Fréttablaðið - 16.05.2004, Page 30
VISSIR ÞÚ ...
...að selir verða bullandi sjóveikir
þegar þeir eru teknir um borð í
skip?
...að naggrísir og kanínur geta ekki
svitnað?
...að það tekur letibjörn tvær vikur
að melta fæðu?
...að strútar njóta ekki nógu mikillar
virðingar þrátt fyrir að hlaupa
hraðar en hestar og öskra eins og
ljón?
...að gæludýrafóðursframleiðandinn
Ralston Purina þróaði nýlega kjúk-
lingafóður sem hjálpar hönum að
byggja upp stærri vöðva til að hafa
betur í hanaat, sem reyndar er vin-
sæll um víða veröld?
...að Filippseyingar nota fimm
milljón hana í hanaat á ári?
...að hnísan er gáfaðasta dýr heim-
sins, á eftir manninum?
...að hákarl og skata eru einu dýrin
sem ekki fá krabbamein?
...að dádýr éta ekki hey?
...að p-pillan virkar líka á górillur?
...að hundar hafa betri sjón en
menn, þó ekki eins litríka?
...að íkorni lifir að meðaltali níu ár?
...að górillur sofa í fjórtán tíma á
sólarhring?
...að til eru fleiri en fimmtíu
kengúrutegundir?
...að kvenkyns ljón sjá í 90 prósenta
tilvikum um veiðina í búið?
...að breiðnefur getur geymt allt að
sex hundruð orma í kinnum sínum?
...að líkur á að sjá þrjú albínóa
dádýr í einu er einn á móti sjötíu
og níu milljörðum? Þó tók maður
nokkur mynd af þremur slíkum í
skógi í Wisconsin.
...að kettir nudda sér oft upp að
fólki og húsgöngum til að skilja
eftir eigin þef og merkja sér
umráðasvæði?
...að þú getur sagt til um kyn hesta
með því að telja tennur þeirra?
Hestar hafa fjörtíu tennur en
hryssur þrjátíu og sex.
...að kettir sofa í átján tíma á dag,
en aldrei eins djúpt og menn?
Gunni Þórðar finnur fyrir
aldrinum á sunnudögum.
SUNNUDAGAR
16. maí 2004 SUNNUDAGUR12
Það besta við sunnudaga
Tvímælalaust íslenska lambalærið í
ýmsum útsetninum. Nú orðið
borðar maður það í kvöldmat en
ólst auðvitað upp við að það væri í
hádeginu með grænum baunum,
rauðkáli, brúnni sósu og sultu. Það
er alltaf rosalega gott og því
tengjast ljúfar minningar frá upp-
vaxtarárum. Ég hef ekki borðað
almennilega í hádeginu síðan ég
flutti frá pabba og mömmu.
Það versta við sunnudaga
Lúinn sem kemur í kjölfar þess að
hafa verið að spila kvöldið áður.
Maður er aumur í hálsinum og
eiginlega öllum skrokknum. Verst
er þó þreytan í fótunum af því að
hafa staðið á sviðinu allt kvöldið
og fram á nótt. Þá finnur maður
fyrir aldrinum.
Krakkarnir á Klettaborg í Borgarnesi ánægð með lífið og tilveruna.
SJÓNARHORN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M