Fréttablaðið - 22.01.2004, Blaðsíða 14
14 22. janúar 2004 FIMMTUDAGUR
Samfylkingin kynnir menntastefnu í máli Háskóla Íslands:
Aukin fjárframlög og
afnám fjöldatakmarkana
KYNNING Menntasókn Samfylking-
arinnar er yfirskrift kynningar-
daga sem þingflokkur Samfylk-
ingarinnar stendur fyrir í Há-
skóla Íslands þessa viku. Björgvin
G. Sigurðsson, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, segir að fundað
verði með forsvarsmönnum allra
deilda háskólans og menntasóknin
kynnt. Þess á milli verði bækling-
um dreift og stefnan kynnt náms-
mönnum.
Björgvin segir stefnu flokksins
felast meðal annars í því að hafna
afdráttarlaust fjöldatakmörkun-
um og skólagjöldum við ríkis-
háskóla. „Komumst við til áhrifa
er markmiðið að auka fjárframlög
til háskólastigsins um 4-8 millj-
arða á kjörtímabilinu þar til fram-
lögum annarra Norðurlandaþjóða
er náð. Þá viljum við að ábyrgðar-
mannakerfið hjá LÍN verði lagt af
og framfærslugrunnur námslána
endurmetinn og færður til raun-
veruleikans.“
Björgvin segir að efnt verði til
fundar í Odda klukkan 12 á loka-
degi Samfylkingardaganna á
föstudag. Þar verði umræðuefnið
meðal annars fjársvelti háskól-
ans. ■
Tárvotir talsmenn
frjálsrar samkeppni
Jakob Björnsson, fyrrverandi bæjarstjóri Akureyringa, segir það
vonbrigði að flest þeirra 80 starfa sem SH lofaði Akureyringum
árið 1986 hafi gufað upp.
SJÁVARÚTVEGSMENN „Við værum
ekki sjálfum okkur samkvæm með
því að gagnrýna söluna á ÚA. Akur-
eyrarfyrirtækin hafa verið í mikilli
útrás og þegar einhverjir aðrir hafa
uppi svipaða tilburði verðum við að
þola það. Ég hef engar athugasemd-
ir við þá sem keyptu ÚA en mér
virðist sem ákveðnum gildum hafi
verið ýtt til hliðar,“ segir Jakob
Björnsson, fyrrverandi bæjarstjóri
og núverandi bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokks, um söluna á Útgerð-
arfélagi Akureyringa og þann ótta
sem ríkir um að ÚA undir eignar-
haldi Rifsfeðga
hverfi frá Akur-
eyri.
Hann segir að
nauðsynlegt hafi
verið talið að
koma ÚA úr
b æ j a r ú t g e r ð
enda hafi margir „viljað losa um
hina ógurlegu pólitísku kló sem
stjórnaði félaginu“.
Aðspurður um harkaleg við-
brögð sjálfstæðismanna á Akur-
eyri vegna sölunnar á ÚA segist
hann lítið botna í talsmönnum
einkaframtaksins.
„Mér finnst það nú dæmlaust
ef helstu talsmenn frjálsrar sam-
keppni koma með tárvot augu
þegar kerfið virkar í framkvæmd.
Annaðhvort er frjáls samkeppni
eða ekki,“ segir Jakob.
Lítið stendur eftir af þeim 80
störfum sem Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna lofaði bæjarstjórn
Akureyrar í ársbyrjun 1996 gegn
því að missa ekki sölu á afurðum
Útgerðarfélags Akureyringa, sem
í þá daga var bæjarútgerð. Lof-
orðin voru gefin í skugga þess að
Íslenskar sjávarafurðir ætluðu að
færa höfuðstöðvar sínar til Akur-
eyrar. Nú eru aðeins eftir nokkur
störf í kexverksmiðju en
súkkulaðiverksmiðja, plastverk-
smiðja og starfsemi SH eru horf-
in. Meira að segja prófessorsstaða
við Háskólann á Akureyri sem SH
kostaði er gufuð upp. Akureyring-
ar seldu SH meirihlutann í félag-
inu árið 1996 og árið 2000 seldu
þeir Burðarási afganginn. Alls
fékk bærinn 2,5 milljarða króna
fyrir ÚA, sem nú er komið í eigu
feðganna af Vesturlandi sem
kenndir eru við Tjald ehf.
