Fréttablaðið - 22.02.2004, Qupperneq 10
10 22. febrúar 2004 SUNNUDAGUR
FJÖLMENNING Hlutfall erlendra ríkis-
borgara af mannfjölda er 3,5% en
hlutfall erlends vinnuafls á vinnu-
markaði er 3,9%. Útlendingar eru
því mjög virkir í atvinnulífinu og
erlent vinnuafl er efnahagslífinu
mikilvægt. Þetta kom fram á mál-
þingi Alþjóðahúss.
Gústaf Adolf Skúlason hjá Sam-
tökum atvinnulífsins telur ferlið við
öflun atvinnuleyfa of kostnaðar-
samt. Hann benti einnig á að stjórn-
völd hafi, líkt og flest önnur Evr-
ópuríki, ákveðið að nýta sér heimild
um aðlögunartíma þegar EES-svæð-
ið stækkar. Borgarar nýju ríkjanna
fái því ekki full réttindi flytji þeir
innan EES, en það eigi að vera tíma-
bundið.
Halldór Grönvold frá ASÍ sagði
viðvörun fólgna í málum varðandi
svarta atvinnustarfsemi og kjör út-
lendinga. „Við getum ekki ætlast til
að fá allt fyrir ekki neitt,“ sagði
hann. „Efla þarf þjónustu við inn-
flytjendur.“
Gylfi Kristinsson, skrifstofu-
stjóri félagsmálaráðuneytis, tók
undir að þörf væri á samhæfingu
og aukinni samvinnu. Hann benti á
að í tillögum um breytingar í EES-
löndum felist að réttindi verði háð
búsetulengd en óháð ríkisborgara-
rétti. Því fylgi réttur til að stunda
launað starf og heimild til brott-
vísunar sé þrengd. Þetta myndi
hafa í för með sér að breyta þyrfti
lögum hér. ■
Von í stríðs-
hrjáðu landi
Ári eftir að vopnahlé tók gildi á svæðinu kringum borgina Juba í Súdan er
farið að rofa til í borg sem áður var í niðurníðslu og borgararnir svangir og
yfirgefnir. Uppbygging er hafin en enn er langt í land.
SÚDAN, AP Tveggja áratuga borg-
arastríð breytti Juba í niðurnídda
borg þar sem var fátt að finna ann-
að en aldrað fólk, hungrað og yfir-
gefið. Nú, ári eftir að stjórnvöld og
uppreisnarmenn í suðurhluta
landsins komust að samkomulagi
um vopnahlé, er hafin uppbygging
í borginni og heimamenn sjá fram
á að geta lifað góðu lífi þrátt fyrir
allt það sem hefur gengið á.
Vopnahléið gæti reyndar enn
farið út um þúfur. Deilandi fylk-
ingar eiga enn eftir að ná sam-
komulagi um yfirráð á olíuauði
landsins og borgarastríð geisar
enn bæði í vestur- og austurhluta
landsins. Friður í landinu, ef hann
kemst á, verður því mikið afrek
og sigur friðarumleitana sem Afr-
íkuríki, Evrópuríki og Bandaríkin
hafa beitt sér fyrir.
„Ég trúi því að borgin verði
mjög frábrugðin því sem verið
hefur þegar friður kemst á,“ segir
Adou Kelefa, bifvélavirki og vagn-
stjóri. „Við gætum jafnvel fengið
betri rútur og bíla, í staðinn fyrir
þessa hauga af járni og reyk sem
eru hérna núna.“ Kelefa bjó í Juba
allt borgarastríðið og segist stoltur
aldrei hafa lagt á flótta þrátt fyrir
harða bardaga. Búist er við því að
íbúafjöldi Juba vaxi úr 350.000 í
eina milljón þegar þeir sem lögðu
á flótta snúa aftur.
