Tíminn - 24.05.1972, Síða 1
IGNIS
ÞVOTTAVÉLAR
Landhelgisviðræður
ráðherra í London
TK- London.
Utanríkisráðherra,
Einar Ágústsson, og
sjávarútvegsráðherra,
Lúðvik Jósefsson, komu
hingað til Lundúna i
gær, um hádegisbilið.
Ráðgert hafði verið, að
viðræður hæfust milli
ráðherra íslenzku stjórn-
arinnar og hinnar brezku
þegar i gær, en vegna
umræðna í brezka
þingínu, um Ródesíu-
málið, varð að fresta
umræðum til dagsins i
dag.
I morgun byrjuðu við-
ræður ráðherranna i
landbúnaðar- og fiski-
málaráðuneytinu, en
óvist var talið, að Sir
Alec Douglas Home,
utanrikisráðherra Breta,
gæti verið við umræður-
nar. En ákveðið var, að
hann myndi hitta
islenzku ráðherrana kl.
12 í dag og ráðgert var
að hádegisverði, sem
ætlunin var að þeir
snæddu saman, lyki
klukkan 13.20. Þá átti að
halda áfram viðræðum,
bæði við embættismenn
og ráðherra landbún-
aðar- og fiskimálaráðu-
neytisins.
Klukkan 18 i dag er ráðgerð-
ur blaðamannafundur, sem er
óformlegur, sem þýðir að
aðeins þeir, sem hafa sýnt
málinu áhuga, fá þær upplýs-
ingar, sem þeir hafa beðið um.
A morgun, fimmtudag,
munu ráðherrarnir Einar
Ágústsson og Lúðvik Jósefs-
son hitta Prior, fiskimálaráð-
herra Breta og ræða við hann
um landhelgismálið. Búizt er
við, að Sir Alec Douglas Home
verði að vera meira og minna
frá,meðan viðræðurnar standa
yfir, og mun þá aðstoðarráð-
herra hans, Lady Tweeds-
muir, vera i forsæti á fundun-
um, er ráðherrarnir ræðast
við Klukkan 15 á morgun verð-
ur opinn blaðamannafundur
haldinn i Fleet Street, i húsa-
kynnum brezku blaðamanna-
samtakanna, Press Club. Um
kvöldið verður svo móttaka i
sendiráði Islands fyrir blaða-
menn og alla þá, sem sýnt
hafa áhuga á landhelgismál-
inu og mismunandi skoðunum
Breta og Islendinga á þvi
máli.
Eysteinn Jónsson forseti Sameinaðs þings:
MINNISSTÆDASTUR VERÐ-
UR OKKUR 15. FEBRÚAR
þegar Alþingi ákvað með 60 samhljóða atkvæðum að færa
fiskveiðilandhelgi íslands í 50 sjómílur 7. september n. k.
EB-Reykjavik.
t ræðu,er Eysteinn Jónsson,
forseti Sameinaðs Alþingis,
flutti viö þingslitin siðastliðinn
laugardag, sagði hann, að
margs væri að minnast frá
þingstörfunum að þessu sinni,
en minnisstæðastur væri 15.
fcbrúar, dagurinn, þegar Al-
þingi ákvað með 60 samhljóða
atkvæðum að færa fiskveiði-
landhelgina út i 50 sjómllur 1.
september næstkomandi. —
15. febrúar 1972 varð þar með
einn af merkustu dögunum i
viðburðarikri sögu Alþingis,
og þá um leið I sögu þjóðarinn-
ar, sagði Eysteinn Jónsson.
Svo sem venja er flutti Ey-
steinn, sem forseti Sameinaðs
Alþingis, yfirlit um störf af-
staðins þings, og er gerð grein
fyrir þeim i lok fréttarinnar.
Er Eysteinn Jónsson hafði
flutt starfsyfirlitið, sagði
hann:
„Eins og sjá má af þvi, sem
nú hefur verið rakið, hefur
þetta verið óvenju annasamt
og afkastamikið þing. Mörg
stórmál hafa verið afgreidd og
verulegur ágreiningur orðið
um sum þeirra, sem verða
vill, þegar meirihlutaskipti
verða á Alþingi og stjórnar-
skipti og ný stefna er mótuð I
löggjafarstarfinu. Hvað sem
ágreiningi liður og ólikum við-
horfum I mörgu tilliti, mun þó
allur þingheimur sameinast
um þá ósk nú i lokin, að störf
þessa Aþingis, sem nú er að
ljúka, megi verða til farsældar
landi og þjóð.