Jakob Björnsson var bæjar-
stjóri á tímum stóru loforðanna.
Hann segir að vissulega séu það
mikil vonbrigði að atvinnuátak
SH skyldi hafa fjarað út. Hann
segir að þótt svo hafi farið og að
ÚA sé nú í eigu aðkomumanna sé
hann stuðningsmaður kvótakerf-
isins og hins frjálsa framsals.
rt@frettabladid.is
Reykjavík:
Eitt númer
SVEITARSTJÓRNIR Borgarráði hafa
verið kynntar hugmyndir um
eitt símaver Reykjavíkurborg-
ar. Í undirbúningi er stofnun
símavers þar sem á einum stað
verður svarað fyrirspurnum
um þjónustu og starfsemi
borgarinnar eða símtölum
beint áfram. Stefnt er að því að
opna símaverið samhliða þjón-
ustumiðstöðvum í hverfum
borgarinnar.
Hlutverk símaversins verð-
ur að veita allar almennar upp-
lýsingar um starfsemi og þjón-
ustu borgarinnar í einu
númeri. Útfærsla á hverjum
stað tekur mið af starfsemi
þjónustumiðstöðvanna. ■
Fyrirspurn til borgarráðs:
Spurt um
ferðakostnað
BORGARMÁL Ólafur F. Magnússon,
borgarfulltrúi F-listans, hefur
lagt fram fyrirspurn til borgar-
ráðs um hvort fyllstu hagkvæmni
sé gætt hjá Reykjavíkurborg
vegna ferðakostnaðar. Hann spyr
meðal annars með hvaða flugfé-
lögum starfsmenn borgarinnar
ferðist. Ólafur lagði fyrirspurnina
fram vegna umræðu um ferða-
kostnað hjá alþingismönnum, en
dregið hefur verið í efa að þar sé
fyllstu hagkvæmni gætt í nýtingu
á fjármunum hins opinbera.
Á fundinum upplýsti borgar-
stjóri að borgaryfirvöld keyptu
farmiða bæði hjá Flugleiðum og
Iceland Express. Mælst væri til
að ferðum væri háttað á sem hag-
stæðastan hátt. Reykjavíkurborg
styddist við reglur fjármálaráðu-
neytisins og keypti flugfarseðla á
almennu farrými. Borgaryfirvöld
munu afla nánari upplýsinga um
málið. ■
„Annað-
hvort er frjáls
samkeppni
eða ekki.
Tekin með maríjúana:
Með kíló í
maganum
BARBADOS 32 ára gömul hár-
greiðslukona frá Jamaíka var ný-
lega dæmd í þriggja ára fangelsi á
Karíbahafseyjunni Barbados fyr-
ir að reyna að smygla þangað
tæpu kílói af maríjúana.
Konan, sem heitir Sharon
Andrea Sloley, gleypti pakka með
efninu áður en hún fór í gegnum
tollskoðun á Grantley Adams-
flugvelli en árvökulir tollþjónar
tóku eftir því að ekki var allt með
felldu.
Að sögn talsmanns lögreglunn-
ar var konan flutt á næsta sjúkra-
hús þar sem pakkarnir skiluðu sér
einn af öðrum rétta leið gegnum
meltingarveginn. ■
Unnið að bráðabirgðaviðgerð á Norrænu í Færeyjum:
Ferðir til Íslands falla niður
SAMGÖNGUR Ferðir Norrænu til
Íslands falla niður um óákveð-
inn tíma vegna tjóns sem varð á
ferjunni þegar hún sigldi á
hafnargarðinn í Þórshöfn í
Færeyjum í síðustu viku. Sam-
kvæmt áætlun átti Norræna að
koma til Seyðisfjarðar í gær.
