Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 14
14 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR Stjórnarmenn í Medcare Flögu: Harma uppgjör og lýsa trausti UPPGJÖR Uppgjör Medcare Flögu veldur stjórnendum vonbrigðum. 1,3 milljón dollara tap varð af rekstrin- um. Niðurstaðan var í takt við af- komuviðvörun félagsins, en veruleg frávik voru frá útboðslýsingu félags- ins þegar það var skráð á markað seinni hluta síðasta árs. Fagfjárfest- ar sem keyptu í útboðinu munu meta stöðu sína í kjölfar skýringa félags- ins á því hvers vegna verðmæti birgða var lækkað frá útboðslýsingu. Þeir stjórnarmenn sem ekki koma að daglegri stjórnun félagsins sendu frá sér yfirlýsingu í kjölfar uppgjörsins. Þar lýsa þeir vonbrigð- um með uppgjörið. Félagið náði markmiðum um vöxt tekna og er innri vöxtur þess 23 prósent. Tveir stjórnarmannanna keyptu bréf í út- boði félagsins. Í yfirlýsingunni leggja stjórnarmennirnir áherslu á traust sitt á stjórnendum félagsins. „Við álítum að Medcare Flaga hf. hafi á að skipa sterkum hópi stjórn- enda og fyrirtækjabrag sem byggir á frumkvæði, drifkrafti og sterkri siðferðiskennd. Gripið hefur verið til aðgerða til þess að takast á við þann vanda sem upp kom,“ segir í yfirlýsingunni. ■ Baráttan gegn HIV: Bandaríkin gefa milljarð PEKING, AP Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að verja sem svarar rúmum einum milljarði íslenskra króna í baráttuna gegn útbreiðslu HIV- veirunnar í fátækustu héruðum Kína. Styrkurinn verður notaður til að fjármagna fyrirbyggjandi að- gerðir, eftirlit og umönnun sjúk- linga. Um 840.000 Kínverjar eru smit- aðir af HIV-veirunni og um 80.000 hafa veikst af alnæmi. Smituðum fjölgar um þrjátíu prósent á ári og hafa sérfræðingar varað við því að árið 2020 verði þeir orðnir allt að tíu milljónir ef ekki verði gripið til að- gerða tafarlaust. ■ LEITAÐ AÐ SPRENGJUM Franskir eftirlitsmenn rannsaka járnbraut- arteina skammt frá Bayonne í suðvestur- hluta Frakklands. Óþekkt hryðjuverkasam- tök hafa hótað því að koma fyrir sprengj- um á lestarteinum í Frakklandi ef þau fá ekki greiddar milljónir Bandaríkjadala. NJÓTA TRAUSTS Svanbjörn Thoroddsen og samstarfsmenn hans njóta trausts stjórnarmanna félagsins. Mistök urðu í vinnu fyrirtækisins við mat á birgðum þegar þær voru metnar í útboðs- lýsingu félagsins. EL MOTASSADEQ Marokkóinn Mounir el Motassadeq viður- kennir að hafa þekkt þá sem skipulögðu árásirnar 11. september en neitar því alfar- ið að hafa haft vitneskju um áform þeirra. Hryðjuverkárásirnar 11. september: Eini dómur- inn ógiltur ÞÝSKALAND, AP Áfrýjunardómstóll í Þýskalandi ógilti dóm yfir eina manninum sem fundinn hafði ver- ið sekur um aðild að hryðjuverka- árásunum í Bandaríkjunum 11. september og fyrirskipaði ný rétt- arhöld. Marokkóinn Mounir el Motassadeq hafði verið dæmdur í fimmtán ára fangelsi fyrir sam- særi um morð og morðtilraunir og aðild að hryðjuverkasamtökum. Áfrýjunardómstóllinn ógilti dóm- inn á þeim forsendum að verjend- ur Motassadeq hefðu ekki fengið tækifæri til að yfirheyra lykil- vitni í málinu, sem er í fangelsi í Bandaríkjunum. Óvíst er hvort el Motassadeq fær að ganga laus þar til réttað verður yfir honum að nýju í Hamborg. ■ ÁHLAUP Á RAFAH Fjórtán ára palestínskur drengur féll og níu Palestínumenn særðust í átökum sem brutust út þegar ísraelskar hersveitir gerðu áhlaup á bæinn Rafah á Gaza-ströndinni. Her- mennirnir jöfnuðu fimm hús við jörðu og eyðilögðu vatnsveitu og rafmagnsleiðslur. Að sögn hers- ins var verið að leita að göngum sem palestínskir vígamenn nota til að smygla vopnum frá Egypta- landi. SEX LANDNEMABYGGÐIR LAGÐAR NIÐUR Íbúar í sex ólöglegum ísraelskum landnemabyggðum á Vesturbakkanum fengu frest þar til síðdegis í gær til að flytja á brott. Ísraelskir embættismenn segja þó að hermenn verði ekki sendir til að rífa niður byggðina fyrr en í næstu viku. JÁTNING Ísraelskur karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa á síðustu þremur árum komið fyrir fjölda