Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 30
30 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
Arna Björk Björgvinsdóttir fermist 28.þessa mánaðar og er farin að hlakka til
dagsins. Hún segist þurfa að læra trúarjátn-
inguna vel áður og skoða ritningargreinar
því hún ætli að fara með fallegt orð við
altarið. Arna Björk býr í vesturbænum í
Reykjavík og segir föðurfólkið sitt alltaf hafa
verið í Fríkirkjusöfnuðinum.
Fermistí Fríkirkjunni
Þau eru um 70 fermingarbörninsem tilheyra Fríkirkjusöfnuð-
inum í Reykjavík en þótt sá söfn-
uður sé kenndur við höfuðborgina
þá er hann í raun dreifður um allt
land, að sögn Hjartar Magna Jó-
hannssonar safnaðarprests. Hann
segir því dálítið erfitt að smala
fermingarbörnunum saman
reglulega og það sé ekki um viku-
lega fundi að ræða, eins og hjá
mörgum öðrum. „Um helmingur
barnanna kýs líka að fermast með
sínum skólafélögum í hverfis-
kirkjunni og við gerum enga
athugasemd við það,“ segir hann.
Hjörtur Magni hefur þann hátt á
að halda sérstaka fermingarund-
irbúningsviku að haustinu, rétt
áður en skólarnir byrja. „Þá ein-
beita börnin sér að hinum kristnu
fræðum og eftir það hittumst við
af og til yfir veturinn og hressum
upp á kunnáttuna. Þessi haust-
námskeið hafa tíðkast í Fríkirkj-
unni í meira en tíu ár og nú eru
ýmsir innan þjóðkirkjunnar að
taka upp sama sið og láta eins og
um algera nýjung sé að ræða,“
segir hann.
Fermt er í Fríkirkjunni sjö
daga á þessu vori, frá 21. mars til
9. maí, og hafa börnin val milli
þeirra daga. Þar sem um litla hópa
er að ræða eru allir vinir og
vandamenn boðnir hjartanlega
velkomnir til athafnanna, öfugt
við það sem sums staðar þekkist
þar sem þrengsli í kirkjunum
setja skorður við þann fjölda sem
má fylgja hverju barni fyrir sig.
„Við reynum að hafa þetta
þægilegar og fallegar athafnir og
gefum fermingardeginum það
vægi sem honum hæfir,“ segir
séra Hjörtur Magni, og tekur
fram að hjá Fríkirkjunni tíðkist
engir fermingartollar. ■
Tíska fermingarbarna:
Blúnda og fínrifflað flauel
Fatnaður ferming-arstúlkna þetta
árið tekur mið af
tísku 7. áratug-
a r i n s .
Beinsniðn-
ir kjólar, Útsniðin
pils, einlit, doppótt eða rósótt. Fín-
legar blúndur og tjull. Litirnir,
hvítur, bleikur, turkisblár og beis,
en svartir jakkar, buxur og bolir
fljóta með. Fatnaður úr fínriffl-
uðu flaueli er vinsæll, bæði á
stúlkur og drengi, enda bæði
þægilegur og praktískur. Við lit-
um inn í tvær verslanir sem
sérhæfa sig í fermingarföt-
um og vorum svo heppin að
hitta þar á stúlkur sem voru
einmitt að máta og voru tilbú-
nar í fyrirsætustörf.
Verslunin Flash á
Laugavegi er bara fyrir
kvenþjóðina. Hvítir kjól-
ar og pils með fínlegum
blúndum höfða þar til ferming-
arstúlknanna. Einnig pils í
pastellitum og golftreyjur við.
Í Gallerý Sautján er ferm-
ingarlínan lögð fyrir bæði kyn.
Hvítar eða svartar leggings-
buxur með blúndu um ökklann
eru vinsælar með pilsum stúlkn-
anna og skórnir eru ým-
ist teknir flatir og tá-
mjóir eða með hæl og
rúnnaðri tá. ■
FRÍKIRKJUPRESTURINN
Sr. Hjörtur Magni hvetur sem flesta vini og
ættingja fermingarbarnanna til
að mæta til athafnarinnar.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur:
Gefum deginum það
vægi sem honum hæfir
Fín í bleiku og hvítu.
Kjóllinn er á 7.990 krónur og
shiffonskyrtan á 4.990.
Fæst í Flash.
KÁPA ÚR FÍNRIFFLUÐU
FLAUELI
Fæst í Sautján og kostar
13.900 krónur.
FÍNLEGUR BEISLITUR
BLÚNDUKJÓLL
Kostar 9.990 krónur í Sautján.
BLEIKT DRESS ÚR FLASH
Pilsið kostar 4.990 krónur og
golftreyjan 3.990.
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
Í FÖTUM ÚR SAUTJÁN
Pilsið er á 3.990 krónur, bolur-
inn á 2.990 og skórnir 7.990.
KJÓLLINN SMELLPASSAR
Á SVANHILDI SIF
Hann er í Flash og kostar 7.990 krónur..