Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 23
23FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
SVEINN ANDRI SVEINSSON
Lögmaður eins þeirra þriggja í Norðfjarð-
armálinu sem sitja í gæsluvarðhaldi og
Framari af mikilli ástríðu.
Hver?
Ég er Evrópusinnaður íhaldsmaður og
hreinræktaður Framari og fjögurra barna
faðir í Vesturbænum. Börnin mín eru
Sveinn Alexander 12 ára, Júlíana 9 ára,
Sara 7 ára og Lars Óliver 5 ára. Það er
ekkert erfitt að vera Framari í Vestur-
bænum því Fram var nú stofnað í mið-
bænum, þannig að ræturnar liggja þar.
Ég nærist dálítið á að hafa aksjón í
kringum mig og á til að fara offari en
oftast hefur gengið ágætlega að bæta
úr því. Ég get verið dálítið fljótfær en í
mínu starfi tek ég það hátíðlega og fylgi
mínum klíent alla leið. Vegna þess á ég
það til að stuða einhvern, en það fylgir
bara starfinu. Helmingur starfsins er alls
kyns lögmannsstörf en hinn helmingur-
inn er í refsirétti.
Hvar?
Ég er staddur á skrifstofu minni, Lög-
fræðistofu Reykjavíkur, Vegmúla 2,
þangað sem við fluttum í ársbyrjun
2002.
Hvaðan?
Ég er fæddur í Reykjavík en ræturnar
sem liggja í Jökuldalinn í móðurætt eru
mjög sterkar. Þar var ég mikið í sveit og
kynntist stórbrotnu fólki og mörgum
sérstökum karakterum. Föðurættin mín
er svo í Vopnafirði.
Hvað?
Ég hef náð að sameina fjölskyldumál og
áhugamál með því að elta krakkana í
fótboltaiðkun. Ég held stíft með Man-
chester United og Fram. Fótbolti er
áhugamál númer 1, 2 og 3.
Hvernig?
Það er ónýtt í mér hnéð þannig að ég
spila ekki sjálfur en þegar ég flokka fólk
byrja ég á að athuga með hvaða fót-
boltafélagi það heldur. Stjórnmálaskoð-
anir og lífsskoðanir fólks koma mun síð-
ar á listanum hjá mér.
Hvers vegna?
Ef fólk heldur með Fram með sömu
ástríðu og ég veit ég að það er gott fólk.
Þegar einhver er Framari þarf ég ekki að
velta vöngum neitt frekar. Þar fyrir utan
á ég góða vini í öðrum félögum.
Hvenær?
Alltaf.
■ Persónan
Þjóðsagnasafn Jóns Árnasonarkom fyrst út fyrir nærri einni
og hálfri öld og hefur allar götur
síðan verið Íslendingum óþrjótandi
uppspretta skemmtunar og fróð-
leiks. Þaðan hafa landsmenn flest-
ar þekktustu táknmyndir sínar fyr-
ir drauma, vonir, heimsku, hrylling
og ógn, hvort sem það eru Bakka-
bræður, Djákninn á Myrká, Þor-
geirsboli, álfameyjar, huldufólk
eða óskasteinar.
Árni Böðvarsson og Bjarni Vil-
hjálmsson gáfu safnið út í sex bind-
um árið 1961 en það hefur verið
ófáanlegt um nokkurt skeið þrátt
fyrir nokkrar endurprentanir.
Edda útgáfa hefur nú staðið að end-
urprentun þess í samstarfi við
SÍBS, sem gefur mörg þúsund
heppnum vinningshöfum í happ-
drætti sínu, en safnið verður einnig
til sölu á almennum markaði.
Endurprentunin var í meira
lagi umfangsmikil en prentuð
voru 4000 sett af safninu. Í hverju
setti eru sex bindi, samtals um
3.485 blaðsíður. Það voru því
prentuð 24.000 eintök, um 14 millj-
ónir blaðsíðna. Hvert sett vegur
7,6 kíló og endurprentunin vegur
því í heild sinni 30 tonn. Þó að inni-
haldið geti flokkast sem afþreying
og léttmeti vega þjóðsögurnar því
þungt bæði í sögulegum og bók-
staflegum skilningi.
Gengið var í tröllaukna bóka-
stæðuna á miðvikudaginn þegar
fyrsti vinningshafi SÍBS fékk
bækurnar sínar afhentar. ■
Bækur
EDDA ÚTGÁFA
■ hefur endurprentað Þjósagnasafns
Jóns Árnasonar. Þessi nýja útgáfa vegur
rúm 30 tonn.
KRISTÍN RUT JÓNSDÓTTIR
Fyrsti vinningshafi SÍBS sem fékk Þjóð-
sagnasafnið í hendurnar tók við því hjá
Hrannari B. Arnarssyni, markaðsstjóra
Eddu, og Páli Valssyni, útgáfustjóra Máls
og menningar, á miðvikudaginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Þjóðsögur í tonnatali