Meðan á bardögum stóð var
Háskólanum í Juba breytt í bæki-
stöð fyrir vígamenn sem studdu
við bakið á stjórnvöldum. Nú er
verið að gera hann upp og búa til
kennslu á nýjan leik. Matvæli ber-
ast frá norðurhluta landsins, sem
er mikil breyting frá því sem áður
var. Talið er að um tvær milljónir
Súdana hafi látið lífið vegna borg-
arastríðsins, að mestu vegna
hungursneyðar sem varð fylgi-
fiskur átakanna.
Enn má sjá ummerki hung-
ursneyðanna sem stríðið leiddi
yfir landsmenn. Börnin þjást enn
af vannæringu, blóðskorti og
malaríu auk þess tilfinningalega
áfalls sem mörg þeirra urðu fyrir
við að missa foreldra sína og upp-
lifa átökin.
Flest börnin búa til skriðdreka
og herflugvélar þegar þau fá leir
til að móta hluti úr, segir Angelo
Jinawe leikskólakennari. Í Juba
eru 85 kennarar sem Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna hefur þjálf-
að til að hjálpa börnunum að kom-
ast yfir áfallið. „Við vonum að
börnin geti lært eitthvað jákvætt í
gegnum leiki og að lokum læknast
af sálrænum sárum sínum,“ segir
Jinawe. ■
BOLLUDAGUR
ÚRVALS FISKFARS
199 kr/kg
NÝSTEIKTAR FISKIBOLLUR
499 kr/kg
STÚTFULLF FISKBORÐ, MJÓLK OG FL.
FISKBÚÐIN
LÆKJARGÖTU 34 HAFNARFIRÐI S. 565 - 5488
BÖRN Í SKÓLA
Áhersla er lögð á að hjálpa börnum sem
hafa orðið illa úti í stríðinu. Í Juba er
einnig hafið átak til að hjálpa börnum sem
hafa misst foreldra sína úr eyðni og vinna
gegn fordómum gagnvart sjúkdómnum.
FÖGNUÐUR Í STAÐ ÓFRIÐAR
Hópur aldraðra og ungra bæjarbúa bjóða gesti
velkomna á flugvellinum við Juba. Á árum áður
héldu hermenn til við flugvöllinn og fóru þaðan
til bardaga við uppreisnarmenn. Herinn hefur
haldið sig mun meira til hlés síðasta árið.
BYGGINGAFRAMKVÆMDIR
Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um
0,3% milli mánaða.
Byggingarvísitala:
Hækkun 1,4%
frá því í fyrra
EFNAHAGSMÁL Vísitala byggingar-
kostnaðar stendur nú í 289,5 stig-
um og hefur hækkað um 1,4% á
síðustu tólf mánuðum. Þetta kem-
ur fram í frétt frá Hagstofu Ís-
lands.
Hækkunin milli mánaða nemur
0,3% sem þýðir 3,8% hækkun á
ársgrundvelli. Byggingarvísitalan
hækkaði um 1,3% frá janúar 2003
til janúar 2004 og um 2,7% árið á
undan. Hækkunin var miklum
mun meiri árið 2001 en þá nam
hún 11,4%. ■
UM TÍU ÞÚSUND ERLENDIR RÍKISBORGARAR BÚA HÉR Á LANDI
Flestir starfa í matvælaiðnaði og heilbrigðisþjónustu en mikil aukning hefur einnig orðið í
hótel- og veitingarekstri og fiskveiðum. Í máli Sigurðar Guðmundssonar hjá efnahagsskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins kom fram að erlent vinnuafl hefði haft jákvæð áhrif á efna-
hagslífið á Íslandi, ólíkt þeirri þróun sem hefur víðast orðið á Norðurlöndunum. Myndin er
tekin á Kárahnjúkum, þar sem fjöldi útlendinga starfar um þessar mundir.
GULUR HIMINN Í AUSTURRÍKI
Sérstætt náttúrufyrirbrigði gat að líta í
Austurríki í gær þegar sandur frá Sahara
eyðimörkinni barst þangað með heitum
vindi svo himinninn litaðist gulur.
Þjóðahátíð í Reykjavík:
Fáum ekki allt
fyrir ekkert