Fréttablaðið - 03.02.2004, Page 8

Fréttablaðið - 03.02.2004, Page 8
8 3. febrúar 2004 ÞRIÐJUDAGUROrðrétt Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra: Atlantsál uppfyllir ekki kröfur ATLANTSÁL Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, seg- ir í pistli á heimasíðu sinni að Atl- antsál hf. hafi hvorki fjárhagslega burði né tæknilega getu til stór- iðjuframkvæmda hér á landi. Hún vísar til frétta um álversáform Atl- antsáls og þess að gefið hafi verið í skyn að það standi á samþykki iðn- aðarráðuneytisins svo Atlantsál megi halda áfram undirbúningi þess að reisa álver við Húsavík. Valgerður segir að síðla árs 2002 hafi vaknað efasemdir um getu Atlantsáls til að koma að verkefn- inu og atburðarásin í kjölfarið hafi leitt til þess að samstarfi við Atl- antsál var slitið. „Ég hef metið það svo að Atl- antsál uppfylli ekki þær kröfur sem gera verður til þeirra fyrir- tækja sem ráðuneytið á samstarf við um stóriðjukosti. Að mínu mati hefur fyrirtækið hvorki fjár- hagslega burði né tæknilega getu til verkefnisins og hefur sam- starfinu því verið slitið. Forsvars- mönnum fyrirtækisins hefur ver- ið gerð grein fyrir þessu,“ segir Valgerður á heimasíðu sinni. Hún segir stjórnvöld hafa lagt fram umtalsverða fjármuni í rannsóknir til þess að reyna að koma verkefninu í höfn. „Beinn útlagður kostnaður markaðsskrifstofu iðnaðarráðu- neytisins og Landsvirkjunar hef- ur verið um 37 milljónir króna auk vinnu eigin starfsmanna,“ segir Valgerður. ■ Fyrirtæki vilja geyma tölvugögn á Íslandi Unnið er að fjármögnun byggingar svokallaðra netþjónabúa á Íslandi. Netþjónabú munu hýsa tölvugögn bandarískra fyrirtækja og stofnana sem óttast um öryggi þeirra í heimalandinu. Búin eru gríðarlega orkufrek og því vænlegur kostur fyrir orkufyrirtæki. NÝSKÖPUN Íslenska fyrirtækið EuroColo er að vinna að því í sam- starfi við bandarísk fyrirtæki og Orkuveitu Reykjavíkur að koma upp svokölluðum netþjónabúum á Íslandi. Ásgeir Margeirsson, að- stoðarforstjóri Orkuveitunnar, segir að verði net- þjónabú að veru- leika á Íslandi gætu þau orðið veruleg tekjulind fyrir Orkuveit- una. Netþjónabú er stór bygging full af tölvum sem geyma gögn fyrir fyrirtæki úti í heimi á öruggum stað. Umræðan um hagkvæmni þess að koma slíkum búum á lagg- irnar hefur verið mikil eftir hryðjuverkin 11. september. Þá urðu fyrirtæki meðvituð um mikil- vægi þess að tryggja sig fyrir hugsanlegum skakkaföllum sem þau gætu orðið fyrir í heimaland- inu ef tölvukerfið hryndi af ein- hverjum völdum. Ásgeir segir að vegna gríðar- legs verðmætis tölvugagna hafi bandarísk fyrirtæki og stofnanir lýst áhuga á því að geyma þau hérlendis, þar sem þau telji Ísland öruggan stað. Gagnaflutnings- tækni nútímans geri fyrirtækjum á mjög auðveldan hátt kleift að flytja gögn um langan veg fyrir lítinn kostnað. Þorleifur Finnsson, fram- kvæmdastjóri nýsköpunar og þró- unar hjá Orkuveitunni, segir menn vongóða um að netþjónabúin verði að veruleika. Sem stendur sé EuroColo að vinna að fjármögnun. Þorleifur segist ekki geta sagt hvenær netþjónabú rísi á Íslandi en ef allt gangi að óskum ætti það að geta orðið innan þriggja ára. Ásgeir segir að það sem geri netþjónabú að vænlegum kosti fyrir Orkuveituna sé að þau séu mjög orkufrek. „Það þarf mikla raforku til að keyra allar tölvurnar. Tölvurnar framleiða mikinn varma og því þurfa þær líka mikla orku til kæl- ingar, en við getum notað kalt vatn til þess. Eitt netþjónabú þarf kannski um 15 megavött af afli. Til þess að setja það í samhengi jafn- gilda 15 megavött rúmlega 10% af því afli sem uppsett verður í nýju virkjuninni á Hellisheiði.“ trausti@frettabladid.is Sveitarstjórn Húnaþings: Vill verja sparisjóðina SPARISJÓÐIR Sveitarstjórn Húnaþings vestra álítur það brýnt hagsmuna- mál fjölda einstaklinga og stofnana í landinu öllu að grundvelli fyrir rekstri sparisjóðakerfisins verði ekki raskað. Í ályktun sveitarstjórnarinnar segir að sparisjóðirnir hafi um langa hríð gegnt mikilvægu hlut- verki í atvinnulífinu víða um land og með sjálfstæði sínu hafi þeir lagt grunn að ýmsum framfaramálum. Sveitarstjórnin telur mikilvægt að sparisjóðunum verði áfram gert kleift að starfa að því markmiði sínu að efla velferð, búsetu og at- vinnulíf sem víðast um land. ■ KABÚL Ástandið í höfuðborginni er enn