Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 2
2 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR „Já ég kláraði BA prófið á réttum tíma en hins vegar hafa lok á MA náminu dregist.“ Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar, hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér að þeir sem klára háskólanám á tilætluðum tíma verði verðlaunaðir með því að hluti námslánanna breytist í styrk. Spurningdagsins Björgvin, kláraðir þú þitt á réttum tíma? Kvartar yfir að fá ekki gögnin Lögmaður sakbornings í líkfundarmálinu kvartar yfir að fá ekki gögn vegna rannsóknarinnar. Arnar Jensson, hjá ríkislögreglustjóra, segir dómara hafa úrskurðað að þeim sé ekki skylt að afhenda gögnin. LÍKFUNDUR „Þeim er skylt að af- henda mér skjöl sem málið varða en þeir hafa alla sína hentisemi með það,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jónasar Inga Ragnarsson, eins þremenning- anna sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna líkfundarins í Neskaupstað. Sveinn ætlar að leggja fram kvörtun til Hæstaréttar um leið og fjallað verður um kæru Jónas- ar Inga vegna framlengingarinn- ar á gæsluvarðhaldinu. Hann seg- ir kvörtun til Héraðsdóms Reykjavíkur vera á leiðinni. „Eins og hlutunum er háttað núna á ég erfitt með að sjá stöðu míns skjól- stæðings. Samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála stendur skýrum stöfum í 43. grein að verj- andi skuli jafn skjótt og unnt er, fá endurrit af þeim skjölum sem málið varða, svo og aðstöðu til að kynna sér gögn sem ekki verða endurrituð.“ Sveinn segir lög- reglu getað neitað verjanda að- gangi að einstökum skjölum eða öðrum gögnum í allt að eina viku frá því að þau urðu til eða komust í vörslur hennar ef hún telur að það geti skaðað rannsókn máls- ins.“ „Það hefur komið fram ósk um að fá gögnin afhent og við höfum neitað að afhenda þau vegna rann- sóknarhagsmuna. Dómarinn tók það til úrskurðar á miðvikudag, þegar gæsluvarðhaldsframleng- ingin var tekin fyrir. Þá fór einn verjanda fram á að fá gögn af- hent. Dómarinn úrskurðaði að okkur bæri ekki skylda til að af- henda gögnin,“ segir Arnar Jens- son, hjá ríkislögreglustjóra. Sveinn segist hafa beðið um gögnin fyrir viku og hélt hann fengi þau gögn sem væru orðin viku gömul. Undanþága frá regl- unni sé í 73. grein en þar segir að ef lögregla telur nauðsynlegt að skýrsla verði tekin fyrir dómi af sakborningi, brotaþola eða vitn- um til þess að upplýsa mál, áður en verjandi fær aðgang að ein- stökum skjölum eða öðrum gögn- um þess, ber dómara að verða við slíkri beiðni. „En lögreglan hefur ekki lagt fram neina slíka beiðni fyrir dómara.“ „Hann er eðlilega ósáttur við framlenginguna. Gæsluvarðhald- ið var byggt á því að rannsóknar- hagsmunir væru í húfi en ég vil meina að svo sé ekki lengur,“ seg- ir Sveinn Andri. Hann segir að búið sé að rannsaka málið af úr- valsliði lögreglunnar í þrjár vikur. Því hljóti þeir að hafa þrengt hringinn það mikið að sönnunar- gögnunum verði ekki spillt. Sveinn segist halda að gæsluvarð- haldið sé einungis til að þreyta þremenningana. hrs@frettabladid.is George W. Bush skýtur