Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 50
Tónlist 40
Leikhús 40
Myndlist 40
Íþróttir 46
Sjónvarp 52
FÖSTUDAGUR
● á íslandsmeistaramótinu
▲
SÍÐA 52
Teflir fyrir
Hrókinn
Jóhann Hjartarson:
● veisluföng ● fermingarundirbúningur
▲
SÍÐUR 24–33
fermingar
Blúndur og
fínrifflað flauel
Fermingarfötin:
● lárus eldaði til sigurs ▲
SÍÐUR 34–35
matur o.fl.
Kynntist saltfiski
í portúgalskri sól
Kristín Kristjánsdóttir:
SÖNGSKÓLINN 30 ÁRA Efnt
verður til hátíðartónleika Háskólabiói í
kvöld klukkan 19.30 í tilefni af 30 ára
afmæli Söngskólans í Reykjavík.
Sinfóníuhjómsveit Íslands, kór skólans og
fjölmargir söngvarar koma fram.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
5. mars 2004 – 64. tölublað – 4. árgangur
UPPLÝSINGAÞURRÐ Lögmaður sak-
bornings í líkfundarmálinu kvartar yfir að fá
ekki afhent skjöl sem varða rannsóknmáls-
ins. Embætti ríkislögreglustjóra segir dóm-
ara hafa úrskurðað að ekki sé skylt að af-
henda gögnin. Sjá síður 2 og 16
SÁTTA LEITAÐ Sáttafundur verður í
heimahjúkrunardeilunni í dag. Formaður
sjúkraliðafélagsins hefur áminnt starfsmenn
heimahjúkrunar um að vinna ekki meiri
yfirvinnu en þeim ber. Sjá síðu 4
AUKIÐ ÁLAG Vinnuálag íslenskra starfs-
manna varnarliðsins hefur aukist til muna
eftir að uppsagnir 105 íslenskra starfs-
manna tóku gildi. Fólk hefur flutt frá Suður-
nesjum vegna atvinnuleysis. Sjá síðu 6
BJÖRN EKKI BRUCE Herra Björn
Bjarnason, þér eruð enginn Bruce Willis,
sagði Helgi Hjörvar á Alþingi vegna hug-
mynda dómsmálaráðherra um eflingu sér-
sveitar lögreglunnar. Sjá síðu 12
VARNARLIÐIÐ Útlit er fyrir að her-
mönnum varnarliðsins verði
fækkað um 12 prósent á árinu en
samanlagt verða 220 hermenn
fluttir á brott. Samkvæmt upp-
lýsingum frá varnarliðinu fóru
130 hermenn með hinum brott-
fluttu skipa- og eftirlitsflugvél-
um 5. febrúar, Orion-vélunum
svokölluðu. Þeir 90 hermenn sem
standa eftir, starfa í viðhalds-
deild vélanna og verða farnir í
sumarlok. Fækkunin verður til
frambúðar ef ekki verður fram-
hald á útgerð skipa- og kafbáta-
leitarflugvéla flotans á Keflavík-
urflugvelli.
Aðspurður um hvort fækkunin
muni leiða til frekari uppsagna
íslensks starfsfólks varnarliðsins
segist Friðþór Eydal, upplýsinga-
fulltrúi varnarliðsins, ekki geta
svarað því að svo stöddu.
„Ekki er hægt að segja til um
hver áhrif þetta hefur umfram
þær uppsagnir sem þegar hafa
orðið,“ segir hann. „Það getur vel
verið að ekki komi til frekari
samdráttar en mikilvægt er að
benda á að ekki hefur verið tekin
endanleg ákvörðun um hvort
Orion-vélarnar komi aftur hingað
til lands eða ekki.“
Hann tók það jafnframt fram
að engir Íslendingar starfi við
flugdeildina. ■
52%74%
5 . M A R S T I L 1 1 . M A R S 2 0 0 4birta Sjónvarpsdagskránæstu7daga
vikulegt tímarit um fólkið í landinu
ÚTBREIDDASTA TÍMARIT LANDSINS - 96.000 EINTÖK
NR . 9 . 2004
Hildigunnur Þráinsdóttir
Listrænn einfari
og bókaormur
Marían í lífi mínu
Lóa spákona á Nauthóli
Gjörningaklúbburinn
Stjörnuspáin
Þessi voru þar
Þunglyndi
barna og unglinga
Er kominn tími til að
hætta með kærastanum?
Hildigunnur Þráinsdóttir:
▲
Listrænn einfari
og bókaormur
birta
● gjörningaklúbburinn
● þunglyndi barna
HIÐ FEGURSTA VEÐUR Já og það
víða um land. Hægviðri og víðast bjart yfir
á landinu og milt yfir miðjan daginn. Stöku
skúrir eða slydduél síðdegis. Þetta er alveg
frábært veður fyrir konur að viðra karlana.
Sjá síðu 6.
Fylgir Fréttablaðinu dag
JÓNAS FRANKLÍN
Mest tekur þetta á mig vegna
aðstandenda barnsins.
