Fréttablaðið - 05.03.2004, Síða 16
16 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
■ Norðulönd
Íbúar sjö ríkja telja innrás í Írak ekki sporna gegn hryðjuverkum:
Stríð jók hættu á hryðjuverkum
KÖNNUN, AP Innrásin í Írak jók
hættuna á hryðjuverkaárásum á
heimsvísu segir meirihluti íbúa í
Mexíkó, Kanada og fimm Evrópu-
ríkjum samkvæmt nýrri skoðana-
könnun AP-fréttastofunnar.
Evrópuríkin eru Bretland, Frakk-
land, Ítalía, Spánn og Þýskaland.
Innan við einn af hverjum tíu í
hverju Evrópuríkjanna fyrir sig
telur innrásina hafa dregið úr
hættu á hryðjuverkum.
Bandaríkjamenn skiptast í
tvennt, þeir sem telja innrásina
hafa aukið hættu á hryðjuverkum
eru álíka margir og þeir sem telja
hana hafa dregið úr hættunni.
Spánverjar hafa allra þjóða
mestar áhyggjur af
hryðjuverkaárásum, 85%
Spánverja lýsa áhyggjum
vegna yfirvofandi hryðju-
verkaárása. Þar verður þó
að benda á að aðskilnaðar-
hreyfing Baska hefur beitt
hryðjuverkum í baráttu
sinni. Um sjö af hverjum
tíu Þjóðverjum og Ítölum
lýstu sömu áhyggjum.
Meirihluti aðspurðra í
öllum löndum nema
Bandaríkjunum sagði
áhrif George W. Bush Bandaríkja-
forseta á heimsmálin neikvæð.
57% Bandaríkjamanna töldu
áhrifin jákvæð. ■
Þremenningarnir, Grétar Sig-urðarson, Jónas Ingi Ragnars-
son og Tomas Malakauskas voru
fyrst handteknir föstudaginn 20.
febrúar og voru úrskurðaðir í
ellefu daga gæsluvarðhald daginn
eftir. Í framhaldi af handtökunum
var leitað í fimm bílum sem þeir
höfðu og á heimilum þeirra. Sím-
töl þremenninganna voru athuguð
með útprentunum frá símafyrir-
tækjum og símar þeirra voru
skoðaðir. Þá voru tekin lífsýni í
bílunum og á fleiri stöðum. Blóð-
blettir fundust í BMW-bifreið
Grétars og voru lífsýni tekin úr
þeim. Við nánari rannsókn á blett-
unum reyndist blóðið vera úr hin-
um látna, Vaidas Jucevicius og
Grétari. Malakauskas hafði bílinn
til umráða.
Hnífurinn í höfninni
Víst er talið að lík Juceviciusar
hafi verið sett í höfnina í Nes-
kaupstað 8. eða 9. febrúar. Á þeim
tíma var Grétar staddur í Nes-
kaupstað hjá móður sinni. Mala-
kauskas og Jónas gistu aðfaranótt
mánudagsins 9. febrúar hjá fjöl-
skyldu Grétars. Þeir komu frá
Reykjavík á leigujeppa með við-
dvöl á Djúpavogi í tvær nætur
vegna veðurs.
Hnífur fannst í sömu höfn, og
líkinu hafði verið komið fyrir í, í
byrjun þessarar viku. Stungusár
voru á líki Juceviciusar, tvö á
brjóstkassa, eitt á kviðarholi og
eitt á hálsi. Ekki hefur verið rann-
sakað nákvæmlega hvort hnífur-
inn sem fannst í höfninni var not-
aður til að stinga Jucevicius. Að
sögn lögreglu er þó nokkuð líklegt
að hnífurinn hafi verið notaður.
Fljótt á litið passar stærð hans við
einhverja áverka líksins.
Einn hefur játað
Fyrir liggur að einn þremenn-
inganna sem er í haldi hefur játað
aðild að málinu, sem er sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins,
Grétar Sigurðarson.
Heimildir herma að sam-
kvæmt frásögn Grétars hafi
þeim öllum verið kunnugt um að
Vaidas Jucevicius hefði fíkniefni
innvortis þegar hann kom til Ís-
lands 2. febrúar. Jucevicius varð
veikur 3. febrúar, daginn eftir
komuna til landsins. Þremenn-
ingarnir töldu allir að veikindin
stöfuðu af stíflu í meltingarfær-
um. Þeir útveguðu honum deyf-
andi lyf til að lina kvalirnar og
freista þess að losa um stífluna.
Þremenningarnir skiptust á að
vera hjá honum og hugsa um
hann. Hins vegar leituðu þeir sér
ekki upplýsinga um lyfjagjöf hjá
fagmanni né heldur hvernig best
væri að annast Jucevicius. Grét-
ar segir Jucevicius hafa átt pant-
að flugfar til Kaupmannahafnar
föstudaginn 6. febrúar, en þaðan
ætlaði hann heim til Litháen.
