Tíminn - 24.05.1972, Síða 19
HANDKNATTLEIKSMENN IR FARA
TIL BANDARÍKJANNA i SUMAR
- Taka þátt í íþróttahátíð, þar sem fremstu íþróttamenn heims leiða saman hesta sfna.
- Dr. Ingimar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍR næsta keppnistímabil
Bandariska handknattleiks-
sambandið, hefur boðið 1.
deildarliði ÍR i handknattleik, að
koma til Bandarikjanna i júli i
sumar, þar sem ÍR-ingum er boð-
ið að taka þátt i „Summerfest
'72” — sem er haldið árlega i
Milwaukee (100 km. frá Chifago)
t Wisconsinriki við Michiganvatn.
Sumarfestival þetta stendur yfir
frá 14 — 23. júli, og er áætlað að
um 800.000 manns komi til með að
sækja það. Þar koma fram allir
beztu iþróttamen n og skemmti-
kraftar Bandaríkjanna. Keppt
verður þar i frjálsum iþróttum,
karate, júdó, handknattleik,
rugby, knattspyrnu (þar sem tvö
lið frá Englandi taka þátt i), og
fleiri iþróttum.
ÍR-ingar hafa nú ákveðið, aö
taka boðinu, sem er eitthvað það
bezta og glæsilegasta, sem is-
lenzkt fé'^gslið hefur fengið fvrr
og siöar. IR-liðið verður þvi
fyrsta félagsliðið, sem fer i
keppni til Bandarikjanna og
örugglega ekki það siðasta. Það
verður ekki langt að biða, þar til
að bandariskur handknattleikur,
verður kominn i heimsklassa og
islenzk lið farin að skipta við
bandarisk félagslið.
Þegar við höfðum samband við
Július Hafstein, formann hand-
knattieiksdeildar 1R, og spurðum
hann hvenær ÍR-liðið héldi utan,
sagði hann:
— Það verður haldið til New
York 19. júli, með Loftleiðum —
þaðan verður ferðinni haldið
áfram til Milwaukee, þar sem við
tökum þátt i fjögurra liða móti,
dagana 21.— 23. júli. Auk IR tekur
bandariska landsliðið og tvö
félagsliðfrá Kanada þátt i mótinu
— Frá Milwaukee, verður svo
haldið til Columbus i Ohio-riki,
þar sem við leikum 25. júli við
bandariska landsliðið — en leikir
okkar við landsliðið er liður i
undirbúningi landsliðsins, sem
tekur þátt i Olympiuleikunum i
Munchen.
— Frá Columbus, höldum við
til New York og leikum þar einn
leik — við eitt sterkasta félagslið
Bandarikjanna, Adelphi Club, 28.
júli. En við ljúkum svo ferðinni
með þvi að taka þátt i árlegu
hraðkeppnismóti i New Jersey
30. júli.
— Til gamans má geta þess, að
það koma margir heimsfrægir
skemmtikraftar fram á
„Summerfest 72” — sem IR-ingar
taka þátt i. T.d. Blood, Sweat og
Tears... Chuck Berry ... The
Association ...Chicago ... Bobby
Sherman ... The Jackson Five og
fl.
— Þa hafa IR-ingar ráðið til sin
nýjan þjálfara fyrir næsta
keppnistimabil, það er hinn kunni
handknattleiksþjálfari dr. Ingi-
mar Jónsson —• og er IR-liðið
byrjaö að æfa afkrafti undir hans
stjórn. (A siðunni birtum viö
myndir, frá æfingu hjá ÍR-liðinu á
annan i hvitasunnu — undir stjórn
dr. Ingimars).
— Allir þeir leikmenn, sem
léku með IR-liðinu s.l. keppnis-
timabil, fara með liðinu til
Bandarikjanna og eru þeir
ákveðnir i að vinna vel að undir-
búningi fararinnar. Félaginu er
mikill heiður sýndur með þvi, að
Július Hafstein, formaður
handknattleiksdeildar 1R.
verða boðið I slika keppni, sem
fer fram i Milwaukee, þar sem
saman verða komnir nokkrir af
fremstu iþróttamönnum heims.
Dr. Ingimar Jónsson, hinn nýi þjálfari 1R — fylgist með leikmönnum
liðsins á æfingu á annan i hvitasunnu.
Hér sjást landsliðsmenn ÍR — Ágúst Svavarsson og Brynjólfur
Markússon — æfa sig i að skjóta á mark, eftir hraðaupp-
hlaup. (Timamyndir Róbert.)
Evrópumót í lyftingum:
ÍSLENDINGARNIR STÓÐU
SIG ALLVEL A MÓTINU
— Árangur lyftingamannanna,
sem kepptu i EM var allgóður,
sérstaklega Óskars Sigurpálsson-
ar, sem lyfti 465 kg i þriþraut og
setti nýtt íslandsmet i jafnhöttun,
180 kg. Þetta sagði Guðmundur
Þórarinsson, iþróttakennari,
fararstjóri lyftingarmannanna,
sem tóku þátt i Evrópumótinu i
Constanta i Rúmeniu um helgina.
Eins og fyrr segir náði Óskar
góðum árangri og varð 14. af 20
keppendum i þungavigt, sem hófu
keppni. Hann lyfti i þriþraut 465
kg, en tslandsmet hans er 467,5
kg. Óskar pressaði 162,5 kg. snar-
aði 122,5 og jafnhattaði 180, sem
er íslandsmet. Sigurvegari i
þessum flokki varð Talts, Sovét,
lyfti 587,5 kg. I þriþraut.
Hann setti tvö heimsmet,
pressaði 211 kg og jafnhattaði
222,5 kg.
