Fréttablaðið - 22.01.2004, Side 30

Fréttablaðið - 22.01.2004, Side 30
ferðir o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 Selfossi: 482 1666 www.urvalutsyn.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 34 42 01 /2 00 4 Í hjarta Mi›-Ameríku liggur Panamaskur›urinn sem er ein stórkostlegasta siglingalei› í heimi. fia› tekur a›eins 1 dag a› sigla í gegnum skur›inn en minningin endist alla ævi. Á›ur en hápunkti fer›arinnar er ná› í Panamaskur›inum eru sko›a›ar perlur á lei›inni eins og Grand Cayman og Aruba. Sigmundur Andrésson fararstjóri kynnir fer›ina í Sunnusal á Hótel Sögu fimmtud. 5. feb. kl. 20:00. Nánari uppl‡singar um fer›ina á www.urvalutsyn.is og á skrifstofu okkar a› Lágmúla 4. Uppáhaldsborg Nönnu Kristínar: Upplifði New York með augum vinkonunnar Uppáhaldsborg Nönnu Kristín-ar Magnúsdóttur leikkonu er New York. Þangað fór hún í sum- ar til að heimsækja vinkonu sína sem hefur búið þar í sjö ár. „Þetta var í fyrsta skiptið sem ég fór til New York en mig hafði alla tíð langað til að fara þangað,“ segir Nanna Kristín. „Það er mjög gaman að heimsækja svona stóra borg því það er svo rosalega mik- ið hægt að sjá. Það er líka gott að heimsækja einhvern sem hefur búið þar því þá fer maður ekki bara á túristastaðina. Mig langaði meira að upplifa borgina með hennar augum.“ Nanna fór að sjá vinsæla ferða- mannastaði eins og Frelsisstytt- una, Metropolitan-safnið og Central Park en borðaði líka með vinkonu sinni í Meat Packing District, sem er vinsælt hverfi á meðal heimamanna. Nönnu fannst merkilegt að fylgjast með litríku mannlífinu í borginni þar sem öfgarnar voru miklar í báðar áttir. „Það er svo rosalegt ríkidæmi þarna og fátækt líka, til dæmis eftir því hvernig störfin eru. Limósínurnar keyrðu um og kon- ur í pelsum komu út. Svo var mað- ur að sópa göturnar fyrir framan þær.“ Nanna hefur eins og flestir aðr- ir horft á margar bíómyndir og sjónvarpsþætti sem gerast í New York og stundum kannaðist hún við sig. „Þótt maður hafi aldrei komið þarna áður þá líður manni stundum eins og maður sé heima hjá sér og ég tala nú ekki um stað eins og Central Park,“ segir hún og kveðst pottþétt ætla að fara aftur til New York. Önnur borg sem er í uppáhaldi hjá Nönnu er París þrátt fyrir að hún hafi aldrei komið þangað. „Ég er búin að mikla svo í huganum hvað þetta sé rómantísk og æðis- leg borg, en ég veit ekki. Kannski ætti ég bara aldrei að fara þang- að. En ef hún stendur undir því sem ég býst við verður það þess virði að fara þangað.“ freyr@frettabladid.is Plúsferðir: Páska- og vorferðir Plúsferðir bjóða páska- ogvorferðir á sólarstrendur. Um páskana verða ferðir til Benidorm, Kanarí, Mallorca og Portúgal. Ferðirnar eru 11 til 14 daga, brottfarardagarnir eru 2., 3. og 4. apríl og verðið fyrir tvo sam- an í herbergi er frá 63.330 kr. staðgreitt (12 dagar á Mallorca) upp í 79.130 kr. (14 dagar á Kanarí). Um páskana er einnig í boði fjögurra daga ferð til Dublin- ar á 44.820 kr. miðað við tvo sam- an í herbergi. Vorferðirnar eru langar, 24 til 29 nætur á sólarströndunum á Mallorca, Benidorm, Krít og Portúgal. Í þeim er veittur 20.000 króna eldri borgara afsláttur og er verðið með þeim afslætti frá 56.530 kr. (24 nætur á Mallorca). Verðið miðast við að bókað sé á Netinu. ■ KRÍT Plúsferðir bjóða vorferðir til Krítar. NANNA KRISTÍN Fór til New York í fyrsta sinn í sumar og ætlar pottþétt að fara þangað aftur. CENTRAL PARK AÐ VETRI TIL Frelsisstyttan, Metropolitan-safnið og Central Park voru á meðal viðkomustaða Nönnu Kristínar. NETKLÚBBUR FJALLALEIÐSÖGUMANNA Í tilefni af 10 ára afmæli hafa Íslenskir fjallaleiðsögu- menn ákveðið að stofna netklúbb sem mun bjóða upp á áhugaverðar og ódýrar ferðir utan aðal ferðatímans á Íslandi. Netklúbburinn mun einnig bjóða upp á tilboð í hverjum mánuði. Meðal þess sem boðið er upp á eru dagsferðir, kennsla á gönguskíði og jöklaferða- mennsku, myndasýningar og kvöldgöngur. Markmið netklúbbsins er ekki eingöngu að bjóða upp á skemmti- legar ferðir heldur einnig að kynna stuttar ferðir að vetrarlagi sem spennandi möguleika fyrir alla útivistar áhugamenn á Íslandi. Netklúbbinn má finna á slóðinni www.mountainguide.is/netklub/frett.htm.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.