Fréttablaðið - 16.05.2004, Side 37
25SUNNDAGUR 16. maí 2004
Engir meistarataktar
hjá KR-ingum
FH-ingar gripu máttlausa meistara úr Vesturbænum í bólinu í gær og unnu sanngjarnt, 1–0.
FÓTBOLTI Landsbankadeildin í
knattspyrnu hófst í gær með leik
Íslandsmeistara KR og FH á KR-
velli. Ekki er hægt að segja að
upphaf mótsins hafi verið með
þeim glæsibrag sem menn vonuð-
ust til því leikurinn náði aldrei
miklum hæðum. Það var ótrúleg-
ur vorbragur á leik liðanna jafn-
vel þótt liðin séu bæði búin að
spila hátt á þriðja tug leikja á und-
anförnum mánuðum. Þrátt fyrir
mikla bragarbót á aðstöðu liðanna
yfir vetrarmánuðina hefur það
því miður ekki skilað sér í því að
liðin komi betur undirbúin til
leiks þegar deildin hefst. FH-ing-
ar voru þó sterkari og unnu sann-
gjarnt, 1-0.
Það vantaði fjölmarga lykil-
menn í liðin og voru KR-ingar
sýnu grátt leiknari í þeim efnum.
Arnar Gunnlaugsson, Bjarki
Gunnlaugsson og Sigurvin Ólafs-
son voru með þeirra sem vantaði í
KR-liðið en FH-ingar voru án
tveggja af sínum öflugustu sókn-
armönnum, þeirra Allans
Borgvardt og Ármanns Smára
Björnssonar.
Það vantaði samt ekki ógnun-
ina í FH-liðið í fyrri hálfleik. Atli
Viðar Björnsson og Jón Þorgímur
Stefánsson gerðu KR-vörninni líf-
ið leitt með hraða sínum og það
fór vel á því að það skyldi vera
Atli Viðar sem skoraði fyrsta
mark leiksins og Landsbanka-
deildarinnar þetta árið á 26. mín-
útu eftir skelfileg varnarmistök
Gunnars Einarssonar. Atli Viðar
lék á Kristján Sigurðsson og skor-
aði af öryggi framhjá Kristjáni
Finnbogasyni.
Það sem eftir lifði hálfleiks
voru FH-ingar klaufar að auka
ekki muninn enn frekar. Daninn
Simon Karkov fékk dauðfæri sem
hann nýtti ekki og Jón Þorgímur
komst tvívegis einn inn fyrir vörn
KR án þess að ná að nýta sér það.
KR-ingar voru aftur á móti með-
vitundarlausir með öllu. Sending-
ar voru tilviljunarkenndar, örygg-
ið í vörninni var lítið og eina ógn-
un liðsins í fyrri hálfleik var skot
hjá hinum 17 ára gamla Kjartani
Henry Finnbogasyni fyrir utan
vítateig sem fór nokkuð framhjá
markinu.
Það sama var uppi á teningnum
í byrjun síðari hálfleiks. FH-ingar
voru sterkari og það sem munaði
mestu um að var að það var ein-
hver hugsun í sóknarleik þeirra.
Það var aftur á móti ekki heil brú
í sóknarleik KR-inga og einu
skiptin sem eitthvað gerðist var
þegar Kjartan Henry gerði eitt-
hvað upp á eigin spýtur. Hann hélt
allri FH-vörninni við efnið út leik-
inn og komst tvívegis í góð færi.
Fyrst lét hann Daða Lárusson
verja frá sér skot eftir að hafa
leikið Tommy Nielsen grátt á 65.
mínútu og tveimur mínútum síðar
varði Daði skalla frá honum.
Kjartan lagði síðan upp dauðafæri
fyrir Tékkann Petr Podzemsky á
81. mínútu en líkt og flest það sem
hann tók sér fyrir hendur í leikn-
um yfirleitt fór það færi forgörð-
um. Þegar upp er staðið áttu FH-
ingar sigurinn fyllilega skilið –
þeir voru einfaldlega miklu betri
en KR-ingar.
