Fréttablaðið - 16.05.2004, Page 14
6%* – Peningabréf Landsbankans
www.li.is
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun 01.04.2004–30.04.2004 á ársgrundvelli.
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er
vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari
upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir
sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 560 6000.
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
46
15
5
/2
00
4
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
46
15
5
/2
00
4
Banki allra landsmanna
á
su
nn
ud
eg
i
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
Olí Olí Olí
Ola Olía
AP NEW YORK Miðlarar hrópuð og
kölluðu í atgangingum á markaði í
New York á föstudag. Heims-
markaðsverð olíu hefur haldið
áfram að hækka og náði nýju há-
marki á föstudag. Markaðurinn
hefur efasemdti um að OPEC rík-
in muni bregðast við hækkandi
verði með mikilli framleiðslu-
aukningu, auk þess sem ótti er við
hryðjuverk í Sádi Arabíu. ■
Ráðning Más Guðmundssonar,aðalhagfræðings Seðlabanka
Íslands, til Alþjóðagreiðslubank-
ans í Basel í Sviss, BIS, sætir tíð-
indum. Már hefur verið ráðinn að-
stoðarframkvæmdastjóri og stað-
gengill framkvæmdastjóra pen-
ingamála- og hagfræðisviðs bank-
ans. Staðan er ein æðsta staða
sem hagfræðingi getur hlotnast
innan alþjóðabankastofnunar. Jón
Sigurðsson var valinn úr hópi nor-
rænna manna í stöðu bankastjóra
Norræna fjárfestingarbankans
sem telst hærri staða, en Már er
valinn úr hópi fulltrúa þar sem
íbúar 50 landa eiga möguleika. Í
báðar þessar stöður er valið úr
stórum hópi eftir strangt hæfnis-
mat, án tilnefningar stjórnvalda.
Ekki er unnið út frá neinum þjóð-
arkvóta við slíkar ráðningar.
Ekki að líta í kringum sig
„Þetta hafði ekki langan að-
draganda,“ segir Már. „Ég var
ekki að líta í kringum mig eftir
störfum erlendis þegar maður
hafði samband við mig sem
greinilega hafði það verkefni að
leita að fólki í þetta starf. Hann
talaði mig til með lagni að setja
nafn mitt í þennan pott.“ Þetta var
í febrúar.
Nefnd mjög háttsettra starfs-
manna innan stofnunarinnar fór
yfir umsóknirnar sem voru 80
talsins. Umsækjendum fækkaði
úr 80 í 26. Síðan var hópurinn
þrengdur niður í tólf og undir lok-
in komu þrír til greina. Niður-
staðan var svo ráðning Más, eftir
strangt hæfnismat á öllum stig-
um ráðningarferilsins. Már fór
tvisvar í viðtal til Basel og full-
trúi frá bankanum kom hingað til
lands til viðræðna við hann. „Þeir
kynntu sér feril minn mjög ræki-
lega.“
Allar leiðir liggja til Basel
Alþjóðagreiðslubankinn í
Basel er í eigu 50 seðlabanka,
þar með taldir eru allir stærstu
seðlabankar heimsins. „Þetta er
banki fyrir seðlabanka, en hann
er líka fræða- og fundasetur.
Þarna hittast seðlabankastjórar
annan hvern mánuð og ráða
ráðum sínum. Hlutverk stofn-
unarinnar er að undirbúa þá
fundi; leggja fyrir þá efni og
taka þátt í þeim.“ Már segir að
bankinn gefi út viðamikla ár-
sskýrslu og ársfjórðungsrit þar
sem farið er yfir stöðu fjár-
málamarkaða í heiminum
ásamt fjölda rannsóknarrit-
gerða á sviði peningamála og
fjármálastöðugleika. „Bankinn
er á þessum sviðum sem seðla-
bankar eru, það er að segja pen-
ingamála og fjármálastöðug-
leika.“ Már segir bankann ein-
nig hýsa nokkrar nefndir, svo
sem nefnd sem er að ákvarða
nýjar reglur um eiginfjárhlut-
fall banka, auk fleiri nefnda og
stofnana sem fjalla um fjár-
málastöðugleika, greiðslumiðl-
un og fleiri svið alþjóðlegs fjár-
málakerfis.
Einstakt tækifæri
Á sviðinu sem Már hefur störf við
í júní starfa um 100 manns. Hann er
næstráðandi aðalhagfræðings og
fjórði maður í skipuritinum frá
bankastjóra Alþjóðagreiðslubank-
ans. Hann neitar því ekki að þetta sé
upphefð. Bankinn rekur starfsstöðv-
ar í Mexikó og Hong Kong. „Aðallega
er reynt að toga menn til Basel og
halda fundi þar. Þangað finnst seðla-
bankastjórum gott að koma og
funda.“ Már mun sinna sérfræðisviði
sinu í peningastefnu, þjóðhagfræði
og fjármálastöðugleika í víðu sam-
hengi. Svið sem Már hefur sinnt við
Seðlabanka Íslands. Hann hefur að
sögn kunnugra verið sá sem ráðið
hefur vaxtaákvörðunum bankans.
Már hefur unnið hjá Seðlabanka Ís-
lands frá árinu 1977. Fyrst sem sum-
armaður, en í föstu starfi frá 1980.
Hann tók sér hlé frá störfum í bank-
anum frá 1987 til 1991. Fyrst vegna
doktorsnáms í Cambridge og síðar
vegna starfa sem efnahagsráðgjafi
Ólafs Ragnars Grímssonar í fjár-
málaráðuneytinu. Þetta er því orðinn
langur ferill innan bankans. „Þetta er
náttúrlega tilboð sem maður fær
einu sinni á ævinni.“
haflidi@frettabladid.is
Í miðstöð seðlabankanna
LYKILMAÐUR TIL SVISS
Már Guðmundsson er að mati margra maðurinn á bak við ákvarðanir Seðlabankans varðandi stjórn peningamála. Hann hefur verið ráðinn í stjórnunarstöðu hjá Alþjóðagreiðslubankan-
um í Sviss sem verður að teljast mikil viðurkenning fyrir bæði hann og bankann.
Það orð hefur lengi farið af Má Guðmundssyni, aðalhagfræðingi Seðlabankans,
að þar fari yfirburðamaður á sínu sviði. Alþjóðlegt mat staðfestir það svo um
munar því Már hefur verið valinn til ábyrgðarstarfa í Alþjóðagreiðslubankanum
í Sviss. Framherjastaða hjá heimsklúbbi svo gripið sé til knattspyrnumáls.
Þá hrundi efnahags-
lífið í Rússlandi
1998 og markaðurinn
með.Við töpuðum ekki bara
viðskiptunum, heldur einnig
kröfum sem við áttum
þarna.
,,