Tíminn - 24.05.1972, Qupperneq 24
TVENNIR SAMNINGAR
UNDIRRITAÐIR ( MOSKVU
NTB-Moskvu.
Nixon Bandarík jaforseta
var vel faHnað, cr hann kom lii
Moskvu á mánudaginn — ólikt
hetur en i Austurriki, þar sem
miklar mótmælaaðgerðir voru
vegna komu forsetans.
Nixon hélt einn fund með
sovézkum ráðamönnum á
mánudag og annan i gær. i lok
þess fundar voru undirritaðir
tveir samningar, annar um
samvinnu i sjúkdómarann-
sóknum, og undirrituðu hann
þeir Itogers utanrikisráðherra
Kandarikjanna og 1‘etrovski
heilbrigðismálaráðherra
Sovétrikjanna, og hinn, sem
staðfesti ásetning stjórna
Bandarikjanna og Sovétrikja-
nna um að vinna sameiginlega
að þvi að stemma stigu við
mengun i lofti, á láði og legi,
var sá samningur undirrit-
aður af Nixon sjálfum og
l’odgorny forseta Sovétrikja-
Þátt i viðræðunum tóku þeir
Brésnef, Kosygin og Fodgorny
fyrir hönd Sovétrikjanna og
Nixon, Hogers og Kissinger,
fyrir hönd Bandarikjanna.
t dag verður annar fundur,
og hefst hann laust fyrir
hádegið.
Þá var
Helsinki i
gengið i
frá þvi skýrt i
dag, að vel hefði
hinum svonefndu
SALT-viöræðum, þeim er
fjalla um takmörkun kjarn-
orkuvopnabúnaðar landanna
tveggja, en skömmu siðar
var frá þvi greint, að við-
ræðurnar væru komnar i
strand. Ekkert vildu talsmenn
rikisstjórnanna segja um
ágreininginn, en viðurkenndu,
að hann væri fyrir hendi.
Smith, aðalsamningamaður
Bandarikjastjórnar i viðræð-
unum, er á lista yfir fylgdar-
menn Nixons i Moskvu, og er
þvi búizt við^að samningarnir
um takmörkun kjarnorku-
vopna verði undirritaðir i
Moskvu áður en Nixon heldur
heim um næstu helgi.
Nixon sagði skömmu fyrir
brottförina, að hann myndi að
öllum likindum flytja ávarp i
sovézka sjónvarpinu á laugar-
daginn kemur.
Konald Ziegler, blaðafull-
trúi Nixons, neitaði að svara
spurningum fréttamanna um,
hvort þeir Nixon og Brésnef
hefðu rætt striðið i Vietnam á
framhaldsfundi, sem þeir
héldu siðari hluta dags i gær.
Fulltrúar stjórnanna beggja
héldu og fundi i gær og munu
gera það i dag, þar sem
væntanlega verða ræddir
hugsanlegir viðskiptasamn-
ingar landanna.
Sagt var af beggja hálfu i
Moskvu i gær, að viðræður
landanna hefðu verið
ákveðnar og opinskáar, en þ ó
i fullu bróðerni.
Leonid I. Brezhnev bendir hér Nixon Bandarfkjaforseta að setjast við ráðstefnuborðið, i þann mund er
ráðstcfna æöstu manna var að hefjast i Moskvu I gær. Lengst til vinstri er ráðgjafi Nixons, Henry Kiss-
inger, þá Alexei Kosygin, Nikolai Pdgorny, Nixon forseti, Breznef aðalritari kommúnistaflokks sovét-
rikjanna og Itogers utanrikisráðherra Bandaríkjanna. Sfmamynd UPI.
BARIZT AF MIKILLI HÖRKU
I VIETNAM
- Getum ekki búizt við aðstoð frá Kína
til að leysa deiluna, segir Mike Mansfield
NTB-Saigon
Bandariskar sprengjuflugvélar
af gerðinni B-52 hafa verið i næst-
um stöðugum árásarferðum á
Norður-Vietnam undanfarna
daga, og hefur sprengjum aðal-
lega verið varpað á aðdráttar-
leiðir hers Hanoi-stjórnarinnar,
járnbrautarteina og þess háttar.
Melvin Laird, varnarmálaráð-
herra Bandarikjanna, sagði á
blaðamannafundi um helgina, að
hafnbannið á Norður-Vietnam
hafi borið tilætlaðan árangur, en
aðrar heimildir halda fram, að i
gegnum Kina komi enn mikið
magn af hergögnum inn i landið.