föstum skotum á John Kerry: Baráttan hafin fyrir alvöru WASHINGTON, AP Segja má að bar- áttan fyrir bandarísku forseta- kosningarnar hafi hafist í fyrri- nótt þegar báðir helstu frambjóð- endurnir, George W. Bush forseti og áskorandinn John Kerry, fóru í kosningaferðalag í tvö ríki sem hafa mikið að segja um hver verð- ur forseti Bandaríkjanna eftir næstu kosningar. „Hann hefur verið í Washington í tvo áratugi. Hann hefur verið þar nógu lengi til að taka afstöðu bæði með og á móti í hverju einasta máli,“ sagði Bush sem skaut föst- um skotum á Kerry á fjáröflunar- samkomu í Los Angeles. Kerry fór til Flórída, þar sem úrslitin réðust síðast, við upphaf kosningabaráttu sinnar eftir að hafa tryggt sér útnefningu demókrata. Orustuvöllur frambjóðendanna hefur verið skilgreindur sem sextán ríki þar sem munaði sex prósentum eða minna á Bush og Al Gore í forsetakosningunum fyrir tæpum fjórum árum. Í fyrsta hluta auglýsingabaráttu sinnar ver Bush um 750 milljón- um króna í þessum ríkjum. ■ Banaslys: Sjómaður féll útbyrðis SJÓSLYS Maður féll útbyrðis af netabátnum Fylki KE 102 og drukknaði þar sem hann var að leggja net eina sjómílu norð-aust- ur af Keilisnesi í gærmorgun. Tveir menn voru um borð í bátn- um en hinn látni, sem var 66 ára gamall, náðist fljótlega upp í nærliggjandi bát, Ósk KE 5, sem kom á staðinn. Samkvæmt upp- lýsingum frá Lögreglunni í Keflavík voru gerðar lífgunartil- raunir á leið í land í Keflavík. Læknir kom um borð í bátinn um leið og hann kom að landi um kl. 12.30 en maðurinn var þá úr- skurðaður látinn. ■ ÆVISAGAN KYNNT Kanslarinn fyrrverandi kynnir ævisögu sína; Minningar 1930-1982. Helmut Kohl: Saga þýska kanslarans BERLÍN, AP Helmut Kohl, kanslari Þýskalands um sextán ára skeið, sagði alltaf að hann myndi aldrei rita ævisögu sína. Nú segir hann hins vegar að hann hafi neyðst til þess þar sem við skoðun á ævisög- um og öðrum frásögnum hafi hon- um þótt sem víðtæk sögufölsun væri í gangi um þýsk stjórnmál þau ár sem hann tók þátt í þeim. Hann kynnti fyrra bindi ævi- sögu sinnar í gær, nær 700 síðna bók sem nær yfir árin frá 1930 til 1982, ársins sem hann tók við embætti kanslara. ■ SMEKKLAUS FORSETI Ættingjar nokkurra þeirra sem létust í hryðjuverkaárásunum 11. sept- ember 2001 gagnrýna George W. Bush Bandaríkjaforseta fyrir nýjar sjónvarpsauglýsingar hans. Í þeim eru myndir sem tengjast árásunum og finnst aðstandend- unum það smekklaust af forset- anum að nota atburðinn sér til framdráttar. HVALUR KAFAR NAMMCO: Hrefnustofn þolir veiðar HVALVEIÐAR Í niðurstöðum ársfund- ar Norður-Atlantshafs sjávarspen- dýraráðsins sem lauk í Færeyjum í gær kemur fram að stofnstærð hrefnu og langreyðar við Ísland sé áþekkur nú og áður en ofveiði á dýrunum hófst. Ráðið telur að áætluð veiði upp á 150 til 200 dýr á næsta ári ógni ekki stofninum. Fundurinn lýsti áhyggjum af stöðu Vestgrænlenska náhvalsins og mjaldurs við Grænland og mælst var til þess að dregið yrði úr veiðum á þessum tegundum. Ráðið telur einnig að stofn grá- hvals við Ísland sé í rénum og því er mælst til þess að íslensk stjórn- völd grípi til aðgerða til að tryggja viðgang