sprengja í borginni Haifa sem ætlaðar voru aröbum. Einni sprengjunni hafði verið komið fyrir undir bifreið þingmanns en önnur sprakk við mosku. Þrír særðust þegar sprengjur manns- ins sprungu. SPRENGJA SPRAKK ÓVART Með- limur í palestínskri andspyrnu- hreyfingu lést þegar sprenging varð á heimili hans í Rafah. Að sögn palestínskra embættis- manna var maðurinn að líkindum að útbúa sprengju sem sprakk of snemma. Sjö ættingjar mannsins særðust í sprengingunni. Fjöldi kæra og áminning á Suðurnesjalækninn Læknirinn sem var vakthafandi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þegar barn lést eftir of mikla deyfingu í legháls móður, að því er talið er, hefur fengið á sig á annan tug kæra og kvartana og eina áminningu í starfi á ferlinum. Kennir sjálfum sér um hvernig fór fyrir barninu. HEILBRIGÐISMÁL Læknirinn sem var vakthafandi á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þegar barn lést eftir of mikla deyfingu í legháls móður, að því er talið er, hefur á ferli sínum fengið á sig fjölda kæra og kvartana varð- andi starf sitt, samkvæmt upp- lýsingum sem F r é t t a b l a ð i ð hefur aflað sér. Þá hefur um- ræddur læknir verið áminntur af landlækni á síðari árum. S a m k v æ m t upplýsingum blaðsins hafa sum þeirra mála þar sem læknirinn hefur komið við sögu verið talin alvarleg. Ekki hefur þó komið til þess að hann yrði sviptur lækna- leyfi. Matthías Halldórsson aðstoð- arlandlæknir sagði að embættið ræddi ekki starfsferil einstakra lækna þar sem samfélagið væri svo lítið. Almennt séð væru menn ekki sviptir læknaleyfi nema allt benti til að þeir væru ófærir um að gegna starfi sínu, svo sem vegna elliglapa, óreglu eða þess háttar. Spurður um meðferð máls um- rædds læknis sagði Matthías að landlæknisembættið hefði verið talið vanhæft til að fara með mál- ið í heild sinni. Það væri því vænt- anlega ákvörðun setts landlæknis, Jóns Hilmars Alfreðssonar, hvort læknirinn yrði áminntur eða svipt- ur leyfinu. Þá þyrfti samkvæmt lögum að senda afrit af áminning- unni til heilbrigðisráðherra. Að öðru leyti kvaðst Matthías ekki vilja tjá sig um efnisatriða þessa máls. „Ég sendi settum landlækni svar við drögum að álitsgerð hans en hún var þá farin frá honum,“ sagði Jónas Franklín, umræddur læknir, í gær. „Ég gerði athuga- semd við þá fullyrðingu hans að ég hefði ekki verið nógu nákvæm- ur í minni aðgerðalýsingu og vís- aði þar til verklagsreglna sem ég er vanur að vinna eftir. Að öðru leyti fannst mér hann mjög mál- efnalegur og ekki vilja fullyrða neitt. Sjálfur er ég dómharðari í því að ég tel ekki neinn vafa á því að deyfiefnið sem slíkt, hvernig sem það barst í barnið, sé orsaka- valdurinn. Síðan voru aðstæðurn- ar slíkar að ég gat ekki brugðist eins fljótt við og ég er vanur.“ - Finnst þér það vera þér að kenna hvernig fór? „Já, ég kemst ekki hjá því. Ég hefði átt að vita betur og gera mér grein fyrir því, en ég gerði það ekki. Ég hreinlega veit ekki hvert framhaldið verður. Ég reikna fast- lega með að áminning verði niður- staðan, þótt ég viti það ekki,“ sagði Jónas, sem kvaðst starfa á sjúkrahúsi rétt hjá Gautaborg, en vera í hálfs mánaðar leyfi hér heima. Hann kvaðst hafa verið flæmdur frá Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri á sínum tíma vegna erfiðra samskipta við þá- verandi yfirmann þess. Hann hefði horfið til starfa í Svíþjóð, en fjölskyldan orðið eftir hér heima. „Þarna var ég að reyna fyrir mér í Keflavík og hafði gert mér vonir um að geta jafnvel sest þar að á farsælan hátt,“ sagði Jónas. „En þá þurfti þetta endilega að koma fyrir. Mér þykir þetta afar miður og hefur ekki liðið vel eftir þetta. Það var ekki á það bætandi fyrir mig og mína fjölskyldu.“ jss@frettabladid.is ■ Ísrael „Ég hefði átt að vita betur og gera mér grein fyr- ir því, en ég gerði það ekki. JÓNAS FRANKLÍN „Þarna var ég að reyna fyrir mér í Keflavík og hafði gert mér vonir um að geta jafnvel sest þar að á farsælan hátt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.