Fréttablaðið - 18.01.2004, Qupperneq 38
Ég er reiður 38 18. janúar 2004 SUNNUDAGUR
Óttar Felix Hauksson, plötuútgef-andi hjá Sonet, er einn þeirra
sem guðirnir ákváðu að veita lítinn
frítíma. Það ætti því engan að undra
að þegar kemur loksins að því að
hann á frí, veit hann alveg hvernig
hann vill eyða því.
„Á sumrin fer ég að veiða þegar
ég á frí,“ segir Óttar. „Við erum
með lítinn klúbb sem heitir Top of
the Line Angling Club. Þar eru kall-
ar úr tónlistinni. Síðastliðið sumar
fór hópur sem kallast rythmagítar-
leikarahollið í Fljótánna. Það voru
fjórir rythmagítarleikarar og einn
sólógítarleikari sem fékk að fljóta
með. Þetta voru Björgvin Halldórs-
son, sem er formaður klúbbsins, ég,
Birgir Hrafnsson og Einar Bárðar-
son. Sólógítarleikarinn var Örn
Hjálmarsson, veiðimaður hjá Úti-
lífi. Við reynum að fara helst tvo til
þrjá túra á sumri.“
Óttar nýtir frítíma sinn á
sumrin svo í það að fylgjast með
boltanum og Valur er hans lið. „Á
veturna þá held ég mig meira inni
fyrir og tek frekar upp á því að
tefla skák eða lesa bók. Síðan fer
ég á tónleika eða stunda eitthvað
annað menningartengt.“
Lengri frí notar hann til þess að
ferðast og það er ekki bara
Robertino sem heillar hann við
Miðjarðarhafssvæðið. „Ég hef
verið að fara til Ítalíu, Kanada,
Asíu og Grikklands. Ég er mjög
hrifinn af Miðjarðarhafssvæðinu.
Það er tært loftið og mátulega
temprað.“ ■
Frídagurinn
ÓTTAR FELIX HAUKSSON
■ stundar veiðar, les bækur, teflir
eða ferðast til Miðjarðarhafs-
svæðisins þegar hann á frí.
„...vegna þess að það er offjölg-
unarvandamál í heiminum og ég
sem þoli ekki fólk. Ég þekki allt
of mikið af fólki nú þegar,“ segir
Hugleikur Dagsson, myndlistar-
maður og gagnrýnandi.
Fréttiraf fólki
Veiðir með gítarleikurum
Ólíkir menningarheimar haldaáfram að blandast saman við
Kárahnjúka en á
þriðjudaginn
hófst ítölsku-
kennsla fyrir út-
lendinga í Kára-
hnjúkaskóla.
Kennslan er
ókeypis og fer
fram í skólanum
á þriðjudögum
og fimmtudögum klukkan 19.30 til
21 næstu sex mánuði. Kennd verða
undirstöðuatriði í ítölsku máli og
málfræði, en markmið kennslunnar
er að nemendurnir geti bjargað sér
á ítölsku. Þetta er viðbragð við
ákveðinni eftirspurn, bæði frá Ís-
lendingum og erlendum verka-
mönnum sem hyggja á aukinn
frama hjá Impreglio. Verkamenn-
inrir hafa öllu minni áhuga á ís-
lenskukennslu enda gera þeir fæst-
ir ráð fyrir að festa rætur í kuldan-
um. Það er hins vegar talið að sam-
skipti kynjanna ráði mestu um
áhuga Íslendinga á ítölskunni en
eins og náttúrulögmálin gera ráð
fyrir munu sambönd Íslendinga og
Ítala bera ávöxt í framtíðinni og þá
er eins gott að tungumálaörðug-
leikar flækist ekki fyrir.
Jón Ársæll Þórðarson ætlar aðfylgjast með ídolunum þremur
sem kepptu til úrslita í Stjörnuleit-
inni á föstudaginn í þætti sínum
Sjálfstætt fólk á Stöð 2 í kvöld.
Eins og alþjóð veit stóð Karl B.