Hinn 17 ára gamli framherji
KR-inga var algjör yfirburðamað-
ur liðsins og sá eini sem eitthvað
skapaði í leiknum. Félagar hans
fylgdu honum ekki eftir nema ef
vera skildi Guðmundur Bene-
diktsson, sem dúkkaði upp eins og
draugur úr grárri forneskju í
byrjun síðari hálfleiks. Guðmund-
ur hefur lítið sem ekkert æft með
KR en hann sýndi fína takta þann
tíma sem hann hafði kraft og
þrek. Aðrir leikmenn liðsins voru
afspyrnuslakir og sérstaklega er
það umhugsanvert fyrir KR-inga
hversu lélegur Tékkinn Podz-
emsky var. Hann átti varla send-
ingu á samherja, vann ekki návígi
og virkaði oft eins og álfur út úr
hól. KR-liðið þarf að hysja upp um
sig buxurnar eftir þennan leik því
ekki verða stigin mörg í sumar ef
áframhald verður á þessari spila-
mennsku.
FH-ingar voru sterkir sem liðs-
heild. Þeirra bestir voru Ásgeir
Ásgeirsson, sem stjórnaði miðj-
unni af myndarbrag ásamt félaga
sínum Heimi Guðjónssyni, og Atli
Viðar Björnsson, sem var stöðugt
ógnandi allan tímann. Freyr
Bjarnason steig heldur varla feil-
spor í vinstri bakverðinum og var
bestur varnarmanna liðsins. Dan-
inn Simon Karkov olli hins vegar
vonbrigðum og var hann undir
sömu sök seldur og Tékkinn hjá
KR – varla þess virði að sækja
slíka menn til útlanda.
FH-liðið sýndi það í þessum
leik að það verður gífurlega öfl-
ugt í sumar, sterk liðsheild með
markvissan sóknarleik.
oskar@frettabladid.is
TRYGGÐI FH-INGUM ÞRJÚ DÝRMÆT
STIG
Atli Viðar Björnsson, framherji FH-inga,
sést hér skýla boltanum í leiknum í gær.
Atli Viðar skoraði sigurmarkið í leiknum og
tryggði FH-ingum þrjú dýrmæt stig.
Framherjinn Atli Viðar Björnsson, hetja FH-inga gegn KR:
Sigurinn var virkilega ljúfur
FÓTBOLTI Dalvíkingurinn Atli Viðar
Björnsson skoraði eina mark
leiksins og piltur er greinilega
kominn í sitt gamla góða form eft-
ir meiðsli og er hverjum varnar-
manni skeinuhættur enda einn
allri fljótasti leikmaður Lands-
bankadeildarinnar. Þetta hafði
Atli Viðar að segja eftir leikinn:
„Við fengum fullt af færum í
fyrri hálfleik og áttum þá að gera
út um leikinn. Leikurinn var ekk-
ert sérstakur í það heila og mér
fannst talsverður vorbragur á
báðum liðum. Sigurinn er engu að
síður virkilega ljúfur og við sýnd-
um að breiddin í hópnum er mjög
góð og ef það eru einhverjir
meiddir þá koma bara aðrir í stað-
inn, það er ekkert flóknara en það
og mjög ánægjulegt að vita til
þess. Vonandi er þessi sigur byrj-
unin á góðu sumri hjá okkur en
það er engin spurning að við
stefnum hátt og það býr mikið í
þessu liði,“ sagði Atli Viðar
Björnsson, hetja FH-inga, eftir
leikinn í gær.
Þýðir ekkert að væla
Guðmundur Benediktsson var
að leika sinn fyrsta knattspyrnu-
leik í nokkuð langan tíma en hann
var þó án efa með sprækari mönn-
um KR-liðsins:
„Auðvitað hefði maður viljað
vinna þetta enda mikilvægt að
byrja mótið vel. Við vorum hins
vegar bara ekki alveg í standi og
þá sérstaklega ekki í fyrri hálf-
leik. Spilamennskan var síðan að-
eins skárri í seinni hálfleik en ein-
faldlega ekki nógu góð til að
breyta gangi leiksins að ráði. Við
sköpuðum okkur ekki nógu mörg
afgerandi færi, við erum auðvitað
með unga stráka þarna frammi og
þeir eru að fá sína eldskírn og
þetta fer allt í reynslubankann.