Guðmundi Sigurðssyni gekk
erfiðlegar en Óskari, en hann
keppti i milliþungavigt.
Dómararnir þrir, sem dæmdu hjá
Guðmundi, voru erfiðir viður-
eignar og komu sér ekki saman,
en það bitnaði á keppendum.
Guðmundur varð 10. af 16
keppendum, sem hófu keppni.
Hann lyfti samtals 437,5 kg en Is-
landsmet hans er 465 kg. Guð-
mundur pressaði 135 kg, jafnhatt-
aði 175 og snaraði 127,5.
Sigurvegari i þessum flokki var
Sovétmaðurinn Rigert, sem lyfti
557,5 kg I þríþraut, sem er heims-
met. Hann setti og heimsmet i
snörun 166 kg.
Guðmundur lét vel af ferðinni
og kvað tslendingana hafa vakið
athygli, þeim var m.a. hælt fyrir
góðan stil i jafnhöttun og pressu.
Þeim var boðið á mót, en sá bögg-
ull fylgir að visu skammrifi, að
þeir verða að greiða ferðakostnað
sjálfir.
Alls tóku 25 Evrópuþjóðir þátt i
þessu Evrópumóti.
ÖE
Óskar Sigurpálsson, stóð sig ágætlega á Evrópumeistaramótinu f
lyftingum. Fer hann á Olympiuleikana I Munchen i sumar.
Búizt við metþátttöku
í Vormóti ÍR annað kvöid
Rabbað við frjálsíþróttafólk á æfingu
Guðmundur Hermannsson. Hann
varpaði kúlunni hvað eftir annað
á 16 metra i kyrrstöðu og það er
engan bilbug á honum að sjá.
Guðmundur tekur þátt i mótinu
annað kvöld, en hann bjóst nú
ekki við sérstöku kasti i keppn-
inni, en kvaðst þó vonast eftir all-
góðum árangri. Þarna var einnig
Elias Sveinsson hástökkvari að
kasta kringlu. Hann sagðist hafa
verið slæmur i hné undanfarnar
vikur og ekki vera viss um, að
hann gæti tekið þátt i hástökkinu,
en vonaðist þó til þess.
Agúst Asgeirsson millivega-
lengdahlaupari æfði spretti og
sagðist ætla að hlaupa 1000 m á
Vormótinu. Hann hefur æft vel i
vetur og setti nokkur innanhúss-
met. Ekki bjóst hann við góðum
tima á Vormótinu. Aftur á móti
sagðist hann vera bjartsýnn, þeg-
ar liða tæki á sumarið.
Loks voru á vegi okkar tvær
stúlkur, Ragnhildur Pálsdóttir og
Björg Kristjánsdóttir. Ragnhild-
ur ætiar að taka þátt i 1000 m
hlaupinu, en Björg er i landsprófi
og verður ekki með i þessu móti.
Báðar hafa æft vel og voru hinar
bjartsýnustu á árangurinn i
sumar. —ÖE.
Ragnheiður Pálsdóttir.
Fyrsta opinbera frjálsiþrótta-
mót sumarsins, Vormót 1R, fer
fram annað kvöld á Melavellin-
um. Eftir þvi sem heyrzt hefur
verður mikil þátttaka i mótinu,
mun meiri en verið hefur i þvi
móti undanfarna áratugi. Má þvi
reikna með, að keppni verði
skemmtileg i öllum greinum.
Guðmundur Hermannsson.
Agúst Ásgeirsson.
Fréttamaður iþróttasiðunnar
leit við á Melavellinum fyrir há-
degi á annan dag hvitasunnu, en
þar voru um 20 frjálsiþróttamenn
og konur við æfingar.
Fyrstur á vegi okkar varð
Þórarinn Ragnarsson, sem þjálf-
ar karlalið UMSK. Atta ungir
Kópavogsbúar og liðsmaður Mos-
fellinga voru þar við hlaupa-
æfingar og það voru erfiðar
æfingar. Þórarinn sagði, að þátt-
taka yrði mikil frá UMSK f 1R
mótinu, sérstaklega i hlaupa-
greinunum. Strákarnir úr UMSK
hafa æft mjög vel siðla vetrar og
ég býst við góðum timum hjá
þeim f sumar, sagði Þórarinn.
Á kastsvæðinu fyrir sunnan
hlaupabrautina æfði aldursforseti
islenzkra frjálsiþróttamanna,
KR-ingar komu ósigraðir
heim frá Færeyjum
Handknattleikslið KR kom
heim úr þriggja daga keppnis-
ferðalagi sinu frá Færeyjum sl.
sunnudagskvöld. Liðið lék þrjá
leiki i ferðinni — og sigraði I
öllum leikjunum, sem fóru fram i
nýrri iþróttahöll i Þórshöfn.
Fyrsta leik KR i ferðinni gegn
Kyndli var útvarpað — honum
lauk með sigri KR 33:16. 1 öðrum
leiknum sigraði KR, Neistann,
21:14. Þriðji og siðasti leikurinn,
sem KR-ingar léku i ferðinni, var
gegn landsliði Færeyja — lauk
leiknum með sigri KR 27:22. Ekki
er hægt að segja að það hafi verið
sterkasta landslið Færeyja, sem
KR lék við — þvi að það eru
margir af sterkustu leikmönnum
Færeyja við nám í Danmörku.
Kyndill, liðið sem KR lék fyrst
gegn, mun koma til tslands i sum-
ar og leika hér nokkra leiki. Liðið
kemur i júli, i boði Ungtemplara-
félagsins Hrannar.
SOS.