stofnsins en einnig var talið að Norðmenn veiði of mikið af þessari tegund. ■ FÉLAGAFRELSI Hrafnhildur Stefáns- dóttir, yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífsins, telur að endur- skoða þurfi lagaákvæði um vald- svið Félagsdóms í kjölfar þess að Hæstiréttur komst að þeirri nið- urstöðu að hann væri óbær til þess að skera úr um ágreinings- efni sem rísa vegna úrskurða Fé- lagsdóms. Á vefsíðu Samtaka atvinnulífs- ins segir Hrafnhildur frá máli sem rekið var fyrst fyrir Félags- dómi um hvort vinnuveitenda beri að virða forgangsréttarákvæði kjarasamninga þegar um upp- sagnir sé að ræða þannig að þeim sé fyrst sagt upp sem ekki eru meðlimir í stéttarfélagi. Félagsdómur taldi að fyrir- tækjum bæri að virða ákvæðið, hvort sem væri við ráðningar eða uppsagnir. Fyrirtækið sem kært var, áfrýjaði til héraðsdóms, þar sem úrskurði Félagsdóms var hnekkt. Málinu var svo skotið til Hæstaréttar sem taldi sig ekki geta fjallað efnislega um málið þar sem dómar Félagsdóms séu endanlegir samkvæmt lögum. „Félagsdómur á þannig endan- legt úrskurðarvald um túlkun á félagafrelsisákvæðum stjórnar- skrárinnar þegar meta þarf áhrif þeirra á efni kjarasamninga. Nið- urstaðan í slíkum málum verður ekki endurskoðuð á æðra dóm- stigi. Draga verður í efa að slík skipan sé réttlætanleg þegar um er að ræða mál sem ekki krefjast skjótrar úrlausnar og varða mik- ilsverða hagsmuni,“ segir í grein Hrafnhildar. Hrafnhildur telur að í túlkun Félagsdóms á forgangsréttar- ákvæðum kjarasamninga kunni að fela í sér brot á félagafrelsis- ákvæði stjórnarskrárinnar og nefnir að nefnd Evrópuráðsins hafi ítrekað gagnrýnt forgangs- réttarákvæði kjarasamninga og talið þau brjóta gegn Félagsmála- sáttmála Evrópu. ■ ■ Bandaríkin LÍMDI NEMANDA Í SÆTI SITT Bandarískur grunnskólakennari sagði af sér eftir að upp komst að hann hafði límt óþægan nemanda niður í stól hans og límt fyrir á munninn á honum svo hann gæti ekki talað. Foreldrar hins fjórtán ára nemanda kærðu atburðinn og sögðu son sinn næstum hafa kafnað áður en honum tókst að losa sig. NJÓTI ALLRA RÉTTINDA John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, sagði baráttufólki fyrir réttindum samkynhneigðra að verði hann for- seti muni hann beita sér fyrir því að samkynhneigð pör nytu sömu réttinda og gagnkynhneigð hjón. Hann er þó andvígur hjónaböndum samkynhneigðra. GENGIÐ 1. MAÍ Yfirlögfræðingur SA telur að ákvæði í kjara- samningum og túlkun Félagsdóms á þeim kunni að jafngilda skerðingu á félagafrelsi fólks. SA um félagafrelsi: Breyta þarf lögum um Félagsdóm ■ Bandaríkin SVEINN ANDRI SVEINSSON LÖGMAÐUR Sveinn segir skjólstæðing sinn eðlilega vera ósáttan við framlengingu gæsluvarðhaldsins þar sem hann vill meina að rannsóknarhagsmunir séu ekki lengur til staðar. BUSH HEFUR BARÁTTUNA Kosningabarátta forsetans hófst fyrir alvöru í fyrrinótt þegar hann ávarpaði stuðnings- menn í Kaliforníu og hóf mikla auglýsinga- herferð. FJÁRHAGUR FRAMBJÓÐENDANNA George W. Bush Í sjóðum 7.427 milljónir Skuldir 0 John F. Kerry Í sjóðum 150 milljónir Skuldir 514 milljónir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.