Við verðum að spila af fullum
krafti allan tímann ef við ætlum
að vinna lið eins og FH.“
En hvernig er staðan á Guð-
mundi, er hann laus við meiðsl og
að ná sínu gamla formi?
„Ég er auðvitað ekki búinn að
spila neinn alvörubolta í nánast
tvö ár og því ekki í neinni leikæf-
ingu og það tekur að sjálfsögðu
einhvern tíma að komast í topp-
form en meðan hnén eru í lagi þá
er ég nokkuð sáttur. Nú verðum
við að taka okkur saman í andlit-
inu og það þýðir ekkert að væla
enda enginn tími til þess – þetta
spilast svo þétt í byrjun og við
verðum bara að vera klárir á
fimmtudaginn þegar við förum til
Keflavíkur enda verður það ekki
síður erfiður leikur,“ sagði Guð-
mundur Benediktsson. ■
GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON
Spilaði sinn fyrsta leik fyrir KR síðan 2001.
KR–FH 0–1 (0–1)
0–1 Atli Viðar Björnsson 26.
DÓMARI:
Egill Már Markússon Sæmilegur
BESTUR Á VELLINUM:
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson FH
TÖLFRÆÐIN:
Skot (á mark): 6–13 (2–4)
Horn: 2–4
Aukaspyrnur: 15–15
Rangstæður: 1–5
Spjöld (Rauð) 1–1 (0–0)
FRÁBÆRIR:
Enginn
MJÖG GÓÐIR:
Kjartan Henry Finnbogason KR
Atli Viðar Björnsson FH
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson FH
Freyr Bjarnason FH
GÓÐIR:
Heimir Guðjónsson FH
Jón Þorgrímur Stefánsson FH
Sverrir Garðarsson FH
■ Það sem skipti máli
FYRSTA RANGSTÆÐAN
Jón Þogrímur Stefánsson, FH 1. mínúta
FYRSTA BROTIÐ
Freyr Bjarnason, FH 6. mínúta
FYRSTA SKOTIÐ
Tommy Nielsen, FH 16. mínúta
FYRSTA MARKIÐ
Atli Viðar Björnsson, FH 26. mínúta
FYRSTA MARKVARSLAN
Kristján Finnbogason, KR 37. mínúta
FYRSTA SPJALDIÐ
Heimir Guðmundsson, FH 60. mínúta
■ Í upphafi skal...
EKKI FAGNA OF FLJÓTT Síðast
þegar FH-ingar unnu KR-inga í
fyrsta leik á KR-vellinum endaði
tímabilið ekki vel fyrir Hafn-
firðinga því FH féll um haustið.
Það var sumarið 1995 sem Jón
Erling Ragnarsson tryggði FH
0–1 sigur á KR í fyrsta leik.
TITILVÖRN BYRJAR Á TAPI KR
varð 12. meistaraliðið í 27 ára
sögu tíu liða efstu deildar sem
tapaði fyrsta leik sínum í titil-
vörn. Engu af hinum ellefu
liðunum hefur tekist að verja
Íslandsmeistaratitilinn eftir að
hafa farið stigalaust út úr fyrsta
leiknum. Þegar KR tapaði fyrsta
leik á Íslandsmóti síðast, gegn
Fylki 2001, endaði liðið í 7. sæti.
11–0 FYRIR FH FH-ingar hafa
skorað ellefu mörk í röð gegn KR
í tveimur stærstu mótum
íslenskrar knattspyrnu án þess
að Vesturbæingar hafi náð að
svara fyrir sig. FH lenti 0–2
undir á móti KR í undanúrslitum
bikarins síðasta haust en vann
leikinn 3–2 og svo deildarleik
liðanna tíu dögum seinna 7–0 og
svo aftur 1–0 í gær.
■ Boltabræðingur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
VI
LH
EL
M