Guðmundsson uppi sem sigurveg-
ari en frægðarsólin mun sjálfsagt
einnig skína á þau Önnu Katrínu og
Jón Sigurðsson þannig að Jón Ár-
sæll lítur á þau öll sem sigurvegara
og sá sér þannig leik á borði og for-
vitnaðist um áhrif nýfengnar
frægðar á krakkana áður en endan-
leg úrslit lágu fyrir.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6:
1.
2.
3.
Anna Katrín.
Henri Paul.
Martin Lúther King.
Létu hafið teikna myndir
Þegar stuðlaberg myndast þá erþað oftast af því að ís er yfir
og þegar vatn fer inn í steininn og
frýs þá brotnar steinninn niður.
Þá kristallast bergið. Þetta kalla
jarðfræðingar Frost Activity,“
segir Ólafur Elíasson myndlistar-
maður. „Frost Activity“ er einmitt
yfirskrift sýningar hans í Hafnar-
húsinu við Tryggvagötu sem opn-
uð var í gær. „Frostveðrun“ heitir
þetta á íslensku.
„En þetta er svolítið opið hugs-
að líka,“ bætir Ólafur við. „Frost
er náttúrlega eitthvað sem er fast
og frosið, en activity er hreyfing.
Og það er einmitt það ástand sem
Ísland er oft í, að vera í frosnu
samfélagi, ekki síst í veðri eins og
núna, en samt er fólk alltaf að
gera eitthvað.“
Skammt er stórra högga á milli
hjá Ólafi, því í dag opnar hann í
Hafnarborg í Hafnarfirði aðra
sýningu. Ekki á eigin verkum,
heldur á myndlist föður síns, Elí-
asar Hjörleifssonar, sem lést árið
2001 aðeins 55 ára að aldri.
„Pabbi er sjómaður úr Hafnar-
firði og listamaður líka. Hann lifði
ekki á listinni, en var samt alltaf
með stóra vinnustofu og ég nátt-
úrlega ólst upp í vinnustofunni
hans og var alltaf í dótinu hans, í
málningunni og teikningunum.
List okkar fór í ólíkar áttir, en oft
átti hún upptök sín í sömu hug-
myndinni sem við höfðum verið
að ræða okkar á milli. Eins og til
dæmis hvað er hljóð og af hverju
er hljóð til. Þetta voru svona
ákveðnar grundvallarhugmyndir.
Samskipti milli okkar voru alltaf
mikil.“
Á sýningunni í Hafnarfirði eru
nokkur verk sem þeir feðgar
gerðu saman.
„Þarna eru nokkrar teikningar
sem við máluðum yfir, hann mál-
aði yfir mig og ég málaði yfir
hann. Þarna eru líka önnur verk
sem við gerðum saman seinna.
Þetta var ákveðin teiknihugmynd
sem við þróuðum saman en hann
fór svo af stað með og var að búa
til þessar myndir úti á sjó. Hug-
myndin var sú að nota veltinginn
á bátnum til þess að láta penna
eða kúlu teikna mynd, sem þá var
orðin einhvers konar teikning af
yfirborði sjávarins og hreyfing-
um skipsins.“ ■
ÓLAFUR Á SÝNINGU SINNI Í HAFNARHÚSINU
Ólafur Elíasson opnaði í gær stóra sýningu í Hafnarhúsinu í Reykjavík.
Ung ráð
Kynlíf fyrir
fíkniefni?
Dagbjört Hákonardóttir
19 ára, nemi í MH
Ég er svo einangruð að ég þekki ekk-ert til neins sem er í þessari stöðu.
Ég á yngri systur
sem hafa heyrt eitt-
hvað svona slúður,
en ég kaupi það
ekki allt. Ég kaupi
heldur ekki hvað
sem er sem ég les í
blöðunum. Ég er
svo heppin að ég er
ekkert í þessu.“
Diljá Mist Einarsdóttir
16 ára, nemi í Versló
Það er orðið það mikið um þetta aðég held að það verði flestir varir við
þetta. Það er kominn tími til þess að
við spyrjum okkur hvað eigi að gera
við vandanum. Það þarf að beina
þessari spurningu að stjórnvöldum.
Þau eru að bregðast þessum krökkum
í því hlutverki sem þau eiga að gegna.