Af vigstöðvunum i suðurhluta
landsins berast þær fregnir, að
Suður-Vietnömum hafi loks borizt
liðsauki til An Loc, og sé nú barizt
þar, og i grennd við Hue, af mik-
illi hörku. Mannfall er sagt nokk-
uð mikið i báðum liðum, en helzt
viröist sem Norður-Vietnamar og
hermenn Þjóðfrelsisfylkingar-
innar séu nú að búa sig undir
stærra áhlaup, sem gæti get úr-
slagið um striðið i Indó-Kina.
Herstjórnin i Saigon segist hafa
fengið mikilvægar upplýsingar
um þessa sókn, sem gera eigi til
að minnast afmælis Ho Chi-
Minhs, en það var 19. mai. Upp-
lýsingarnar segist herstjórnin
hafa fengið hjá norður-viet-
nömskum hermanni.
1 Paris fóru viðræðufulltrúar
Norður-Vietnama og Þjóðfrelsis-
fylkingarinnar enn fram á, að
viðræður yrðu teknar upp að nýju
og að Bandarikjamenn léttu þeg-
ar i stað af hafnbanninu og hættu
sprengjuárásum á Norður-Viet-
nam. Ekki er talið liklegt, að
Bandarikjamenn fallist á endur-
nýjaðar viðræður i bili, þvi að
haft var eftir aðalsamninga-
manni þeirra i gær, að hann sæi
engan tilgang i að eyða timanum i
að hlusta á áróður.
Miklar mótmælaaðgerðir voru i
Bandarikjunum um helgina, og
meðal annars sprakk sprengja i
Pentagon, varnarmálaráðuneyti
Bandarikjanna. Hópur vinstri-
sinna, sem kalla sig ,,the
Weathermen”, sagðist bera
ábyrgð á sprengjunni. Töluverðar
skemmdir urðu á skrifstofuhús-
næði, þar sem sprengjan eyöi-
lagði vatnsleiðslu i húsinu. Mót-
mælaaögeröir fóru fram i mörg-
um borgum Bandarikjanna að
auki, og kom til átaka á nokkrum
stöðum.
1 öðrum fréttum frá Saigon seg-
ir, að Bandarikjamenn hafi i sið-
ustu viku sprengt i loft upp sex
bensingeyma við Hanoi, og hafi
þar brunnið 24.000 tonn af bensini.
Einnig herma fréttir, að i
sprengjuárásum Bandarikj-
amanna á Hanoi hafi nokkrir
sovézkir sjómenn beðið bana, en
enn sem komið er hefur stjórnin i
Moskvu ekki borið fram mót-
mæli, þar eð samband rikjanna er
of viðkvæmt um þessar mundir,
vegna heimsóknar Nixons til
Sovétrikjanna.
Að sögn Anthony Lewis, frétta-
ritara New York Times, hefur
Hanoi orðið mjög illa úti i loft-
árásum Bandarikjamanna, og
sagði Lewis, að borgin minnti um
margt á þýzkar iðnaðarborgir i
heimsstyr jöldinni siðari. Þá
skrifaði sænskur sendifulltrúi i
Hanoi sænska utanrikisráðuneyt-
inu bréf i siðustu viku, þar sem
hann sagðist hafa séð með eigin
augum, er bandariskar spYengju-
flugvélar vörpuðu aflmiklum
sprengjum á sjúkrahús i Hanoi.
Sendifulltrúinn, Jean Christopher
Oberg, sagði nokkrar sprengjur
hafa lent i aðeins 300 metra fjar-
lægð frá sænsku ræðismanns-
skrifstofunni.
I Hanoi herma fréttir, að
norður-vietnamiskir fulltrúar, er
nýlega séu komnir frá Kina, hafi
fært heim þær fréttir, aö Kina sé
reiðubúið aö veita Norður-Viet-
nam alla þá aðstoð, er þurfa þyki
i baráttunni gegn heimsvalda-
sinnunum.
Þá sagði Mike Mansfield, leið-
togi demókrata i öldungadeildinni
á Bandarikjaþingi, að stjórnin
þyrfti ekki að búast við hjálp frá
Peking við að leysa Indó-Kina-
deiluna. Mansfield, sem nýkom-
inn er heim frá Kina, þar sem
hann átti nokkra fundi með Chou
En-lai forsætisráðherra, sagði
Kinverja ekki vilja blanda sér i
deilur annarra rikja. — Ég held
þvi að Bandarikin geti ekki átt
von á neinni hjálp frá Kina til að
leysa deiluna, sagði Mansfield.
