Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 38
26 16. maí 2004 SUNNUDAGUR BAKSUND Austurríkismaðurinn Markus Rogan sigraði í 200 metra baksundi á Evrópumótinu sem fram fer í Madríd. SUND Arsenal í sögu- bækurnar Arsenal var ósigrað í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Thierry Henry skoraði sitt 30. deildarmark á leiktíðinni. FÓTBOLTI Englandsmeistarar Arsenal unnu Leicester 2-1 í lokaumferð úrvalsdeildarinnar. Arsenal varð þar með fyrsta félagið í 115 ár sem fer ósigrað í gegnum heilt keppnistímabil. Arsenal sigraði í 26 af 38 leikj- um og gerði jafntefli í tólf leikjum. Meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum gegn fallliði Leicester. Paul Dickov, fyrrum leikmaður Arsenal, kom Leicester yfir með skallamarki á 26. mínútu. Thierry Henry jafnaði úr vítaspyrnu á annarri mínútu eftir leikhlé. Frank Sinclair, varnarmaður Leicest- er, brá Ashley Cole í vítateign- um og Henry skoraði sitt 30. deildarmark úr vítaspyrnunni. Fyrirliðinn Patrick Vieira skor- aði sigurmark Arsenal á 66. mínútu eftir glæsilega stungu- sendingu frá Dennis Bergkamp. Newcastle náði jafntefli við Liverpool á Anfield Road og tryggði sér sæti í UEFA-bikar- keppninni á næstu leiktíð. Bolton eygði möguleika á sæti í UEFA-keppninni en þeir töpuðu 2-0 fyrir Fulham á heimavelli og féllu fyrir vikið í áttunda sætið. Yakubu Aiyegbeni skoraði þrennu á hálftíma fyrir Portsmouth sem vann Middles- brough 5-1. Aiyegbeni bætti fjórða markinu við í seinni hálf- leik og Teddy Sheringaham full- komnaði daginn með sínu 250. deildarmarki. Aston Villa, sem keppir í UEFA-bikarkeppninni á næstu leiktíð, tapaði 2-0 fyrir Manchester United á heima- velli. Ronaldo og van Nistelrooy skoruðu snemma leiks en í seinni hálfleik var tveimur leik- mönnum United vísað af velli. Darren Fletcher var rekinn af velli á 75. mínútu og Ronaldo á 85. mínútu. Þetta var annar brottrekstur Fletcher í deildinni í vetur og komst hann þar með í félagsskap með Maik Taylor, markverði Birmingham, Leeds- aranum Mark Viduka og Andy O’Brien varnarmanni New- castle. Paul Ince var spjaldakóngur deildarinnar. Hann fékk þrettán gul spjöld í vetur og lauk leik- tíðinn með rauðu spjaldi um miðjan seinni hálfleik. ■ LEIKIR  13.00 Landsleikur í handbolta í Eyj- um. Kvennalandslið Íslendinga og Dana keppa.  14.00 Grindavík leikur við ÍBV í Grindavík í Landsbankadeild karla í fótbolta.  14.00 KA og Keflavík keppa á Akureyri í Landsbankadeild karla í fótbolta.  14.00 ÍA mætir Fylki á Akranesi í Landsbankadeild karla í fótbolta.  19.15 Fram keppir við Víking á Laugardalsvelli í Landsbankadeild karla í fótbolta. SJÓNVARP  09.40 Landsbankadeildin á Sýn. Útsending frá leik KR og FH í Lansbankadeild karla.  11.30 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Enski boltinn frá ýmsum hliðum.  13.30 Kraftasport á Sýn. Sterkasti maður Íslands.  13.45 Snjókross á RÚV. Þáttur um kappakstur á vélsleðum.  14.00 Meistaradeild UEFA á Sýn. Fréttaþáttur um meistaradeild UEFA.  14.10 Saga EM í fótbolta á RÚV.  14.30 Motorworld á Sýn. Kraftmik- ill þáttur um allt það nýjasta í heimi akstursíþrótta.  