Fréttablaðið - 22.01.2004, Blaðsíða 19
19FIMMTUDAGUR 22. janúar 2004
Dýrt spaug:
Laug um
sprengjur
BANDARÍKIN 21 árs gömul bresk náms-
kona á yfir höfði sér allt að fimmtán
ára fangelsisdóm í Bandaríkjunum
fyrir það að hafa tjáð öryggisverði á
Miami-flugvelli að hún væri með
sprengjur í farangrinum.
Konan, sem heitir Samantha Mar-
son, var á leiðinni til London þegar
hún var handtekin við venjubundna
leit í farangri, en að eigin sögn var
hún að grínast þegar hún sagði við
þann sem leitaði: „Farðu varlega,
það eru þrjár sprengjur þarna“. Þeg-
ar Marson var beðin að endurtaka
það sem hún sagði gerði hún það
tvisvar, að sögn lögreglunnar.
Hún var handtekin á staðnum. ■
Þriðja stefnuræða Bush:
Kominn í
kosningaham
BANDARÍKIN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti varði stefnu
stjórnar sinnar í bak og fyrir í
þriðju stefnuræðu sinni í fyrra-
kvöld og sagði að utanríkisstefna
sín, og þar með taldar hernaðar-
aðgerðirnar í Írak, hefði þegar
tryggt aukið öryggi í Bandaríkj-
unum og öllum heiminum. Hann
lagði einnig áherslu á að góður ár-
angur hefði náðst í efnahagsmál-
um og að batinn væri greinilegur.
„Bandaríkin hafa verið kölluð
til mikilvægra verkefna og við
höfum fyllilega staðið undir þeirri
ábyrgð sem á okkur hvílir,“ sagði
Bush í ræðunni, sem sjónvarpað
var um öll Bandaríkin.
„Við erum ekki komin þetta
langt, í gegnum hörmungar,
þrautir og stríð, aðeins til þess að
gefast upp á miðri leið,“ sagði
Bush, sem auðsjáanlega er kom-
inn í mikinn kosningaham.
Hann sagði að stríðið gegn
hryðjuverkum, sem hann hefði
hafið í kjölfar árásanna á New
York og Pentagon, væri langt í frá
lokið. „28 mánuðir eru liðnir frá
11. september 2001, meira en tvö
ár án árásar á bandarískt land-
svæði, og því freistandi að ætla að
hættan sé liðin hjá. Sú von er
skiljanleg en röng,“ sagði Bush. ■
GEORGE W. BUSH
Bush Bandaríkjaforseti varði stefnu stjórnar sinnar í bak og fyrir í þriðju stefnuræðu sinni í
fyrrakvöld.
Útlán innlánsstofnanna á verðlagi janúar
2004.
Heimild: Seðlabanki Íslands
Neysluvísitala án húnsæði og húsnæðis-
verð, þróun frá 1998.
Heimild: Hagstofa Íslands
Útlán til einstaklinga á verðlagi 2004 í
milljónum króna
Heimild: Seðlabanki Íslands
Vilhjálmur Bjarnason:
Hefur ekki
áhyggjur
Vilhjálmur Bjarnason,aðjúnkt við viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla
Íslands, hefur ekki
áhyggjur af því að hér sé
að myndast eignabóla líkt
og gerðist á árinu 2000.
Hann segir að fast-
eignaverð sé fremur hátt
en bendir á að hækkun á
hlutabréfaverði sé fyrst
og fremst tilkomin vegna
eins fyrirtækis;
Pharmaco.
„Ég held að niðursveifl-
an hafi verið dálítið mikil
en ég er ekki farinn að sjá
að það sé nein ofboðsleg
eignabóla,“ segir Vil-
hjálmur. ■