Kari Djurhuus, kynningarfull-
trúi Smyril-Line í Færeyjum,
segir Norrænu enn við höfnina í
Þórshöfn. Unnið sé að bráða-
birgðaviðgerð, sem væntanlega
verði lokið nú um helgina. Af því
búnu verði ferjunni siglt til
skipasmíðastöðvar í Evrópu.
Kari segir óvíst hversu langan
tíma viðgerðin taki. Reiknað sé
með nokkrum vikum.
Kari segir að á meðan við-
gerð fari fram sinni gamla Nor-
ræna áætlunarsiglingum. Þar
sem ferjan sé hægfara verði
siglt eftir gömlu vetraráætlun-
inni, sem felst í því að ferjan
ferðast einungis milli Þórshafn-
ar, Hjaltlands og Jótlands.
Hvorki Björgvin í Noregi né
Seyðisfjörður séu á áætlun.
Norræna sigldi alls þrisvar
sinnum á hafnargarðinn, með
þeim afleiðingum að rifa kom á
skrokk skipsins við vélarrúmið
ásamt því að fleiri skemmdir
urðu. Aftakaveður var við Fær-
eyjar þegar óhappið varð. Ólav-
ur Hóvsgarðs, skipstjóri Nor-
rænu, greindi frá því í færeysk-
um fjölmiðlum að vegna að-
stæðna hefði verið ógjörningur
að forðast óhappið. Hann segir
vindhviðurnar hafa komið á
óvart og ekki hafi verið við neitt
ráðið. ■
Börn egg- og sæðisgjafa:
Upplýsingar
um
kynforeldra
LUNDÚNIR, AP Breska ríkisstjórnin
ætlar að leggja fram breytingar-
tillögu sem myndi gera börnum
egg- og sæðisgjafa kleift að hafa
upp á kynforeldrum sínum. Gert
er ráð fyrir að börnin geti fengið
viðeigandi upplýsingar eftir átján
ára aldur.
„Ég tel að börn sem getin eru
með gjafasæði eða eggi eigi rétt á
því að fá þær upplýsingar um kyn-
foreldra sína sem þeim hefur
hingað til verið neitað um,“ sagði
Melanie Johnson, heilbrigðismála-
ráðherra Breta. Ef reglugerðin
verður samþykkt af breska þing-
inu tekur hún gildi 1. apríl 2005.
Sams konar reglugerðir eru nú
þegar í gildi í Svíþjóð, Austurríki,
Ástralíu, Hollandi og fleiri lönd-
um. ■
SAMFYLKINGARDAGAR
Í HÁSKÓLA ÍSLANDS
Þingflokkur Samfylkingarinnar kom saman
í Náttúrufræðihúsi HÍ við upphaf Samfylk-
ingardaga sem haldnir eru í skólanum í
þessari viku.
JAKOB BJÖRNSSON
Störfin 80 sem hann samdi um við Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna eru horfin.
FERJAN NORRÆNA VIÐ ÞÓRSHÖFN
Höfnin í Þórshöfn þykir erfið fyrir stærri skip að athafna sig í. Skipstjóri Norrænu gagnrýndi
harðlega aðstæður við höfnina í viðtali sem tekið var við hann í færeyska blaðinu Sosialnum
fyrir tæpu ári síðan. Sagði hann höfnina í Þórshöfn þá allra verstu miðað við hafnir annarra
landa sem eru á áætlun Norrænu. Skömm væri að bjóða upp á slíkar aðstæður.
UPPBLÁSINN ÍSTRUBELGUR
Íbúi í bænum Davoser í Sviss virðir hér fyrir
sér stóran uppblásinn ríkmannlegan ístru-
belg sem komið hefur verið fyrir utan við
skrifstofur samtakanna „Almenningsaug-
að“, sem berjast gegn heimsvæðingunni.