Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 11
Við hvetjum lesendur til að senda okkur
línu og segja skoðun sína á fréttum
blaðsins, viðhorfum sem birtast í
blaðinu eða leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Bréf skulu vera stutt og
gagnorð, 50–200 orð að lengd. Ritstjórn
áskilur sér rétt til að stytta aðsent efni.
Vinsamlega sendið efnið í tölvupósti á
netfangið greinar@frettabladid.is.
„En verst er þó að vita ei hverju er
um að kenna,“ orti Jónas Friðrik
Guðnason og allir sem hafa horft á
ástvini sína verða eiturbylgjunni að
bráð, skilja hvað hann á við. Árlega
lenda hundruð íslenskra foreldra í
þeirri ömurlegu aðstöðu að horfa
upp á börnin sín lenda í vítahring
fíkniefnaneyslu og á alla þessa
foreldra leitar spurningin „hvers
vegna?“ Við leitum svara alls
staðar. Við finnum sökudólga, ekki
síst í sjálfum okkur. Við hefðum átt
að sinna barninu okkar betur, sýna
því meiri kærleika, ala það upp í
meira sjálfstæði, setja því strangari
reglur, vera betur á verði. Við
finnum líka auðveldlega sökudólga
utan heimilisins; skólakerfið brást,
félagsmiðstöðin lagði ekki næga
áherslu á forvarnir, barnið var lagt í
einelti eða var vinsælla en það hafði
gott af, reyndar eignaðist það
kolómögulega vini. Þegar barnið
flosnaði upp úr skóla vildi vinnu-
markaðurinn ekki taka við því,
„kerfið“ brást, samfélagið brást,
tollgæslan brást, fíkniefna-
hundurinn brást, já það er sannar-
lega enginn skortur á sökudólgum.
Staðreyndin er sú að við vitum
ekkert hverju er um að kenna. Við
vitum að samspil erfða og um-
hverfis ræður nokkru um líkurnar
á því að barn verði fíkill og að
mikilvægasta forvarnarstarfið er
unnið á heimlinum. En það er
alveg sama hvað við erum
stórkostlegir foreldrar, hversu
heilbrigð og fullkomin börn við
eigum, hversu frábært skólakerfi
þau búa við, hversu margar
félagsmiðstöðvar við reisum,
hversu öflugt forvarnastarf við
vinnum og hversu margar fíknief-
nasendingar við gerum upptækar,
það verða samt alltaf einhverjir
sem veikjast af þessum banvæna
sjúkdómi.
Það er sannarlega verra en
dauði og þyngra en sorg að sjá
barnið sitt verða vímuefnum að
bráð. Þess vegna er ómetanleg
blessun að vita að til eru úrræði, að
enn er von, jafnvel þótt við áttum
okkur á því að unglingurinn á heim-
ilinu sé orðinn þræll vímuefnafík-
nar. Nú eru liðin 27 ár síðan fyrstu
Íslendingarnir fengu aðstoð SÁÁ til
að ná tökum á sjúkdómnum og ég
fullyrði að svo til hver einasti
landsmaður þekkir dæmi um fólk
sem hefur farið í meðferð hjá SÁÁ
og snúið lífi sínu til betri vegar.
Á næstu dögum munu sölumenn
SÁÁ biðja um stuðning okkar í
skiptum fyrir lítið verndartákn,
SÁÁ-álfinn. Stöndum saman um að
tryggja börnunum okkar og
börnum nágrannanna sjúkrahús-
vist ef eitthvert þeirra skyldi þrátt
fyrir allt veikjast af sjúkdómi sem
veldur þunglyndi og jafnvel dauða
sé hann ekki meðhöndlaður á
réttan hátt. Markmið SÁÁ er að
selja a.m.k. einn álf fyrir hvert
einasta ungmenni í landinu.
Stöndum saman um að ná því
markmiði og kaupum álfinn, af því
að starfsemi SÁÁ skilar raun-
verulegum árangri, af því að
sjúkdómurinn fer ekki í
manngreinarálit og af því að hver
og einn skiptir máli. ■
11SUNNUDAGUR 16. maí 2004
SMÁA LETRIÐ
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
PÆLIR Í ÞINGINU
Ég vissi það. Alþingi er furðulegasti
vinnustaður landsins. Endanleg staðfest-
ing á því fékkst í vikunni.
Starfsreglunar þar eru einstakar og eiga
sér ekki hliðstæðu annars staðar. Verklag-
ið er líka undarlegt og til marks um það
má benda á að enginn hefur séð ástæðu
til að taka það sér til fyrirmyndar, hvorki
aðrar stofnanir né fyrirtæki.
