Fréttablaðið - 03.02.2004, Síða 30

Fréttablaðið - 03.02.2004, Síða 30
Hrósið 30 3. febrúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR Kaldaljós verður framlag Ís-lands til Kvikmyndahátíðar- innar í Berlín sem hefst á fimmtudaginn. Myndin verður einnig sýnd á markaðssýningum í tengslum við hátíðina en þar mun hátíðargestum einnig gef- ast tækifæri til að berja Opin- berun Hannesar, eftir Hrafn Gunnlaugsson, augum. Opinberunin fékk frekar slæma dóma hér heima en Hrafn hefur bundið nokkrar vonir við viðtökur erlendis þannig að það má segja að mark- aðssýningarnar í Berlín verði ákveðinn prófsteinn á hvernig þessi sérstaka ádeila á kerfis- báknið leggst í útlendinga. Kaldaljós verður frumsýnd í Berlín 7. febrúar og verða helstu aðstandendur viðstaddir, rétt eins og í Gautaborg á dög- unum. Tómas Lemarquis, sem lék Nóa albínóa með miklum glæsi- brag, tekur þátt í „Shooting Star 2004“ á hátíðinni og fær þar kjörið tækifæri til að kynna sig fyrir evrópskum kvikmynda- framleiðendum. Þá hafa þeir Ólafur Jóhannesson, Óskar Þór Axelsson og Ragnar Santos ver- ið valdir til að taka þátt í „talent campus 2004“ á hátíðinni. Fjögur önnur verkefni sem Íslendingar taka þátt í verða með á sérstökum markaði en það eru White Lies, Ordinary Life, The Good Heart í leik- stjórn Dags Kára Péturssonar og Three Times a Gentleman. ■ Bíó OPINBERUN HANNESAR ■ Verður borin á borð fyrir kvikmynda- mógúla í Berlín. Rocky ...... fá spekingarnir á Baggalúti fyrir að fylla skarð ekkifrétta- mannsins Hauks Haukssonar með tilþrifum. Fréttiraf fólki Hrafn opinberar í Berlín ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Anders Fogh Rasmussen. Runólfur Ágústsson. Gullfoss. 1 5 6 7 8 13 14 16 17 15 18 2 3 11 9 1210 4 í dag Íslenskur boltastrákur á leið til Brasilíu Útibússtjóri KB banka rekinn út af nafninu Forsetahjónin niðurlægð HRAFN GUNNLAUGSSON Opinberun Hannesar verður sýnd á markaðssýningum í tengslum við Kvikmyndahátíðina í Berlín. Gjörsamlega vonlausir! Fröken! Tvær flöskur í viðbót! Það má bóka mikið stuð á Flat-eyri á laugar- daginn en þá held- ur Stútungur sitt árlega þorrablót í tíunda sinn. Blót þessi eru annáluð skemmtikvöld og að þessu sinni hafa Stútungar fengið sjálfan Hemma Gunn til að sinna veislu- stjórn og kunnugir telja víst að hinn kúnstugi læknir þeirra Flat- eyringa, Lýður Árnason, muni einnig láta til sín taka. Það er því ekki ofsögum sagt að í það minnsta tveir annálaðir stuðbolt- ar verði á staðnum og sjálfsagt munu gamanmálin fjúka með lát- um innan um hákarlinn og hrútspungana, sem eru að sögn bornir fram með kartöflumús fyrir vestan. Ungir vinstri grænir hafa boð-að til aukaaðalfundar á Hótel Loftleiðum á laug- ardaginn en tilefn- ið er óhjákvæmi- leg formanns- skipti. Katrín Jak- obsdóttir mun láta af embætti á fund- inum þar sem hún er orðin vara- formaður móðurfélagsins Vinstri hreyfingarinnar – græns fram- boðs þar sem hún situr nú í önd- vegi við hlið stofnanda flokksins, Steingríms J. Sigfússonar. Lárétt: 1 staða í skák, 5 í röð, 6 há- skólagráða, 7 einkennisstafir, 8 dæling, 9 offur, 10 grastota, 12 vætu, 13 rödd, 15 til, 16 þvaður, 18 lítir. Lóðrétt: 1 iðnaðarmaður, 2 flýti, 3 tveir eins, 4 mikilfenglegur, 6 greiða, 8 eyða, 11 belti, 14 tíu, 17 leit. Lausn. Lárétt:1patt,5rst,6ba,7ea,8sog,9 fórn,10tó,12aga,13alt,15að,16raus, 18gáir. Lóðrétt: 1prentari,2asa,3tt,4magn- aður, 6borga,8sóa,11óla,14tug,17 sá. Leikari í yfirvigt dansar við sjónvarpsefni Í lok janúar hlaut Helena Jónsdótt-ir, danshöfundur og leikstjóri, al- þjóðleg verðlaun fyrir vídeódans- verk sitt Herbergið (Zimmer) en þetta er í fjórða sinn sem þessi verðlaun eru veitt. Helena hefur áður hlotið verðlaun fyrir dansverk sín og verk hennar Brakraddir vakti töluverða athygli. Herbergið sýnir mann í yfirvigt og mótdansar- ar hans eru hversdagslegt sjón- varpsefni. Að sögn Helenu byggist verkið á að gera okkur ljóst hvað við erum að meðtaka af þessum mikla sannleik sem sjónvarpið gef- ur okkur. „Þetta er gömul hugmynd sem þróaðist betur þegar ég sendi þessa hugmynd inn fyrir hálfu ári síðan,“ segir Helena. „Þegar ég komst í úr- slit fékk ég svo styrk til að búa til prufu og vann hana í samvinnu við Elísabetu Ronaldsdóttur, Filippíu Elísdóttur, Hall Ingólfsson og Magna Ágústsson. Auk þess var Ólafur Darri Ólafsson leikari kom- inn inn í myndina og þá þróaðist hugmyndin betur. Það að fá þessi verðlaun hefur gífurlega jákvæð áhrif fyrir mig. Þetta þýðir að ég fæ styrk til að framleiða þessa mynd, ég fæ að eiga myndina sjálf en þeir sjá um alla dreifingu og að koma henni í sjónvarp.“ Yfir hundrað verk voru send í keppnina og var verk Helenu eitt af sex verkum sem voru til- nefnd til þessara virtu þýsku menningarverðlauna. Í greinar- gerð nefndarinnar sem valdi verðlaunaverkið kemur fram að hugmynd Helenu sé lofsverður snertiflötur milli hennar eigin sköpunar á líkamlegri tjáningu og stöðu menningar á sam- skiptaöld. Dansvídeó hennar hafi vakið spurningar um ábyrgð einstaklingsins í menn- ingu sem er gegnsýrð af sjón- varpi. Það sé því nokkuð kald- hæðnislegt að vídeóið muni að lokum vera sýnt í þeim miðli sem verið er að mótmæla. ■ Smákrakkar eru asnar, maður! Þeir eyða öllum vikupeningunum í eitthvað drasl sem gerir þá bara heimska, feita og félagslega hefta! HELENA JÓNSDÓTTIR Hlaut þýsk verðlaun fyrir vídeódansverk sitt Herbergið, sem vekur spurningar um ábyrgð einstaklingsins í menningu sem er gegnsýrð af sjónvarpsáhorfi. Verðlaun HELENA JÓNSDÓTTIR ■ Sigraði í alþjóðlegri samkeppni dans- vídeóverka og fær framleiðslustyrk til að koma verki sínu í sjónvarp. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.