Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 38
38 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR Fréttiraf fólki REM Six o’clock - TV hour. Don’t get caught in foreign tower. Slash and burn, return, listen to yourself churn. Lock him in uniform and book burning, blood letting. Every motive escalate. Automotive incinerate. Light a candle, light a motive. Step down, step down. Watch a heel crush, crush. Uh oh, this means no fear - cavalier. Renegade and steer clear! A tourna- ment, a tournament, a tournament of lies. Of- fer me solutions, offer me alternatives and I decline. It’s the end of the world as we know it, and I feel fine. - Michael Stipe var ekkert að kippa sér upp við heimsendi í laginu It’s the End of the World as We Know It af plötunni Document frá árinu 1987. Popptextinn SMS um nýjustu plöturnar HEIÐA Gagnrýnandi Fréttablaðsins kann betur við hina hugljúfu Heiðu en hina harð- skeyttu. Gott mál að báðar séu til staðar á nýju plötunni. Heiða og heiðingjarnir - Tíu- fingurupptilguðs „Niðurstaða: Góð plata en nokkuð sundurleit. Hugljúfa Heiða er betri en sú harðskeytta.“ FB Franz Ferdinand - Franz Ferdinand „Það er ástæða fyrir því að menn eins og ég eru að missa sig yfir þessari plötu, sannprófið það bara. Í þetta skiptið er óhætt að trúa „hæpinu“. Kannski engin tímamótaplata en þó skotheld skífa sem kemur ykkur örugglega í gott skap.“ BÖS Botnleðja fer á virta tónleikahátíð „Við erum fokking snar- brjálaðir uppi á sviði“ Hljómsveitin Jarcrew ertveggja ára og kemur frá Wales. Liðsmenn sveitarinnar virðast vera tilraunaglaðir og eiga erfitt með að lýsa tónlist sinni þegar kemur að skilgreiningum. Örlítið af hörðu rokki og róli, ör- lítið af áhrifum frá Kraftwerk og örlítið af poppi. Á heimasíðu þeirra er sveitinni lýst sem ærslafullri tónleikasveit. Kelson Mathais, sem syngur og spilar á hljómborð, er lýst sem geðsjúkum Mick Jagger sem eigi það til í að fara nánast ofan í and- lit tónleikagesta. Trommarinn Rod Thomas er svo sagður eiga heilan kafla í rokksögunni og að helsta kúnst hans sé að hoppa úr trommustólnum upp á herðar söngvarans í miðjum klíðum. Stór orð, sem þeim ber þá að standa undir á tónleikum sínum með Mínus á Gauknum í kvöld. „Við erum tilbúnir í það,“ segir Kelson söngvari. „Við höfum ver- ið að spila í Bretlandi svo lengi að okkur þyrstir í að prófa nýja staði. Það verður gaman að sjá hvernig Íslendingar taka þessu. Við ætlum bara að vera fokking snarbrjálað- ir uppi á sviði eins og við gerum alltaf og sjá til hvort fólk hafi gaman af þessu.“ Liðsmenn Jarcrew kynntust drengjunum í Mínus þegar báðar sveitir hituðu upp fyrir Million Dead í tveggja vikna tónleikaferð um Bretland fyrir síðustu jól. „Þetta voru mjög vingjarnlegir strákar og við náðum strax sam- an sem manneskjur,“ segir Kel- son um hina umdeildu Mínus- drengi. „Eftir nokkur kvöld og nokkra drykki buðu þeir okkur að koma einhvern tímann til Íslands að spila. Við sögðum bara já, en við bjuggust aldrei við því að neitt yrði úr. Svo fengum við bara símtal.“ Er tónlist ykkar svipuð þeirra? “Nei, hún er nú ekki mjög svip- uð. Þeir eru líka alltaf að breytast. Ég held þó að báðar sveitir séu undir svipuðum rokk og ról áhrif- um. Við erum með svipaðar hug- myndir varðandi tónlist og stefn- um á svipaða staði. Það er þó meira um hljómborð og sömpl hjá okkur. Við erum meira popp en þeir eru meira hart rokk. Við snertum ómeðvitað á fullt af ólík- um tónlistarstefnum. Við erum ekki hræddir við að opna dyrnar fyrir nýjum áhrifum, sama hvað- an þau koma. Við spilum bara það sem við fílum og það eru bútar hér og þar. Það er bókað smá elektróclash þarna inni. Áhrif frá Kraftwerk og svoleiðis sveitum,“ segir Kelson að lokum og gerir sig reiðubúinn til þess að kalla fram geðsjúka Jaggerinn. biggi@frettabladid.is TÓNLIST Góðir hlutir gerast hægt og nú hefur ljúflingunum í Botn- leðju verið boðið að taka þátt á All Tomorrow’s Parties-tónleikahátíð- inni í Bretlandi. Hátíðin er virt á meðal tónlistarspekúlanta, sem hópast þangað árlega til þess að verða vitni að því ferskasta sem er að gerast í undirdjúpum tón- listarinnar. „Þetta gerðist þannig að 21. febrúar fáum við tölvupóst frá hljómsveitinni Shellac,“ útskýrir Haraldur Freyr Gíslason, trommuleikari Botnleðju. „Það var stutt og skýr spurning um hvort við hefðum áhuga á að spila á þeirra kvöldi á All Tomorrow’s Parties-hátíðinni 28. mars. Ég sá reyndar ekki þennan tölvupóst fyrr en þeir voru búnir að senda þrjá pósta. Í síðasta póstinum voru þeir farnir að spyrja að því hvort við hefðum ekki áhuga á að spila fyrst við höfðum ekkert svarað. Ég sá þetta svo 1. mars og spurði Heiðar hvaða hátíð þetta væri. Þá spurði ég hvort það væri orðið of seint, þeir sögðu nei, og núna erum við bókaðir.“ Shellac er hljómsveit upptöku- stjórans Steve Albini, sem hélt tónleika hér á landi fyrir um þremur árum. Þá var Botnleðja ekki á meðal upphitunarsveita og Halli hefur ekki hugmynd um hvernig liðsmenn Shellac fréttu af sveit sinni. „Þeir hljóta að hafa heyrt plötuna okkar. Þeir velja all- ar sveitirnar á kvöldið sitt sjálfir, þannig að þeir hljóta að fíla okk- ur,“ segir Halli hálf spyrjandi í lokin. Góða ferð. ■ BOTNLEÐJA Nýkomin frá Noregi eftir vel heppnaða tónleikaferð og er nú á leiðinni á All Tomorrow’s Parties. Tónlist JARCREW ■ Breska sveitin Jarcrew kemur fram á Kerrang!-kvöldi ásamt Mínus á Gauknum í kvöld. MÍNUS Breska hljómsveitin Jarcrew hitar upp fyrir Mínus á Gauknum í kvöld. Piltarnir frá Wales segjast hafa heyrt af því hversu vel íslenskir tónleikagestir taki á móti ferskum hljóm- sveitum og hlakka mikið til þess að spreyta sig á sviði hér. Bandarísku framþróunarpopp-sveitinni N.E.R.D. hefur verið bætt á dagskrá Hróaskelduhátíð- arinnar í ár. Fyrir þá sem ekki vita eru þar innanborðs þeir Pharrell Williams og Chad Hugo úr upptökustjórateyminu The Neptunes. Williams og Hugo hafa samið flesta slagara Justins Timberlake og Kelis auk þess að gefa undir nafni N.E.R.D. út eina bestu plötu þarsíðasta árs, sem heitir In Search of...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.