Fréttablaðið - 05.03.2004, Síða 4
4 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
Ertu hlynnt(ur) eflingu sérsveitar
lögreglu?
Spurning dagsins í dag:
Á að breyta hluta námslána í beinan
styrk?
Niðurstöður gærdagsins
á frett.is
49,6%
50,4%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Skjólstæðingur heimahjúkrunar slasaðist:
Þrjú korter að komast aftur í rúmið
HEIMAHJÚKRUN „Það tók mig þrjú
korter að komast aftur upp í rúm-
ið,“ sagði Brynhildur Björnsson,
aldraður sjúklingur sem varð fyrir
slysi heima hjá sér í vikunni, þar
sem hún hafði ekki náð í kvöld-
vaktarsíma heimahjúkrunar.
Brynhildur sem er afar slæm af
astma býr ein. Hún er algjörlega
rúmliggjandi og treystir á félags-
þjónustuna og heimahjúkrunina.
Á þriðjudagskvöldið síðastliðið
þurfti hún á salerni. Hún hafði sam-
band við síma kvöldvaktar heima-
hjúkrunarinnar en þar svaraði ekki.
Hún tók þá til bragðs að reyna að
komast ein á baðherbergið.
„Þá datt ég á gólfið,“ sagði hún.
„Ég meiddi mig í bakinu. Ég missti
andann, en var svo heppin að glugg-
inn var opinn svo svalt var í her-
berginu. Það eina sem ég get gert til
að ná andanum er að kæla mig nið-
ur. En mér tókst að slappa af og
vera róleg. Þannig tókst mér að
komast aftur upp í rúmið.“
Brynhildur ritaði landlækni bréf
vegna óvissu í yfirstandandi hjúkr-
unardeilu. Hún sagði að svar hans
hefði engu skilað.
„Ég vil ekki fara á spítala þótt
ástandið sé svona,“ sagði Brynhild-
ur. „Ég verð að hafa ró og næði. Ég
verð líka að hafa svalt inni hjá mér.
Það auðveldar mér að anda. Ég þarf
einnig að hafa afþreyinguna mína,
tölvuna og sjónvarpið, ella er ég
búin að vera.
Ég vil liggja banaleguna heima
hjá mér. Ég myndi fara strax ef ég
þyrfti að fara á spítala.“ ■
HEIMAHJÚKRUN „Ég reyndi að hring-
ja í þrjá starfsmenn, einn var með
lokaðan síma, sími annars varð
rafmagnslaus, en þann þriðja náði
ég í,“ sagði Kristín Á. Guðmunds-
dóttir formaður Sjúkraliðafélags
Íslands, um afskipti sín af félags-
mönnum sem vinna enn við heima-
hjúkrun.
Deilan hefur farið síharðnandi
eftir því sem dagarnir hafa liðið og
jafnframt náð til fleiri, nú síðast
starfandi félagsmanna Sjúkraliða-
félagsins og Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Skemmst er
að minnast þess þegar 14 hjúkrun-
arfræðingar hótuðu að kæra
starfsfélaga sína fyrir siðanefnd
félagsins ef þeir seldu Heilsugæsl-
unni vinnu sína.
„Með þessum símtölum var ég
að athuga álagið á fólki,“ sagði
Kristín, sem kvaðst jafnframt hafa
bent á að þeim væri skylt að vinna
20 prósent yfirvinnu væri eftir því
óskað, en ekki meir. Vinnutíma-
tilskipun Evrópusambandsins
kvæði á um 11 stunda hvíldartíma.
Kristín kvaðst hafa viljað kynna
sér hvort verið væri að láta fólkið
vinna langt umfram þetta.
Sá starfsmaður heimahjúkrun-
ar sem Kristín náði í staðfesti að
símtalið hefði átt sér stað. Starfs-
maðurinn sagði að formaður
Sjúkraliðafélagsins hefði mælst
eindregið til þess að starfsmenn í
sínu félagi ynnu ekki meiri yfir-
vinnu heldur en þeim bæri, í yfir-
standandi deilu. Sér hefði fundist
þessi afskipti óþægileg og óviðeig-
andi.
„Við höfum nú samt unnið á
kvöldin líka, þótt við höfum verið á
dagvöktum,“ sagði starfsmaður-
inn. „Það er mikið álag, en við
reynum auðvitað að gera okkar
besta fyrir þá sem líða fyrir deil-
una, það er skjólstæðingana.“
Forstjóri Heilsugæslunnar boð-
aði starfsfólk í heimahjúkrun á
sinn fund í gær. Erindið var að
ræða við fólkið og „þakka því sitt
mikla og góða starf,“ eins og Guð-
mundur Einarsson, forstjóri
Heilsugæslunnar, orðaði það eftir
fundinn. Hann sagðist þá ekki sjá
neitt sem gæfi til kynna breytta
stöðu í deilunni.
Forsvarsmenn viðkomandi
stéttarfélaga ræddust einnig við
síðdegis í gær. Að honum loknum
báðu þeir um fund með Heilsu-
gæslunni. Hann var ákveðinn
klukkan tíu í dag.
jss@frettabladid.is
Textun sjónvarpsefnis:
Brýnt
réttindamál
ALÞINGI Sigurlín Margrét Sigurð-
ardóttir, varaþingmaður Frjáls-
lynda flokksins, mælti fyrir frum-
varpi um textun sjónvarpsefnis á
Alþingi í gær. Frumvarpinu er
ætlað að tryggja heyrnarskertum
og heyrnarlausum þau mannrétt-
indi að geta notið sjónvarpsefnis,
til jafns við þá sem heyra. Sigur-
lín sagði þetta brýnt réttindamál
og eðlilega kröfu.