Þinghald fer vanalega fram í um sex mán-
uði á ári. Skiptar skoðanir eru um hvort
það sé gott eða vont. Sumir segja nauð-
synlegt að lengja starfstímann svo betra
tóm gefist til afgreiðslu mála. Aðrir segja
þetta hæfilegan tíma eða jafnvel of lang-
an þar sem lögunum fjölgar eftir því sem
þingið starfar lengur og næg er nú vit-
leysan samt. En látum þetta liggja milli
hluta.
Klæðareglur þingmanna eru skýrar en um
leið skrítnar. Konur eiga að vera sóma-
samlega til fara og karlar eiga að vera með
bindi. Hvorugt skilyrðið tryggir hins vegar
skikkanlegan klæðaburð eins og dæmin
sanna. Það fer nefnilega sumum karl-
mönnum óhemju illa að vera með bindi og
er þá betur heima setið en af stað farið.
Jakkar þeirra, buxur og skyrtur passa líka
ansi oft engan veginn saman. Konurnar
geta svo leyft sér að vera í nánast hverju
sem er og mussurnar og peysurnar sem
sumar þeirra klæðast væru best nýttar til
garðvinnu. En látum þetta liggja milli
hluta.
Virðing Alþingis er eitt. Um hana er rætt á
hátíðarstundum og raunar oftar. Hamrað
er á hversu mikilvægt er að þjóðin virði
þingið, þessa elstu löggjafarsamkomu
heims. Það er hinsvegar svo að virðing er
ekki ákveðin, hún er áunnin. Orð og
gjörðir þingmanna eru varla til þess fallin
að gera Alþingi að virðulegri stofnun.
Þvert á móti. En látum þetta liggja milli
hluta.
Samræður þingmanna eru í besta falli
ömurlegar. Fólk rífst og skammast heilu
og hálfu fundina, kallar hvort annað öll-
um illum nöfnum, það segir málflutning
mótherjanna ótrúverðugan og dásamar
sjálft sig á kostnað annarra. En látum
þetta liggja milli hluta.
Á kaffistofu Alþingis ríkir stéttaskipting.
Þar er vinnufólkinu meinað að sitja til
borðs með aðlinum. Almennt starfsfólk
þingsins má ekki fá sér molasopa með al-
þingismönnum. Og óbreyttir þingmenn
skulu gjöra svo vel og halda sig fjarri sér-
stökum dúkuðum borðum formanna
stjórnarflokkanna. Þetta læt ég ekki liggja
milli hluta. Þetta finnst mér of mikið.
Helgi Hjörvar vakti athygli á þessu á
helgi.is í vikunni og Mogginn tók sig til og
spurði skrifstofustjóra þingsins út í málið
sem svarar með svo loðnum hætti að
lopapeysa af stærstu sort verður að leist-
um í samanburði. Skrifstofustjórinn segir
að á kaffistofunni ríki „viss aðskilnaður,“
en „það er ekkert sem gengur út á að að-
skilja starfsfólk og þingmenn,“ og „það
þarf náttúrlega að hafa viss atriði í huga
svo það skapist ekki misskilningur“.
Þetta færir mér heim endanlega sanninn
um að Alþingi er furðulegasti vinnu-
staður landsins. Vinnur fólk þarna af fús-
um og frjálsum vilja?
Aðskilnaðar-
stefna Alþingis
Dekk 33” (285/75-16) 95.000 kr.
Dráttarbeisli 63.000 kr.
Afturmottur 4.000 kr.
Frammottur 5.000 kr.
Langbogar svartir 51.000 kr.
PATROL
(Listaverð 5.190.000 kr.)
PATROL ELEGANCE sjálfskiptur 3.0 TDI 158 hö.
4.995.000 kr.
Ingvar Helgason ehf. býður Nissan Patrol á sérstöku
tilboðsverði nú í maí. Í ofangreindu verði er
aukahlutapakki upp á 218.000 kr.
PATROL ELEGANCE 3.0 TDI 158 hö/bs
4.810.000 kr.
(Listaverð 4.990.000 kr.)
PATROL LUXURY 3.0 TDI 158 hö/bs
4.530.000 kr.
(Listaverð 4.690.000 kr.)
PATROL LUXURY 3.0 TDI 158 hö/ss
4.717.000 kr.
(Listaverð 4.890.000 kr.)
Tilboðið gildir aðeins fyrir pantanir greiddar fyrir 17.06.2004
Sumar
tilboð
Ingvar
Helgason
Sævarhöfða 2 · sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is F
í
t
o
n
/
S
Í
A
0
0
9
5
9
0
UMRÆÐAN
FJÁRÖFLUN SÁÁ
HARALDUR LOGI HRAFNKELSSON
RÁÐGJAFI Á UNGLINGADEILD VOGS
Það er sannarlega
verra en dauði og
þyngra en sorg að sjá barnið
sitt verða vímuefnum að
bráð.
,,
Starfsemi SÁÁ skilar raunverulegum árangri