Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 24
fermingar Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ritstjorn@frettabladid.is – auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Vertu langflottust á fermingar- daginn 3. HÆÐ - KRINGLUNNI SÍMI 568 6660 Í fermingarfræðslu hjá sr. Bjarna Karlssyni: Eigum að vera stolt af að vera við sjálf Fermingarbörn í Laugarnes-kirkju þetta vorið mættu ásamt foreldrum sínum í fallega stund í kirkjunni síðasliðið miðvikudags- kvöld. Organistinn Árni Heiðar lék létt á hljóðfærið meðan fólk kom sér fyrir á bekkjunum. Hvert barn var hjá sínum foreldrum enda „skylda að sitja hjá gamla settinu,“ samkvæmt fyrirmælum sóknar- prestsins sr. Bjarna Karlssonar. Sá kann greinilega að haga orðum sín- um þannig að krakkarnir hlusti og skapa andrúmsloft sem gerir boð- un og blessun eðlilega og sjálf- sagða. Hann byrjar á að lýsa eftir sjálfboðaliðum til ýmissa starfa á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar sem er um næstu helgi og lætur eyðu- blöð ganga eftir kirkjunni til að safna nöfnum og símanúmerum. Það er nánast komið að loka- hnykknum í fermingarfræðslunni hjá sr. Bjarna. Í þessum tíma sýnir hann börnunum messuklæðin og útskýrir hvað litirnir í þeim tákna því allt hefur sína djúpu merkingu. Hann kemur viðstöddum í skilning um að skrúði prestsins er ekki til að skreyta hann heldur til að hylja og að hvíta skikkjan hans og ferm- ingarkyrtlarnir er tákn Krists sjálfs sem hreinsar okkur synduga menn. Tvívegis biður sr. Bjarni börn að bjóða sig fram til að lesa fáein orð úr hinni helgu bók. Ekki stend- ur á því. Það er lesið úr Rómverja- bréfi og Mattheusarguðspjalli. Börnin fá hrós hjá prestinum og heilræði fylgir með: „Maður á alltaf að vera djarfur innan um fólk og aldrei að biðjast afsökunar á sjálfum sér. Guð skapaði okkur og við eigum að vera stolt af að vera við sjálf“. Þegar viðstaddir hafa raulað sálminn Eigi stjörnum ofar kynn- ir sr. Bjarni altarisgönguna sem kristnir menn hafa iðkað um aldir og endurtekin er hvern einasta sunnudag um allan heim. Er hann hefur útdeilt sakramentinu þetta kvöld undir þýðum tónum orgels- ins lýkur samverunni með bæn. ■ STUNDIN VAR LJÚF Fremst er fermingardrengurinn Ólafur Birgir Davíðsson ásamt móður sinni Svölu Ísfeld Ólafsdóttur. Ó ÞÁ NÁÐ AÐ EIGA JESÚ Feðgarnir Magnús Már Pétursson og Pétur Bjarni Magnússon á fremsta bekk. „Legg þú á djúpið þú sem enn ert ungur og æðrast ei þótt straumur lífs sé þungur en set þér snemma háleitt mark og mið,“ orti Matthías. Orð hans eiga vel við þegar ungmenni um allt land búa sig undir fermingu og standa þar með á vissum vegamótum bernsku- og unglingsára. Fermingin er falleg athöfn og dagurinn er einstakur í lífi hvers og eins. Ættingjar og vinir koma saman, fagna og gefa gjafir af góðum hug. Þetta er dagur fermingarbarnsins. Veislan var baraskemmtileg stund með nánustu fjölskyld- unni minni og lítið meira um það að segja. Hún var haldin í sal og það var kalt hlaðborð. Guðrún Edda Finnbogadóttir Fermingar-veislan mín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.