ótryggt. Kúbufangarnir: Drengirnir komnir heim AFGANISTAN Þrír afganskir drengir á aldrinum 13 til 15 ára, sem leystir voru úr haldi í Guant- anamo-fangabúðunum á Kúbu í síðustu viku, eru komnir heim til Afganistans þar sem þeir dvelja nú í faðmi fjölskyldna sinna eftir um það bil tveggja ára dvöl í búð- unum. Þeir eru yngstu fangarnir sem fluttir voru frá Afganistan til Kúbu grunaðir um að hafa barist með talíbönum gegn innrásarliði Bandaríkjamanna og sá yngsti að- eins ellefu ára þegar hann var handtekinn. Rauði krossinn aðstoðaði við að flytja drengina heim til fjöl- skyldna sinna og sagði Baba Jan, yfirmaður lögreglunnar í Kabúl, að þeir hefðu verið við góða heilsu við komuna heim til Afganistans. ■ Við bjóðum upp á spennandi námskeið í nútímaforritun (Delphi og ASP.net). Að margra mati er nú rétti tíminn til að hefja nám á þessu sviði. Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að hafa góða undirstöðu- menntun (stúdentspróf æskilegt), góða almenna tölvukunnáttu og góða enskukunnáttu. Lengd: 264 stundir Verð: 198.000 kr. Tími: Kvöldnámskeið hefst 10. febrúar Delphi forritun Kerfisgreining Gagnasafnsfræði ASP.net forritun Lokaverkefni Námsgreinar Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. 50% afsláttur ótrúlegt verð á gæða fatnaði BARNAVERND Barnaverndarstofa gerði samkomulag við Neyðarlín- una um að taka við tilkynningum 1. febrúar síðastliðinn. Ef talið er að barn geti verið í hættu er barnaverndarstarfsmaður tafarlaust kallaður út. Hins vegar ef aðstæður barns eru ekki eins brýnar verður upplýsingum komið áfram í upphafi næsta vinnudags. Ekki eru til fordæmi fyrir því í Evr- ópu að hægt sé að hringja í eitt númer fyrir allar barnaverndar- nefndir. Er það gert til að auðvelda börnum að leita sér hjálpar, til dæmis þar sem óregla eða ofbeldi hefur átt sér stað. Einnig eru marg- ir ekki vissir um hvert eigi að til- kynna ef þeir vita um slæmar að- stæður barna. Öll samskipti vegna þessa fara fram í fullum trúnaði gagnvart öllum nema barnavernd- arnefnd. Árið 2002 bárust barnaverndar- nefndum landsins alls 4.492 tilkynn- ingar og var rúmlega helmingur til- kynntur af lögreglu. Börnin sjálf til- kynntu aðeins í 36 tilvikum. ■ SAT FAST Í BÍLUNUM Lögreglan í Vík í Mýrdal þurfti að kalla út björgunarsveit til að aðstoða fólk sem sat fast í bílum sínum nálægt Kirkjubæjarklaustri í fyrrinótt. INNBROT Á PATREKSFIRÐI Brotist var inn á veitingastað á Patreks- firði í fyrrinótt og þaðan stolið nokkrum áfengisflöskum. Ekki liggur fyrir hvort einhverju öðru var stolið. Málið er í rannsókn lögreglu. Barnaverndarnefndir: 112 tekur við tilkynningum ■ Lögreglufréttir VERÐMÆT GÖGN Vegna gríðarlegs verðmætis tölvugagna eru stórfyrirtæki, sérstaklega í Bandaríkjunum, í vaxandi mæli að leita leiða til að tryggja sig fyrir ýmsum áföllum. ÁSGEIR MARGEIRSSON Aðstoðarforstjóri Orkuveitunnar seg- ir að verði net- þjónabú að veru- leika á Íslandi gætu þau orðið veruleg tekjulind fyrir Orkuveituna. NEYÐARLÍNA OG BARNAVERNDAR- STOFA HAFA GERT SAMKOMULAG Frá vinstri: Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu og Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. STRANDAÐI Á ATLANTSÁLI Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, segir álvershugmyndir fyrir norðan hafa strandað á Atlantsáli. Fyrir- tækið hafi hvorki fjárhagslega burði né tæknilega getu til stóriðjuframkvæmda. Herlög gegn auðhringum? „En þær aðstæður kunna að skapast í samfélagi frjálsra manna að þeir þurfi að sætta sig við herlög til að vernda borgar- ana; líf þeirra, eignir og frelsi“. Óli Björn Kárason. Morgunblaðið, 2. febrúar. Konur körlum verstar? „Ein aðferðin í jafnréttisbaráttu kvenna var að mála karlinn sem óæskilega veru, það þekkist best þegar menn eru að horfa á Hell- isbúann; karlmenn eru svín“. Jón Pétursson, sálfræðingur í Vestmannaeyjum, um þunglyndi ungra manna í DV 2. febrúar. Tveimur skjöldum? „Ásgeir er ráðgjafi Björgólfs en bregður sér svo í hlutverk vara- þingmannsins, sem skreppur yfir á Alþingi og tekur þátt í stefnu- mótun Samfylkingarinnar...“. Halldór Halldórsson fjölmiðlafræðingur í Morgun- blaðinu 2. febrúar um hagsmunaárekstur Ásgeirs Friðgeirssonar, sem er í senn varaþingmaður og ráðgjafi Björgólfs Guðmundssonar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.