öldungadeildarþingmaðurinn
sagðist halda, að striðið i Indó-
Kina væri helzti þröskuldurinn i
veginum fyrir eölilegum sam-
skiptum Bandarikjanna og Kina.
Sagði Mansfield, sem var I
tveggja vikna ferðalagi um Kina
ásamt leiðtoga repúblikana i
öldungadeildinni, Hugh Scott,
þetta i viðtali við timaritið U.S.
News & World Report.
Miðvikudagur 24. mal. 1972.
Miðvikudagur 24. mal. 1972.
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
Hvitt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðssonog Hólmgrimur
Heiðreksson.
20. leikur Akureyringa: Bxd5
A geð-
veikrahæli
í 50 ár
- alheilbrigðar!
ÓV-Reykjavik.
Óvenjulegt mál hefur komið
upp i Bretlandi. i Ijós hefur komið
við rannsókn á sjúklingum á geð-
veikrahælum i Dewsbury, að tvær
konur hafa verið á geðveikrahæli
þar i 50 ár fyrir að hafa eignazt
óskilgetin börn.
Konurnar eru nú 68 og 74 ára,
og hafa nöfn þeirra ekki verið
gefinupp. Foreldrar þeirra sendu
þær á hælið, þegar þær voru 18
ára, eftir að þær höfðu eignazt
börn sin utan hjónabands. Yfir-
völd Dewsbury á þeim tima voru
með i ráðum, og er hvergi að
finna annað en að þetta hafi þótt
alveg sjálfsagt.
Félagsmálafulltrúi sýslunnar,
Frank Sheridan, komst að þessu
eftir viðtöl við konurnar, og sagði
önnur þeirra honum, að hún hefði
skrifað yfirvöldum mörg bréf til
að reyna að losna, en á árangurs.
Konurnar voru báðar nokkuð
frjálsar á hælinu, en áttu engan
að utan þess, svo að þær gátu ekki
farið, enda þurfti fyrst að útskrifa
þær, og samkvæmt öllu, sem í ljós
hefur komið, hafa yfirvöld
sjúkrahúsins ekki haft tiltakan-
legan áhuga á að senda konurn
ar i búrtu.
„Tilvera tveggja þýzkra ríkja
brátt viðurkennd staðreynd”
- segir í fréttatilkynningu frá ríkisstjórninni
Föstudaginn 19. þ.m. fór
fram atkvæöagreiðsla á fundi
Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunar S.Þ. um það, hvort
Austur-Þýzka alþýðulýðveldið
skyldi fá aðild að sam-
tökunum.
Islenzka sendinefndin
neitaði að taka þátt i atkvæða-
greiðslunni með eftirfarandi
yfirlýsingu, sem Páll
Sigurðsson, rdðuneytisstjóri,
formaður islenzku sendi-
nefndarinnar, flutti:
,,Það er yfirlýst stefna
rikisstjórnarinnar, að bæði
þýzku rikin eigi rétt á aðild að
Sameinuðu þjóðunum og sér-
stofnunum þeirra, svo sem Al-
þjóðaheilbrigöismálastofnun-
inni. Rikisstjórnin er þeirrar
skoðunar, að það hafi tekið allt
of langan tima að leysa þetta
mál og að tilvera tveggja
þýzkra rikja í Evrópu verði
áður en langt um liður viður-
kennd sem staðreynd.
Ástæðan fyrir þvi, að vanda-
mál þetta hefur enn ekki verið
leyst er sú, að það hefur verið
tengt átökum hernaðarbanda-
laga stórveldanna, þar sem
báðir aðilar hafa sýnt ó-
sveigjanleika.
Sérstaklega ber að harma,
að stofnun eins og Alþjóðaheil-
brigðismáiastofnunin, sem
hefur það markmið að bæta
heilsufar mannkyns, skuli liða
fyrir slika skiptingu þjóða og
þannig tefja fyrir lausn þessa
mikilvæga vandamáls.
Til þess að mótmæla þessu
ástandi, hefur rikisstjórnin
ákveðið að taka ekki þátt i at-
kvæðagreiðslu um þetta mál.”
Fulltrúar Islands á ráð-
stefnunni voru Páll Sigurðs-
son, ráðuneytisstjóri, og
Sigurður Sigurðsson land-
læknir.
Reykjavik, 23.mai, 1972
Forsætisráðuneytið.
(Fréttatilkynning)