræðihjálpar vegna sífelldra karlavandræða sinna. Hún hefur verið einstaklega óheppin þegar kemur að því að velja þann rétta. Síðasti eiginmaður hennar hélt fram hjá henni, annar kærasti barði hana svo illa að hún missti heyrn á hægra eyra og fyrsta hjónaband hennar endaði svo illa að hún neyddist til þess að fá nálg- unarbann á manninn. Stúlk- an er nú í mikilli sjálfsskoðun og kannar hver hen- nar þáttur sé í þessu öllu saman. Lögfræðingar Michaels Jacksonunnu lítinn sigur daginn áður en réttarhöldin yfir popparanum hófust. Þeir komu því í gegn að lög- reglan þyrfti að gefa nákvæman lista yfir þá muni sem voru fjarlægð- ir af heimili Jacksons þegar lög- reglan gerði húsleit á Neverland, búgarði hans. Mikil leynd hafði verið yfir því hvaða hlutir voru teknir. Í öðrum frétt- um af Jackson er að hann hefur nú greint frá því að tvö eldri börn sín séu af gyðingaættum. Penn skrifar um Írak SEAN PENN Hefur verið orðaður við óskarstilnefningu í ár fyrir leik sinn í Mystic River. Fréttiraf fólki FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.