Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 33
Brjóstastækkunaraðgerðirhafa talsvert verið í um- ræðunni síðustu ár. Margir vilja meina að hugmyndin um stærri brjóst sé komin úr klámmyndageiranum eða að minnsta kosti með vísun í hann. Þegar sjónvarpsþætt- irnir Strandverðir voru hvað vinsælastir, með Pamelu Anderson í fylkingarbrjósti, fannst mörgum sem brjósta- stækkunaraðgerðum færi fjölgandi á Vesturlöndum. Um- ræðan um brjóstaaðgerðir varð í það minnsta mun meiri en áður hafði þekkst, ekki síst hér á landi. Engar opinberar töl- ur eru til um fjölda brjóstastækkunarað- gerða á Íslandi en gera má ráð fyrir að um 300 slíkar aðgerðir séu framkvæmdar á ári hverju. Aðeins eru sjö sjálfstætt starf- andi lýtalæknar sem sérhæfa sig í slíkum aðgerðum hér á landi. Fréttablaðið leitaði til nokkurra þeirra en erfitt reynd- ist að fá þá til að tjá sig um aðgerðirnar – ekki síst vegna þeirrar umræðu sem varð í kringum Ruth Reginalds og þær lýtaað- gerðir sem hún hugðist fara í. Meiri áhugi Þeir lýtalæknar sem Fréttablaðið ræddi við sögðu þó að ekki væru miklar sveiflur í fjölda brjóstastækkunarað- gerða milli ára. Þeir vildu því ekki meina að brjóstastækkun væri einhvers konar tískubóla sem springi. Máli sínu til stuðn- ings bentu þeir á að maðurinn hefur átt við líkama sinn í fegrunarskyni í aldanna rás – þótt vissulega séu fegurðarhug- myndir manna misjafnar. Lýtalæknarnir segjast þó hafa fundið fyrir meiri áhuga hjá fólki á að ræða slíkar aðgerðir í kjöl- far sýninga á sjónvarpsþáttum sem snúa að lýtalækningum, þáttum á borð við Nip/Tuck og Extreme Makeover. 180-250 þúsund fyrir stærri brjóst Á Íslandi eru það konur á aldrinum 30-50 ára sem gangast helst undir brjóstastækk- unaraðgerðir. Yngri konur hafa einnig sótt talsvert í slíkar aðgerðir – stúlkur frá allt að sextán ára aldri. Að sögn lýtalæknis sem Fréttablaðið ræddi við er ungum stúlkum þó vísað frá í stórum stíl þar sem ekki hef- ur þótt ástæða til að framkvæma slíkar að- gerðir. Að sögn læknisins eru stúlkurnar ekki nógu þroskaðar eða mótaðar og líta oft á tíðum röngum augum á sjálfar sig. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins kosta brjóstastækkunaraðgerðir á bil- inu 180-250 þúsund. Misjafnt er hversu stórar fyllingar konurnar fá, þær minnstu eru fimmtíu millilítrar en þær stærstu um eitt þúsund. ■ 21SUNNUDAGUR 16. maí 2004 ðin fékk á heilann NIÐURSTAÐA Að ofangreindu má sjá að þeir allrasvartsýnustu sem höfðu spáð ofangreindum nýjungum sem tískubólum höfðu að mörgu leyti rangt fyrir sér. Þótt umræðan um nýjungarnar hafi minnkað til muna virðast þær hafa náð að festa sig í sessi eins og oft vill verða. Ýmsar nýjungar sem fólk hafði efasemdir um hafa nú aðlagast umhverfinu og eru að mörgu leyti orðnar ómissandi þáttur í tilveru okkar. Þar má nefna hluti á borð við farsíma, tölvur, loftpúða í bílum og svo mætti lengi telja. Þó eru vissulega til ýmsar nýjungar sem hafa ekki náð að festa sig í sessi þó sumir noti þær enn. Þar má meðal annars nefna seyðið af Monsúrí-sveppinum, Atkinskúrinn, SprinkleNetwork, Sjónvarps- markaðinn og sjálfa fatatískuna sem fer hring eftir hring og kemur alltaf aftur. Herbalife-vörurnar fóru um eins ogeldur í sinu fyrir nokkru og á tíma- bili var eins og annar hver maður væri að selja eða neyta fæðubótarefnanna. Umræðan um Herbalife hefur minnkað töluvert síðustu ár en svo virðist sem fólk hafi enn mikinn áhuga á vörunum. „Eins og gerist oft með nýjar vörur voru mikil læti í kringum Herbalife þegar það kom fyrst til landsins,“ segir Erla Bjartmarz sem hefur selt Herba- life um árabil. „Vörurnar fengu nei- kvæða umfjöllun í fjölmiðlum og í fyrstu voru þær kynntar fólki til grenn- ingar. Staðreyndin er hins vegar sú að Herbalife-vörurnar eru góð næring og við lítum fyrst og fremst á þær sem góða frumnæringu. Þær eru meðal ann- ars notaðar af íþróttafólki.“ Fimm ára afmæli Herbalife á Íslandi á fimm ára af- mæli um þessar mundir. Ekki eru til ná- kvæmar tölur yfir þá sem neyta fæðu- efnanna reglulega né um þá sem selja þau. Ef miðað er við þá Herba l i fe - sa la sem skráðir eru í símaskránni á netinu virðist sem Íslendingar neyti enn fæðubótarefnanna í stórum stíl. Heilar þrjár síður koma upp yfir sjálfstæða Herbalifesala í símaskránni og þá eru ótaldir allir þeir sem ekki eru skráðir þar. Erla segir að þótt umræðan um Herbalife hafi minnkað síð- ustu ár hafi söluaukningin ver- ið mikil. „Við sjáum til að mynda 38% söluaukningu hjá okkur frá síðasta ári og salan er miklu meiri nú en hún var í upphafi,“ segir Erla og er síður en svo á því að Herbalife sé einhvers konar bóla. „Ég hef lengi verið sjálfstæður dreif- ingaraðili með Herbalife-vörur og það er spennandi að sjá þann árangur sem fólk hefur náð. Herbalife er lífsstíll þar sem náttúran og vísindin vinna saman og ég vil gjarnan leið- rétta þann misskilning að um einhverja bólu sé að ræða,“ segir Erla sem er á leið til London til að fagna tuttugu ára afmæli Herbalife í Evrópu. ■ Herbalife: Síður en svo bóla DREIFIR HERBALIFE Erla Bjartmarz er einn dreifingaraðila Herbalife, en sú var tíðin að þjóðin virtist hafa steypt sér í neyslu á þeirri vöru. Erla segir síður en svo um bólu að ræða. BRAUTRYÐJANDI Pamela Anderson varð eins konar táknmynd brjóstastækkana. Fjölmargar íslenskar stúlk- ur fylgdu í kjölfar hennar og mátti lesa um það á síðum tímarita og blaða lengi vel. Brjóstastækkanir: Ekkert lát á brjóstastækkunum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.