Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
HUNDASÝNING Í BRETLANDI
Crufts-hundasýningin, stærsta hundasýn-
ing heims, stendur nú yfir í Birmingham í
Englandi. Hér bíða hundar af Brichon Frise
kyni og eigendur þeirra eftir því að komi
að þeim.
Norðurpóllinn:
Strandaglóp-
ar á ísnum
RÚSSLAND Björgunarleiðangur var
gerður út til að sækja tólf rússneska
vísindamenn sem voru fastir á rekís
við Norðurpólinn eftir að rannsókn-
arstöð þeirra sökk í hafið. Erfiðlega
gekk að komast til mannanna vegna
veðurs.
Vísindamennirnir voru heilir á
húfi en höfðu tapað búnaði sínum og
vistum þegar ísinn brotnaði undir
rannsóknarstöð þeirra. Þeir komust
allir út úr stöðinni í tæka tíð og
komu sér fyrir í neyðarskýli. Stefnt
var að því að fljúga með vistir til
strandaglópanna og senda síðan
þyrlu til að sækja þá þegar betur
viðraði. ■
debenhams
S M Á R A L I N D
Heimilisdeildin er full af nýjum og spennandi vörum
á verði sem kemur þér í gott skap.
GJAFALISTAR - Frábært úrval af glæsilegum
gjöfum fyrir öll tækifæri.
Komdu og settu saman óskalistann þinn hjá okkur.ÍSLEN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
39
28
03
/2
00
4
Heimilislausar
GJAFIR
aðild að félaginu. Hann segir að
kynjamisræmi í lögmannsstéttinni
hafi nýverið komið til umræðu á
einum af árlegum fundum stjórna
norrænna lögmannafélaga þar sem
rýnt var í hvernig kynjahlutfall
stéttarinnar væri að þróast.
Hann samsinnir því að lög-
mannsstéttin sé hefðbundin karla-
stétt en bendir á að af þeim sökum
muni það taka nokkurn tíma að
jafna hlutfall karl- og kvenlög-
manna. „Það er í raun ekki spurning
um hvort það gerist, heldur einung-
is hvenær,“ segir Ingimar. „Konur
eru nú orðnar um fimmtungur
félagsmanna Lögmannafélagsins og
hefur hlutur þeirra tvöfaldast frá
1990. Hins vegar má gera ráð fyrir
því að hlutfall kvenna aukist jafnt
og þétt þar sem konur hafa verið í
meirihluta í námskeiðum Dóms-
málaráðuneytisins til lögmannsrétt-
inda sem haldin hafa verið síðastlið-
in fjögur ár.“
Auk Sifjar eru í stjórn Helga
Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Ed-
wards, Margrét Einarsdóttir og
Svala Thorlacius. Varamenn eru
Hjördís Harðardóttir og Inga Þöll
Þórgnýsdóttir.
sda@frettabladid.is
NEYTENDAMÁL Í nýjasta fréttabréfi
Félags íslenskra bifreiðaeigenda
er fjallað um álagningu íslenskra
olíufélaga. Höfundur veltir því
fyrir sér hvernig standi á því að
verðþróun hjá stóru olíufélögun-
um hafi ekki tekið sama mark á
verðþróun á alþjóðamörkuðum
eftir tilkomu Atlantsolíu.
„Augljósasta skýringin er að
félögin telji sig geta komist af
með minni álagningu. Minni
álagning og lægra vöruverð er
fagnaðarefni en neytendur verða
að halda vöku sinni. Hvers vegna
er lag til að lækka álagningu um
tvær til þrjár krónur á lítra um
þessar mundir? Getur verið að
neytendur hafi á undanförnum
árum verið að ofgreiða hundruð
milljónir í eldsneytisverði,“ er
spurt í pistlinum.
Í fyrirsögn greinarinnar er
þeirri spurningu velt upp hvort
stóru olíufélögin stundi um þessar
mundir undirverðlagningu til
þess að „drepa samkeppni í fæð-
ingu“. ■
FÍB um bensínsmarkaðinn:
Undrast breytta
verðlagningu
FRÁ OPNUN ATLANTSOLÍU
Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur
áhyggjur af því að stóru olíufélögin reyni
að kæfa samkeppni í fæðingu með
undirboðum.
FRÁ STOFNFUNDI FÉLAGS KVENNA Í LÖGMENNSKU
Markmið félagsins er að auka þátttöku kvenna í lögmannsstétt auk þess að gera þær
sýnilegri. Meirihluti útskrifaðra lögfræðinga eru konur en þær eru einungis fimmtungur
félaga Lögmannafélags Íslands.