Björgvin G. Sigurðsson, Sam-
fylkingunni, tók í sama streng og
sagði umræðuna tímabæra og
benti á að í nágrannalöndunum
flokkuðust þessi mál undir sjálf-
sögð mannréttindi. ■
DENKTASH
Rauf Denktash (til hægri) ræðir við banda-
rískan sendifulltrúa í borginni Nicosia á
Kýpur.
Sameiningarviðræður á
Kýpur:
Engin lausn
fyrir 1. maí
KÝPUR Rauf Denktash, leiðtogi
tyrkneska hluta Kýpur, hefur ekki
trú á því að samningar náist um
sameiningu Kýpur fyrir 1. maí
þegar eyjan gengur í Evrópu-
sambandið.
Denktash segist vera langt því
frá að vera ánægður með samn-
ingaviðræðurnar sem nú standa
yfir við leiðtoga gríska hluta eyj-
arinnar og hefur hótað að draga
sig út úr viðræðunum ef kröfur
hans verði ekki uppfylltar. „Það
verður ekki hægt að ljúka þeirri
vinnu sem eftir er fyrir 1. maí,“
segir Denktash.
Kýpur hefur verið í tvískipt
síðan 1974. Leiðtogar tyrkneska
og gríska hluta eyjarinnar hafa
heitið því að komast að samkomu-
lagi um sameiningu fyrir 21. apríl
og boða til þjóðaratkvæðagreiðslu
um samninginn. ■
ATVINNULEYSI EYKST Í ÞÝSKA-
LANDI Atvinnuleysi í Þýskalandi
jókst úr ellefu prósentum í janú-
ar í 11,1% í febrúar. Rúmlega 4,6
milljónir Þjóðverja eru á atvinnu-
leysisskrá. Hlutfall atvinnulausra
í gamla Austur-Þýskalandi er
mun hærra en í vesturhlutanum,
eða 19,4% á móti 8,9%.
P P F O R L A G www.ppforlag.is
Sími: 5687054
Fríða Sophia verður í
Pennanum í Kringlunni í dag
kl. 16:30 - 18:00.
Þar gefur hún góð ráð og
býður upp á brauð og annað
góðgæti úr bókunum.
HAÍTÍ, AP Lífið er smám saman að
komast í samt lag víða á Haítí eft-
ir óöldina sem fylgdi uppreisninni
gegn Jean-Bertrand Aristide sem
hrökklaðist úr embætti um síð-
ustu helgi. Kaupmenn tóku til við
að hreinsa verslanir sínar og
koma þeim í gang. Nokkrar bens-
ínstöðvar opnuðu á nýjan leik og
almenningssamgöngur komust í
gang.
Bandarískir hermenn ruddu
burt vegatálmum sem fylgismenn
Aristide höfðu komið upp og tóku
sér varðstöðu á veginum milli höf-
uðborgarinnar og flugvallarins.
Leiðtogar Karíbahafsríkja
kröfðust alþjóðlegrar rannsóknar
á brottför Aristide. Hann hefur
sagt að Bandaríkjamenn hafi
komið vopnaðir í forsetahöllina og
neytt sig til brottfarar. Því hefur
Bandaríkjastjórn vísað alfarið á
bug. Málið hefur hins vegar vakið
reiði meðal stjórnmálamanna og
neita Karíbahafsríki að senda
friðargæslulið á staðinn. Embætt-
ismenn í Mið-Afríkulýðveldinu
segja Aristide fá varanlegt hæli
þar ef hann biður um það.
Guy Philippe, einn leiðtoga
uppreisnarmanna, hét því eftir
fund með sendiherra Bandaríkj-
anna að uppreisnarmenn myndu
leggja niður vopn. Margir íbúar
treysta því þó varlega fyrr en þeir
sjá það gerast.
Eitt af baráttumálum uppreisn-
armanna var að endurreisa herinn
sem Aristide lagði niður árið 1995.
Herinn stóð fyrir 32 valdaránum á
tæpum 200 árum. ■
ENN RÓSTUSAMT Í HÖFUÐBORGINNI
Lögreglumaður lítur eftir óróaseggjum en
við hlið hans liggur fangi. Í það minnsta
einn stuðningsmaður Aristide var myrtur
með óhugnanlegum hætti í gær.
Daglegt líf smám saman að færast í samt horf:
Heldur að róast á Haítí
AP
M
YN
D
FÓRNARLAMB
Brynhildur Björnsson er eitt af fjölmörgum
fórnarlömbum harðvítugrar deilu Heilsu-
gæslunnar og starfsfólks í heimahjúkrun.
Hún er sú fyrsta sem slasast svo vitað sé
af því að hún náði ekki sambandi við
kvöldvaktina, að því er hún segir.
FB
-M
YN
D
■ Evrópa
Formaður atast
í félagsmönnum
Heimahjúkrunardeilan harðnar stöðugt með hverjum deginum sem líður. Formaður Sjúkraliða-
félagsins hringdi í starfsmenn og áminnti þá um að vinna ekki meiri yfirvinnu en þeim ber.
Hjúkrunarfæðingar hafa áður hótað kærum. Samningafundur í dag.
SAMSTAÐA
Sjúkraliðar, sem sagt hafa upp í heimahjúkrun, komu saman í félagshúsnæði sínu í gær til að ræða saman og fara yfir stöðuna.
Boðað hefur verið til sáttafundar í deilunni nú fyrir hádegi.