Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 34
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Bílar o.fl... LAUGARDAGAR Þar sem þú getur treyst á gæðin YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082 Lífrænt ræktaðar vörur KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR HÓMÓPATI Galdramatselja sem kynntist íslenska saltfisknum í portúgalskri sól. Saltfisksgaldur: Svimandi íslensk og portúgölsk áhrif Ég kolféll fyrir saltfisknumþegar ég eyddi sumarleyfinu í Portúgal og var staðráðin í að þróa minn eigin saltfiskrétt þeg- ar heim kæmi,“ segir hómópat- inn (smáskammtalæknir) Krist- ín Kristjánsdóttir um leynivopn- ið sitt í eldhúsinu; saltfisk með sól, nokkuð sem menn skæla í henni að fá aftur og aftur að njóta. „Ég er á þeirri skoðun að matur verði að líta vel út til að vera lystilegur og þessi er svo sannarlega fyrir augað. Fennelið í honum gefur töfrandi pernod- bragð. Fennel er mögnuð lækn- ingajurt sem hefur bætandi áhrif á meltingu, lækkar blóð- þrýsting, er vatnslosandi og los- ar fólk við nagandi sykurþörf. Fennel er einnig gott fyrir önd- unarfærin, róar hósta og er al- gjörlega frábært fyrir mæður með börn á brjósti, því það er bæði mjólkuraukandi og kemur í veg fyrir magapínu ungbarna. Þetta er því meinhollur réttur því litríkar paprikurnar eru upp- fullar af c-vítamíni og útkoman styrkjandi fyrir ónæmiskerfið.“ Kristín segir saltfiskréttinn skemmtilegan í langt borðhald þar sem menn fá sér oftast smá- vegis að smakka fyrst og svo aft- ur og aftur. „Ég man þegar ég hafði slegið smiðshöggið á kokkerí þessa saltfiskgaldurs að ég bauð íslenskum vinum í mat sem höfðu búið langdvölum ytra. Vissi að þeim langaði í bragðið af Íslandi og fannst rétturinn þjóðlegur þótt hann sé vissulega með suðrænu ívafi líka. Þetta er líka tilvalinn réttur til að kynna saltfisk fyrir fólki, því margir eru haldnir þeirri meinloku að saltfiskur sé annars flokks mat- ur, sem hann er svo sannarlega ekki. Bragðið og áhrifin draga andann upp og gera mann glað- ari.“ Saltfiskur með sól 500 g útvatnaður saltfiskur hveiti ólífuolía 2 stórir laukar 2 stórir rauðlaukar 8 söxuð hvítlauksrif 5 stórir bufftómatar 3 paprikur; gul, rauð og græn 1 gott fennel stórar svartar ólífur Grænmetið er saxað niður og gljáð við vægan hita í tuttugu mínútur. Saltfiskurinn er soðinn í fimm mínútur og þá kældur á diski. Því næst er honum velt upp úr hveiti og svissaður í ólífuolíu á pönnu þar til hann er orðinn gylltur. Þá er helmingur grænmetisins settur ofan í eld- fast mót, saltfisknum raðað þar ofan á og restinni af grænmetinu stráð yfir fiskinn ásamt ólífum. Bakað í 30 mínútur við 200 gráður. Borið fram með soðnum kartöflum, hvítu snittubrauði, köldu smjöri, kældu hvítvíni og nóg af ísköldu vatni. ■ Spínat er hollt, vítamínríkt ogjárnríkt. Bragðið er mjög afgerandi og það því ekki að allra skapi. Stjáni blái elskaði það eins og frægt er, borðaði spínat og varð hinn sterkasti af því. Spínat á rætur sínar að rekja til Persíu. Á miðöldum var það selt ferskt eða eldað. Spínat var í tísku á 17. öld þegar sykri var bætt í vatnið sem það var eldað í. Spínat er kalóríusnautt enda vatn að miklum meirihluta. Ein- ungis 20–30 kaloríur eru í 100 grömmum af spínati og er það mjög auðmeltanlegt. Spínat er oft borið fram sem meðlæti með kjöti eða eggjum og notað í fyllingar eða ferskt og gott í salöt. ■ matur o.fl. Stjáni blái elskaði það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.