Margs er að minnast frá
þingstörfunum að þessu sinni,
en minnisstæðastur verður
okkur 15. febrúar. Þann dag
ákvað Alþingi með 60 sam-
hljóða atkvæðum að færa fisk
veiðilandhelgi íslands út I 50
sjómflur frá grunnlinum 1.
sept. næstkomandi. 15.
febrúar 1972 varð þar með
einn af merkustu dögunum i
viðburðarikri sögu Aiþingis,
og þá um leið i sögu þjóðarinn-
ar. Gott er þess að minnast, að
þjóðin öll stendur að þessari
ákvörðun, sem tekin var af 60
mönnum i þessum sal — og þá
einnig öllu þvi, sem gera þarf
til þess að koma þessp máli
heilu i höfn. Sameinuð mun
þjóðin taka þvi, sem að hönd-
um ber á þeirri leiö, og i engu
hvika frá þeirri ákvörðun,
sem hér var tekin. Þessi órjúf-
andi samheldni mun tryggja
farsæl úrslit þessa mikla
máls.
Ég þakka háttv. þingmönn-
um og hæstvirtri rikisstjórn
fyrir góða samvinnu. Deilda-
forsetum og varaforsetum
þakka ég gott og náið sam-
starf, sem hefur veriö meira
og með öðru sniði en áður hef-
ur tiðkazt á Alþingi og að minu
mati til góðs fyrir þingstörfin
og stofnunina sjálfa. Skrifur-
um þingsins þakka ég mikils-
verða aðstoð og gott starf.
Starfsfólki Alþingis færi ég
alúöar þakkir fyrir ágætt
framlag til þingstarfanna á
óvenju annasömu þingi. Þing-
mönnum öllum óska ég góðrar
heimferðar og heimkomu og
læt I ljós þá von, að öll megum
við heil hittast hér á næsta
hausti.
Ollum landsmönnum óska
ég árs og friðar.”
A nýafstöönu Alþingi voru
alls 92 frumvörp afgreidd sem
Frh á bls. 3.
(Timam Gunnar)
Forseti íslands dr. Kristján Eldjárn les forsetabréf um
slit Alþingis á laugardag.
Sigurjón Pétursson
17 ára
ökumaður
lézt
Oó-Reykjavík
Ungur maður beið bana og
tveir féiagar hans slösuöust
alvarlega s.l. laugardags-
kvöld, þegar bill, sem þeir
voru I, valt á veginum rétt
ofan við Lögberg. Auk þeirra
voru tvö börn 7 ára drengur
og 10 ára stúika Ibilnum, en
þau meiddust sáralitið.
Piiturinn, sem lézt hét Sigur-
jón Pétursson, til heimilis að
Safamýri 51. Hann var 17 ára
að aldri.
Slysið varð laust fyrir kl.
22 á laugardagskvöld. Ekki
er með öllu ljóst hvaö olli
bílveltunni, en Sigurjón, sem
ók bilnum, var nýbúinn að
fara fram úr öðrum bfl, og
segir bilstjóri þess bils, aö þá
hafi billinn, sem ók fram úr
farið að rása á veginum.
Agerðust siðan sveiflurnar
og lauk með þvi,að bilinn fór
eina og hálfa veltu og
stöðvaðist á hvolfi á
veginum.
Tveir féllu út úr bílnum,
Sigurjón og annar piltur.
Sigurjón varö undir bilnum
og lézt samstundis. Piltarni^
sem slösuðust eru báðir 16
ára. Yngri börnin,sem voru i
bflnum eru systkin annars
piltsins og á faðir þeirra
bflinn.
Sigurjón ók vegna þess að
hann var kunningi syst-
kinanna i.og sá . eini.sem
hafði biípróf. Fengu þau
bflinn lánaðan meö þvi skil-
yrði, að Sigurjón æki honum.
Varhann nýbúinn að taka bil-
próf. Ekkert bendir til þess
að um grófan akstur hafi
verið að ræða er bilinn valt,
hraðinn ekki mjög mikill.
Bfllinn er af Chervolet gerð,
árgerð 1963.
Engin öryggisbelti voru i
bflnum. HG
(Dr. Kristján
1 sjálfkjörinn j
| SJ-Reykjavík. g
| Nú um helgina rann |
| út framboösfrestur til |
| forsetakjörs hér á landi |
| sem fara átti fram í |
| sumar. Dr. Kristján |
| Eldjárn forseti íslands |
| er einn í framboði og i
| því sjálfkjörinn. I