14.55 Bandaríska mótaröðin á Sýn. Upprifjun á eftirminnilegum augnablikum í bandarísku móta- röðinni í síðasta mánuði.  15.45 Hnefaleikar á Sýn. Útsending frá hnefaleikakeppni í Las Vegas. Á meðal þeirra sem mættust voru Roy Jones Jr. og Antonio Tarver.  17.20 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Barcelona og Racing Santander.  19.30 Bandaríska mótaröðin á Sýn. Fréttaþáttur um bandarísku mótaröðina í golfi.  19.55 Boltinn með Guðna Bergs á Sýn. Enski boltinn frá ýmsum hliðum.  21.30 Íslensku mörkin á Sýn. Þátt- ur um 1. umferð Landsbanka- deildar karla.  21.50 Helgarsportið RÚV.  22.10 Fótboltakvöld á RÚV. Þáttur um 1. umferð Landsbankadeildar karla.  22.15 NBA á Sýn. Bein útsending frá leik Sacramento og Minnesota.  00.05 Markaregn á RÚV. Sýndir verða valdir kaflar úr leikjum síð- ustu umferðar í þýska fótboltanum. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 13 14 15 16 17 18 19 Sunnudagur MAÍ FÓTBOLTI „Mér líður eins og ungum manni,“ sagði Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður Afríku, eftir að tilkynnt var í gær að lokakeppni HM í fótbolta árið 2010 verði haldin í heimalandi hans. „Fegurðin í sigrinum felst í því að við áttum í keppni við verðuga andstæðinga og það var ómögulegt að geta sér til um niðurstöðuna.“ Mandela hefur lengi barist fyrir því að lokakeppni HM verði haldin í Suður Afríku. Fyrir fjórum árum sóttust Suður Afríkumenn eftir að fá að halda keppnina árið 2006 en töpuðu naumlega fyrir Þjóðverjum í atkvæðagreiðslu. Fjögur lönd frá Afríku sóttu um að fá að halda keppnina en Suður Afríkumenn höfðu betur í baráttu við Túnisa í atkvæðagreiðslu í framkvæmdanefnd FIFA. Suður Afríka fékk fjórtán atkvæði, Tún- isar ellefu en Egyptar fengu ekkert atkvæði. Umsókn Líbýu var hafnað áður en til atkvæðagreiðslunnar kom. ■ HM Í SUÐUR AFRÍKU Nelson Mandela fagnar ákvörðun FIFA í gær. Hann hefur barist fyrir því að loka- keppni HM færi fram í Suður Afríku. Heimsmeistarakeppnin 2010: Lokakeppnin í Suður AfríkuArsenal tapaði engumleik í ensku úrvals- deildinni í vetur. Afrekið á sér fáar hliðstæður í sterkustu deildum Evrópu í seinni tíð en það var nokkuð algengt á fyrstu árum deildakeppni í sum- um löndum að meistarar væru ósigraðir. Ajax varð hollenskur meistari árið 1995 án þess að tapa leik. AC Milan tapaði heldur engum leik þegar félagið sigraði í ítölsku deildakeppninni árið 1992. Perugia var ósigrað á Ítalíu veturinn 1978- 79 en lenti samt í öðru sæti. Benfica hefur tvisvar farið ósigrað í gegnum portúgölsku deild- ina. Árið 1973 varð Benfica meistari en veturinn 1977–78 lenti félagið í 2. sæti á eftir Porto sem tapaði einum leik og það á heimavelli. ■ EINSTAKT AFREK ARSENAL 16. ágúst Everton h 2-1 Henry (vsp), Pires 24. ágúst Middlesbrough ú 4-0 Henry, Gilberto, Wiltord 2 27. ágúst Aston Villa h 2-0 Campbell, Henry 31. ágúst Man City ú 2-1 Wiltord, Ljungberg 13. sept. Portsmouth h 1-1 Henry (vsp) 21. sept. Man. United ú 0-0 26. sept. Newcastle h 3-2 Henry 2 (1 vsp), Gilberto 4. okt. Liverpool ú 2-1 Hyyipa (sm), Pires 18. okt. Chelsea h 2-1 Edu, Henry 26. okt. Charlton ú 1-1 Henry 1. nóv. Leeds ú 4-1 Henry 2, Pires, Gilberto 