Fréttablaðið - 22.02.2004, Page 19
„Við erum búnir að tryggja
mjög heilbrigðan efnahag í félag-
inu. Með þessum aðgerðum verð-
ur eigið fé félagsins í kringum
fimm hundruð milljónir og nettó
skuldir rétt rúmar tvö hundruð
milljónir. Þannig að við teljum fé-
lagið vera orðið mjög vel fjár-
magnað,“ segir Baldur.
Snúið til sóknar
Hann segir að breytingar fylgi
ávallt nýjum mönnum en það
muni koma í ljós hversu miklar
þær komi til með að verða.
Baldur staðfestir að skuldir fé-
lagsins hafi numið á fimmta millj-
arð króna en segir að heildar-
skuldirnar nú séu komnar niður í
2,7 milljarða. Hann segir að þótt
staðan sé erfið þá hafi verið aug-
ljós merki um bata í rekstrinum á
síðasta ári en að slæm fjárhags-
staða félagsins hafa verið stjórn-
endum félagsins til trafala.
Með endurfjármögnun segir
Baldur að ekkert sé því til fyrir-
stöðu að félagið nái fyrri styrk
sínum. „Það mun auðvitað taka
ákveðinn tíma en að hluta til hef-
ur staðan verið erfið vegna fjár-
hagsstöðunnar þannig að með
þessu teljum við okkur vera
komna með grundvöll til þess að
fara í sókn. Menn hafa verið að
spila vörn en nú verður spilaður
sóknarbolti,“ segir Baldur.
thkjart@frettabladid.is
19SUNNUDAGUR 22. febrúar 2004
NÝR VIÐ STÝRIÐ
Kristinn Geirsson mun stýra Ingvari Helga-
syni. Félagið þarf að vinna upp tapaða
markaðshlutdeild á bílamarkaðinum.
Hagstofan hefur birt tölur yfirvöruskiptin á síðasta ári. Árið
2002 var 12,5 milljarða afgangur á
vöruskiptajöfnuði en 16,9 millj-
arða halli árið 2003 ef miðað er við
fast gengi. Viðsnúningur til hins
verra í vöruskiptum landsmanna
nemur því 29,4 milljörðum. Vöxtur
innflutnings er drifinn áfram af
innflutningi fjárfestingarvara og
neysluvara og bifreiða.
Greiningardeild KB banka bend-
ir á að ef litið sé til baka sjáist að
styrking krónunnar í byrjun árs
2002 hafi orðið til þess að auka inn-
flutning neysluvara og þá sérstak-
lega varanlegra neysluvara. Vöxtur
í innflutningi varanlegra neyslu-
vara var hvað mestur undir lok árs
2002 eða nærri 70%. „Innfluttur
varningur lækkar í verði þegar
gengi krónunnar hækkar og af töl-
um að dæma virðist almenningur
haga kaupum sínum eftir sveiflum í
gengi krónunnar. Hátt gengi virð-
ist því vera þensluhvetjandi að
minnsta kosti til skamms tíma.“
segir í hálffimmfréttum greiningar-
deildar KB banka. Vakin er athygli
á því að hætta sé á að hækki vextir
erlendis muni það hafa áhrif á
einkaneysluna hér á landi þar sem
útlánaaukning banka bendi til að
neyslan sé tekin að láni. ■
NEYSLA AÐ LÁNI
Íslendingar eru lánaglatt fólk. Aukin neysla
sem birtist í vöruskiptahalla þjóðarbúsins
virðist að mati greiningardeildar KB banka
vera fjármögnuð með aukinni lántöku.
Neysluaukning landsmanna:
Fjármögnuð með lánum