Jónas Franklín læknir:
Kenni
mér um
HEILBRIGÐISMÁL „Já, ég kemst ekki
hjá því. Ég hefði átt að vita betur
og gera mér grein fyrir því, en ég
gerði það ekki. Ég hreinlega veit
ekki hvert framhaldið verður. Ég
reikna fastlega með að áminning
verði niðurstaðan, þótt ég viti það
ekki,“ sagði Jónas Franklín lækn-
ir þegar hann var spurður hvort
hann kenni sér um að barn lést
skömmu eftir fæðingu á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. Jónas
deyfði móðurina með þessum
alvarlegu afleiðingum.
Hann hefur áður lent í vand-
ræðum í starfi. Hann segist hafa
verið flæmdur frá Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri á sínum
tíma vegna erfiðra samskipta við
þáverandi yfirmann þess. „Ég var
að reyna fyrir mér í Keflavík og
hafði gert mér vonir um að geta
jafnvel sest þar að á farsælan
hátt,“ sagði Jónas. „En þá þurfti
þetta endilega að koma fyrir. Mér
þykir þetta afar miður og hefur
ekki liðið vel eftir þetta. Það var
ekki á það bætandi fyrir mig og
mína fjölskyldu. En mest tekur
þetta á mig vegna aðstandenda
barnsins.“
Sjá nánar bls. 14
Tilbúnir að slá
af launakröfum
Samningar á almennum markaði takast jafnvel um helgina. Forystu-
menn stéttarfélaganna eru ekki samstíga í launakröfum. Bíða útspils
ríkisstjórnarinnar sem getur ráðið úrslitum.
Frekari fækkun hjá varnarliðinu:
Á þriðja hundrað hermenn burt
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
KJARAVIÐRÆÐUR „Ríkisstjórnin hef-
ur lyklana að lausn þessara kjara-
deilna en aðkoma hennar er þó ansi
þokukennd. Ég er bjartsýnn á að
við náum þessu saman um helgina
en það ræðst af því hvort og þá
hverju ríkisstjórnin spilar út. Það
er þó alveg ljóst að við sitjum ekki
lengi yfir engu,“ sagði Kristján
Gunnarsson, formaður Verkalýðs-
og sjómannafélags Keflavíkur.
Kjaraviðræður á almennum
markaði hefjast að nýju í dag en
viðræðum var frestað á mánudag.
Þeim var frestað þar sem mikið
bar í milli um launalið samning-
anna. Kröfugerð stéttarfélaganna
hljóðar upp á 5% almenna launa-
hækkun við undirritun samninga,
5% hækkun um næstu áramót og
4% hækkun í byrjun áranna 2006
og 2007. Samtök atvinnulífsins
höfðu boðið um eða yfir 2% launa-
hækkun á ári næstu fjögur ár. Eft-
ir fundahöld síðustu daga og sam-
ráð verður ekki annað séð en að
verkalýðsfélögin séu tilbúin að slá
af launakröfunum. Þó virðast
menn ekki samstíga um það innan
Starfsgreinasambandsins.
Samninganefnd Verkalýðs-
félags Húsavíkur telur mikilvægt
að verkafólk um land allt standi
saman og boði til verkfalla til að
knýja á um bætt kjör, haldi Samtök
atvinnulífsins sig við fyrirliggj-
andi tillögur um launahækkanir.
Húsvíkingar segjast tilbúnir í átök
enda ekki vanir því að láta troða á
sér, eins og segir á heimasíðu
Verkalýðsfélags Húsavíkur.
Samninganefnd Vöku á Siglu-
firði tekur í sama streng.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er þó stærstur hluti samn-
ingamanna stéttarfélaganna á
almennum markaði á þeirri skoðun
að ekki sé annað fært en að slá af
kröfum um launahækkanir ef
ganga á frá nýjum kjarasamning-
um án átaka.
Í ljósi þessa má búast við
stormasömum fundi nú fyrir há-
degi þegar samningamenn Flóa-
bandalagsins og Starfsgreinasam-
bandsins bera saman bækur sínar
fyrir samningafund sem þeir eiga
eftir hádegið með Samtökum
atvinnulífsins.
the@frettabladid.is
SETT FYRIR LEKANN Á ALÞINGI Iðnaðarmenn nýttu sér góðviðrið í gær og gerðu við leka á þaki alþingishússins við Austurvöll. Svo
vildi til að lekinn leiddi beint niður í ræðustól Alþingis og truflaði meðal annars utanríkisráðherra í ræðu fyrir skemmstu.
Uppbyggingin í Írak:
Ísland leggur
til 70 milljónir
ÍRAK Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra og Jean-François
Rischard, varaforseti Alþjóða-
bankans í Evrópu, undirrituðu í
gær samning milli Íslands og
bankans vegna endurreisnar- og
uppbyggingarstarfs í Írak. Sam-
kvæmt samningnum leggja Ís-
lendingar til eina milljón dollara,
jafnvirði 70 milljóna króna, í fjöl-
þjóðlegan sjóð í umsjá Alþjóða-
bankans sem ætlað er að fjár-
magna verkefni sem snúa að end-
uruppbyggingu í Írak. Framlagi
Íslands verður varið til uppbygg-
ingar í heilbrigðisþjónustu í Írak
en þar er þörfin brýn. Framlagið
er hluti af 300 milljón króna fram-
lagi sem ríkisstjórnin samþykkti
að verja til aðstoðar í Írak í apríl á
síðasta ári. ■