Fréttablaðið - 16.05.2004, Síða 41

Fréttablaðið - 16.05.2004, Síða 41
29SUNNUDAGUR 16. maí 2004 Þið sem hafið gaman af Stereolabog múm voruð að detta í lukku- pottinn. Þriðja breiðskífa þýsku raf- sveitarinnar Lali Puna er eins og sambræðingur beggja sveita. For- ritanirnar eru svo svipaðar þeim sem eru að finna á Neon Golden plötu The Notwist, enda er gítar- leikari þeirrar sveitar, Markus Archer, einnig liðsmaður í Lali Puna. Aðdáendur Kid A plötu Radio- head, ættu einnig að finna eitthvað hér við sitt hæfi. Þetta er óertandi og notarleg raf- tónlist sem á rætur í indie-rokkinu og er yfirbragðið sérstaklega elsku- legt. Hálfhvíslandi rödd söngkon- unnar Valerie Trebeljahr er því sér- staklega viðeigandi. Flæðandi tregafullir gítartónar og eitursval- ar, einfaldar forritanir og hljóð- klippur verða svo til þess að gera plötuna að nútíma klassík. Sveitin virðist hafa faðmað að sér hefð- bundnari poppsmíðar á þessari plötu en áður, með tilheyrandi við- lögum. Þau missa sig þó aldrei í meðalmennskuna, sem betur fer. Einhverjum gæti eflaust fundist þetta frekar undarlegur fiskur í fyrstu. Við nánari hlustun kemur þó í ljós að þetta er lax í tjörninni. Grípið hann á meðan tækifærið gefst. Bara í dag er ég búinn að renna þessari plötu þrisvar sinnum yfir, og er fjarri nálægt því að fá leið. Það er ekki nóg að lagasmíðarnar séu sterkar heldur er þessi kaka kyrfilega skreytt hljóðsælgæti hér og þar. Eða eins og söngkonan syng- ur í einu laginu „Remember the Small Things“. Lykillinn að því að láta hvert einasta ástarsamband ganga upp. Án efa ein af plötum ársins, sama hversu blómlegt restin af tón- listarárinu verður. Birgir Örn Steinarsson Grínarinn Pablo Francisco ermættur til Íslands að nýju til þess að skemmta í aðalsal Hótel Nordica í vikunni. Í þetta skipti er hann ekki einn og mætir með tvo fyndna félaga sína til þess að kitla hláturtaugar okkar Íslendinga. Þeir heita Cory Holcomb og Mike Loftus en báðir hafa skapað sér nafn sem uppistandendur í Bandaríkjunum. Cory er til dæm- is í miklu uppáhaldi hjá Jay Leno og hefur komið margsinnis fram í þætti hans Tonight Show. Jay hef- ur meðal annars haft gaman af því að senda Cory, sem er svartur, á uppákomur sem nær eingöngu hvítt fólk sækir. Cory komst líka nýlega í lokaúrslit í Last Comic Standing sem er vinsæll raun- veruleikaþáttur í Bandaríkjunum þar sem grínarar keppa sína á milli. Mike Loftus er einn af duglegri grínrithöfundum Hollywood. Hann hefur komið fram í eigin þáttum á Comedy Central og einnig í þáttum eins og National Lampoon’s Funny Money, Late Friday á NBC og You Lie Like a Dog á Animal Planet. Hann skrif- ar fyrir George Lopez þáttinn á ABC og This Just In á Spike TV. Eftir síðustu Íslandsheimsókn sína hefur Pablo Francisco bætt nokkrum sögum um landið í atriði sitt. Kannski treystir hann sér til þess að segja þá brandara hér. Hópurinn skemmtir á Nordica í kvöld, þriðjudags- og fimmtu- dagskvöld. Miðaverð er 3000 kr. Bítillinn Paul McCartney var vin- samlegast beðinn um að lækka í græjunum er hann var við æfing- ar á dögunum í Millennium Dome í London fyrir væntanlega tón- leikaferð sína. Íbúar í nágreninu virðast ekki vera það hrifnir af tónlistinni því tónleikahöldurum barst fjöldi kvartana þegar Paul æfði sig fyrir tónleikana. Shar Jackson, fyrrverandikærasta Kevins Federline ást- manns Britneyjar Spears, segir þau tvö eiga hvort annað skilið. Þau séu bæði drykkfelldir reyk- ingamenn sem svíki annað fólk. Jackson ber um þessar mundir barn Federlines undir belti. Auk þess á hún með honum dótturina Kori sem er tveggja ára. Jackson komst að því þann 26. apríl að kærastinn héldi fram hjá sér. Federline sagðist ætla að taka upp auglýsingu í Japan en fór þess í stað á fund Spears. ■ ■ TÓNLIST Brjáluð út í Britney BRITNEY SPEARS Ekki eru allir jafnsáttir við samband Britneyjar og dansarans Kevins Federline. Lax í tjörninni [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN LALI PUNA: FAKING THE BOOKS Grínarinn Pablo Francisco er mættur aftur á Klakann. ■ GRÍN Gerir stólpagrín að Íslandi PABLO FRANCISCO „Af hverju læðast Íslendingar alltaf fram hjá apótekum? ... hm, enginn? ... Til þess að vekja ekki svefnpillurnar!“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ■ FÓLK Í FRÉTTUM

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.