Fréttablaðið - 22.01.2004, Side 33
29FIMMTUDAGUR 22. janúar 2004
Aron Gylfason, 13 ára nemi viðLágafellsskóla, hefur fengið
hvatningarverðlaun Fréttablaðs-
ins. Fólkið í Brekkutanga hafði
samband við blaðið og vildi lýsa
sérstakri ánægju sinni með Aron
fyrir óaðfinnanlegan útburð.
„Mér líkar þetta mjög vel,“
segir Aron og bætir við glettinn
„líklega þarf ég að fara að
standa mig betur“. Aron byrjaði
að bera Fréttablaðið út í febrúar
á síðasta ári; hann hefur alltaf
verið með sama hverfið í Mos-
fellsbæ og stefnir að því að
halda áfram. Aðspurður segir
hann að það sé ekkert mál að
vera búinn að dreifa blöðunum
áður enn hann mætir í skólann.
„Ég er búinn að venjast þessu,
ég fer bara snemma að sofa.“
Aron var verðlaunaður með
gjafabréfi frá tískuversluninni XS
í Kringlunni. Allir blaðberar blaðs-
ins fá 15% afslátt í þeirri búð. ■
TÓNLIST „Við erum komnir vel á
veg að forvinna nýja plötu. Næsta
skref er að taka hana upp,“ segir
Franz Gunnarsson, gítarleikari
Ensími. „Við erum búnir að semja
lögin og útsetja þau og erum byrj-
aðir að taka upp grunna. Við erum
samt að bæta lögum í sarpinn. Við
ætlum að reyna ná eins miklu af
trommugrunnum áður en Addi
trommari fer til Barcelona.“
Stefnt er á útgáfu í sumar enda
segjast liðsmenn vera búnir að fá
sig fullsadda af því að gefa út
plötu rétt fyrir jólin á meðan
plötufárið er sem mest.
Plata Ensími verður að vinnast
í skorpum þar sem trommuleikar-
inn Arnar Gíslason býr að hluta til
í Barcelona. Hann, Franz og Guðni
bassaleikari eru svo allir í tón-
leikasveit Bang Gang og þeirra
bíða því nokkrar tónleikaferðir til
Evrópu á næstu mánuðum.
„Við vinnum út um allan heim-
inn núna. Hrafn er eiginlegur
upptökustjóri og nostrar við upp-
tökurnar á meðan við erum úti,“
segir Franz. ■
ARON GYLFASON
Tekur við gjafabréfi í tískuversluninni XS í Kringlunni. Hann fær hvatningarverðlaun
Fréttablaðsins fyrir frábær störf.
mynd er leitast við að skilja hvað
býr að baki tilkomu og kerfis-
bundinni framkvæmd einnar
skelfilegustu hugmyndafræði 20.
aldar, hugmyndafræði Rauðu
Khmeranna.
Í þrjú löng ár leituðu Rithy
Panh og samstarfsfólk hans
svara meðal þeirra fáu sem
komust lífs af en einnig meðal
fyrrum böðla sem fóru með þeim
á fornar slóðir fangabúða S 21,
þar sem nú er safn í minningu
þjóðarmorðanna, til þess að rifja
upp liðna atburði.
Óvinurinn - L’adversaire
Metaðsóknarmynd sem lætur
engan ósnortinn. Hún var í aðal-
keppni kvikmyndahátíðarinnar í
Cannes 2002.
Þegar maður myrðir konu
sína, börn og foreldra er ljóst að
rannsóknin beinist að fortíð hans.
Daniel Auteuil fékk frönsku Cés-
ar-verðlaunin fyrir leik sinn í
aðalhlutverkinu. Myndin er
byggð á sönnum atburðum og
magnaðri sögu Emmanuel
Carrère, sem kom út á íslensku
árið 2002, og var höfundur gestur
á bókmenntahátíð á síðasta ári.
Góða ferð - Bon voyage
Hernám Þjóðverja er á næsta
leyti. Fyrirmenn þjóðfélagsins í
París, stjórnmálamenn, blaða-
menn og njósnarar flykkjast í
burtu frá París og setjast að á
hóteli í Bordeaux. Ótrúleg blanda
af gríni, spennu og drama. Frá-
bærir leikarar, m.a. Isabelle
Adjani, Gérard Depardieu,
Virgine Ledoyen og Peter Coyote.
Fulltrúi Frakklands til Ósk-
arsverðlauna 2004.
Voltaire að kenna - La
faute à Voltaire
Jallel, líkt og Birtingur
Voltaires, á sér draum um
betra líf og flytur til Frakk-
lands til að freista gæfunnar.
Þar reikar hann um París gæfu-
leysingjanna, frá einum til ann-
ars, milli gististaða og félags-
stofnana. Draumar um frægð
og frama verða að engu en í
þeirra stað fær hann að kynn-
ast og eiga hlut í þeirri sam-
kennd sem ríkir meðal hinna
snauðu.
Myndin hlaut Gullljónið á
Kvikmyndahátíðinni í Feneyj-
um árið 2000, verðlaun sem
fyrsta kvikmynd höfundar og
verðlaun ungra áhorfenda. ■
opi›: laugardaga 10-18 og sunnudaga 13-18
SÓFI
N I X O N
40%
afsláttur
BO
R‹
B
I N T A N
G
50%
afsláttur
ÚTSÖLULOK
enn meiri ver›lækkun
ATH. LÖNG HELGI
opi› laugardag 10-18 sunnudag 13-18
SMÁVARA
70% AFSLÁTTUR
SPEGLAR
50% AFSLÁTTUR
119.400 kr. 59.700 kr.
ver› á›ur útsöluver›
bor› (200x90) og 6 pearl le›urlíkisstólar
Hvatningarverðlaun Fréttablaðsins
ENSÍMI
Stefnir á að gefa út nýja plötu í sumar.
Spilar m.a. ný lög á Grand Rokk í kvöld.
Vinna að
nýrri plötu