Til dæmis að þau séu að loka þessum
og hinum stöðum sem þessir krakkar
geta leitað til. Það er verið að loka
nauðgunarmóttökum á spítölum og
annað. Það er mesta hneykslismálið
að þessir krakkar hafi ekkert að leita til
þegar verst stendur á hjá þeim.“
Agnar Burgess
20 ára, nemandi í MR
Ég hef ekki orðið var við þetta. Effólk vill stunda vændi þá er það
þess mál. En þegar
þetta er komið út í
það að litlar stelpur
eru komnar út í
þetta til þess að afla
sér inn peninga eða
húsaskjóls þá er
þetta komið út í
rugl. Mér er slétt sama um vændi ef
haldið er rétt utan um það en þegar
fólk er ekki að gera þetta af fúsum og
frjálsum vilja þá erum við komin á
hálan ís. Til þess að losna við svona
væri góð byrjun að útrýma dópi en
það er ekkert sem lögreglan getur tek-
ið að sér. Það þarf sameiginlegt átak
allra í þjóðfélaginu til þess.“
Sindri Eldon
18 ára, nemandi Borg-
arholtsskóla
Ég vildi óska að ég myndi fá slík til-boð. Nei, nei... þetta hefur engin
áhrif á mitt umhverfi og ég verð ekkert
var við þetta. Þetta kom mér alveg í
opna skjöldu ég vissi ekkert af þessu.
Ég aðhyllist ekki þennan lífsmáta, svo
vægt sé tekið til
orða. Ég hef
alltaf litið á það
þannig að það
fólk sem kemur
sér út í svona
vitleysu það er
þarna út af því
að það hlýtur
að hafa viljað
það á einhvern
hátt. Það er
ekki eins og maður vakni bara upp
einn daginn og lendi í þessu, maður
fer út í svona sjálfur. Þetta byrjar á fikti
og endar í svona rugli. Til að verja sig
fyrir þessu þarf fólk að vera ekki eins
trúgjarnt og það er. Fólk mætti alveg
vera aðeins svartsýnna og draga góð-
mennsku fólks í efa, því það eru ekk-
ert allir voðalega góðir. Ég held að það
að treysta fólki sem á ekki að treysta
hafi komið fólki í mikil vandræði, sér-
staklega hérna á Íslandi.“
ÓTTAR FELIX
Er á leiðinni á tónleikahátíðina á Midem í lok janúar.
SJÁLFSMYND FÖÐUR
Þessi sjálfsmynd, sem Elías Hjörleifsson
gerði, er meðal verka á yfirlitssýningu á
verkum hans sem opnuð verður í Hafnar-
borg í Hafnarfirði í dag. Ólafur sonur hans
hefur valið verk á þá sýningu
í minningu föður síns.
Neeeiii...
Rocky
HVAAA???!! Má maður ekki tala um
negrakossa lengur?! Er þá ekki heldur hægt
að fá sér franskar kartöflur, Alaskalax,
belgískar vöfflur, sviðakjamma eða spila á
júðahörpu??
Sjaldan fellureplið...
ÓLAFUR ELÍASSON
■ fékk myndlistina beint í æð frá föður
sínum, Elíasi Hjörleifssyni, sem sinnti
myndlistinni samhliða sjómennsku. Elías
lést árið 2001, aðeins 55 ára gamall. í dag
opnar Ólafur sýningu á verkum föður síns.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ríkissjónvarpið hefur legið und-ir ámæli fyrir að hafa boðið
greiðendum afnotagjalda upp á
kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar,
Opinberun Hann-
esar, á nýársdag.
Það lá að vísu
nokkuð á þar sem
það varð að frum-
sýna hana nánast
samtímis í kvik-
myndahúsi og
sjónvarpi til að
uppfylla kröfur
styrktaraðila.
RÚV tryggði sér
sýningaréttinn á
íslensku kvik-
myndinni Reykjavik Guesthouse
fyrir rúmu ári en ekkert hefur
bólað á henni í dagskrá Sjónvarps-
ins. Þeir sem séð hafa báðar
myndirnar telja hana vel standast
samanburð við nýjustu mynd
Hrafns og sjá því ekkert því til fyr-
irstöðu að RÚV beri hana sem
fyrst á borð landsmanna.
Fréttiraf fólki