8. nóv. Tottenham h 2-1 Pires, Ljungberg 22. nóv. Birmingham ú 3-0 Ljungberg, Bergkamp, Pires 30. nóv. Fulham h 0-0 6. des. Leicester ú 1-1 Gilberto 14. des. Blackburn h 1-0 Bergkamp 20. des. Bolton ú 1-1 Pires 26. des. Wolves h 3-0 Craddock (sm), Henry 2 29. des. Southampton ú 1-0 Pires 7. jan. Everton ú 1-1 Kanu 10. jan. Middlesbrough h 4-1 Henry (vsp), Queudrue (sm), Pires, Ljungberg 18. jan. Aston Villa ú 2-0 Henry 2 (1 vsp) 1. feb. Man City h 2-1 Tarnat (sm), Henry 7. feb. Wolves ú 3-1 Bergkamp, Henry, Toure 10. feb. Southampton h 2-0 Henry 2 21. feb. Chelsea ú 2-1 Vieira, Edu 28. feb. Charlton h 2-1 Pires, Henry 13. mars Blackburn ú 2-0 Henry, Pires 20. mars Bolton h 2-1 Pires, Bergkamp 28. mars Man Utd h 1-1 Henry 9. apríl Liverpool h 4-2 Henry 3, Pires 11. apríl Newcastle ú 0-0 16. apríl Leeds h 5-0 Pires, Henry 4 (1 vsp) 25. apríl Tottenham ú 2-2 Vieira, Pires 1. maí Birmingham h 0-0 4. maí Portsmouth ú 1-1 Reyes 9. maí Fulham ú 1-0 Reyes 15. maí Leicester h 2-1 Henry (vsp), Vieira Mörkin (73): Thierry Henry 30 (7 vsp), Robert Pires 14, Dennis Bergkamp 4, Fredrik Ljungberg 4, Gilberto Silva 4, Pat- rick Vieira 3, Sylvain Wiltord 3, Eduardo Cesar Daude Gaspar „Edu“ 2, José Anton- io Reyes 2, Sol Campbell, Nwankwo Kanu, Kolo Toure – fjögur sjálfsmörk mótherja. ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR Arsenal - Leicester 2-1 0-1 Paul Dickov (26.), 1-1 Thierry Henry, vsp (47.), 2-1 Patrick Vieira (66.) Aston Villa - Man. United 0-2 0-1 Cristiano Ronaldo (4.), 0-2 Ruud van Nistelrooy (10.) Blackburn - Birmingham 1-1 1-0 Andy Cole (24.), 1-1 Stern John (83.) Bolton - Fulham 0-2 0-1 Brian McBride (45.), 0-2 Brian McBride (78.) Charlton - Southampton 2-1 1-0 Jason Euell (36.), 2-0 Carlton Cole (53.), 2-1 David Prutton (64.) Chelsea - Leeds 1-0 1-0 Jesper Grönkjær (20.) Liverpool - Newcastle 1-1 0-1 Shola Ameobi (25.), 1-1 Michael Owen (67.) Man. City - Everton 5-1 1-0 Paulo Wanchope (16.), 2-0 Paulo Wanchope (30.), 2-0 Nicolas Anelka (41.), 3-1 Kevin Campbell (60.), 4-1 Ant- onine Sibierski (89.), 5-1 Shaun Wright- Phillips (90.) Portsmouth - Middlesbrough 5-1 1-0 Yakubu Aiyegbeni (4.), 2-0 Yakubu Aiyegbeni, vsp (14.), 2-1 Boudewijn Zenden (27.), 3-1 Yakubu Aiyegbeni (31.), 4-1 Teddy Sheringham (80.), 5-1 Yakubu Aiyegbeni (83.) Wolves - Tottenham 0-2 0-1 Robbie Keane (34.), 0-2 Jermain Defoe (57.) LOKASTAÐAN Arsenal 38 26 12 0 73:26 90 Chelsea 38 24 7 7 67:30 79 Man. United 38 23 6 9 64:35 75 Liverpool 38 16 12 10 55:37 60 Newcastle 38 13 17 8 52:40 56 Aston Villa 38 15 11 12 48:44 56 Charlton 38 14 11 13 51:51 53 Bolton 38 14 11 13 48:56 53 Fulham 38 14 10 14 52:46 52 Birmingham 38 12 14 12 43:48 50 Middlesb. 38 13 9 16 44:52 48 Southampton38 12 11 15 44:45 47 Portsmouth 38 12 9 17 47:54 45 Tottenham 38 13 6 19 47:57 45 Blackburn 38 12 8 18 51:59 44 Man. City 38 9 14 15 55:54 41 Everton 38 9 12 17 45:57 39 Leicester 38 6 15 17 48:65 33 Leeds 38 8 9 21 40:79 33 Wolves 38 7 12 19 38:77 33 ÓSIGRANDI MEISTARAR Leikmenn Arsenal fögnuðu deildarmeistaratitlinum í gær. ■ TALA DAGSINS 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.