Skömmu áður en til stóð að aka
Juceviciusi til Keflavíkur í flug
var hann orðinn mjög veikur.
Ljóst er að Jónas Ingi tók að sér
að seinka fluginu um tvo daga og
síðar var fluginu seinkað um
ótiltekinn tíma. Jucevicius lést
að morgni 6. febrúar, að sögn
Grétars.
Enn grunaðir um manndráp
Alvarlegasta sökin sem borin
er á hina grunuðu er brot gegn
211. grein hegningarlaga. Sú
grein á við þegar um er að ræða
grun um morð að yfirlögðu ráði
og varðar fangelsi í hið minnsta
fimm ár, en getur varðað lífstíð-
ardómi. Einnig er gert ráð fyrir
að sakborningarnir gætu hafa
gerst brotlegir við 220. grein eða
221. grein sömu laga. Sam-
kvæmt fyrri greininni segir að
hver sá sem kemur manni í það
ástand að hann sé bjargarlaus,
eða yfirgefur mann, sem hann
átti að sjá um, í slíku ástandi,
skal sæta fangelsi allt að átta
árum. Samkvæmt 221. grein
geta menn hlotið allt að tveggja
ára fangelsi fyrir að gera ekki
sitt ýtrasta til þess að bjarga
öðrum manni frá dauða.
Þá eru þremenningarnir sak-
aðir um brot á 173. grein sem
kveður á um að menn geti hlotið
allt að tólf ára fangelsisvist fyr-
ir viðskipti með ávana- og fíkni-
efni.
Síðasta sakarefnið er brot á
124. grein hegningarlaga um
röskun á grafhelgi eða ósæmi-
lega meðferð á líki. Það ákvæði
varðar sekt eða fangelsi allt að
hálfu ári.
Fyrst þegar farið var fram á
gæsluvarðhald yfir þremenning-
unum þóttu ætluð brot mann-
anna varða við 124. grein, 173.
grein, 211. grein og/eða 221.
grein almennra hegningarlaga. Í
kröfu um framlengingu á gæslu-
varðhaldi bættist 220. grein lag-
anna við.
Sumarið 2003:
Það heitasta
í hálfa öld
VÍSINDI Sumarið 2003 var að líkind-
um það heitasta í Evrópu í 500 ár,
ef tekið er mið af þeim upplýsing-
um sem liggja fyrir um meðalhita
frá árinu 1500. Yfir 19.000 dauðs-
föll í Evrópu síðastliðið sumar voru
rakin til hitabylgjunnar.
„Þegar við lítum á Evrópu sem
heild þá var þetta langheitasta
sumarið,“ segir Jurg Luterbacher,
loftslagsfræðingur við Háskólann í
Bern í Sviss. Luterbacher segir að
veturnir hafi verið óvenjuhlýir í
Evrópu undanfarna þrjá áratugi. Í
rannsókn Luterbachers var ekki
leitast við að kanna áhrif hækkandi
meðalhita á náttúru jarðar. ■
Mörkinni 6. Sími 588 5518. • Opið laugardaga frá 10 til 16.
Góðar yfirhafnir
Enn meiri lækkun
Síðustu dagar
Útsala!
HÁRSNYRTISTOFA
Höfðabakka 1. S. 587-7900
Gerður er komin aftur
Margt bendir til sektar
þremenninganna
Rannsókn lögreglu er vel á veg komin og mörg gögn komin fram sem
styrkja grun um sekt þremenninganna. Allir þrír hafa verið úrskurðaðir
í áframhaldandi gæsluvarðhald.
Fréttaskýring
HJÖRDÍS SIGURJÓNSDÓTTIR
■ skrifar um líkfundinn í Neskaupstað.
LEITAÐ AÐ SÖNNUNARGÖGNUM
Kafarar frá Landhelgisgæslunni leituðu að egg-
vopni á mjög afmörkuðu svæði í höfn Neskaup-
staðar. Hnífur fannst í höfninni sem hugsanlega
var notaður til að veita þeim látna áverka.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/ELM
A
Þingkosningar:
Ráðamaður
á línunni
NÝJA-DELÍ, AP Mörgum Indverjanum
hefur brugðið undanfarna daga
þegar hann hefur svarað símanum
og komist að því að Atal Vajpayee
f o r s æ t i s r á ð -
herra er á hin-
um enda lín-
unnar. Reyndar
er það ekki for-
sætisráðherr-
ann sjálfur
heldur upptaka
með honum
sem flokkur
hans hefur not-
að í kosninga-
baráttu sinni.
„Mér var
brugðið,“ sagði Vidya Devi, um sím-
talið sem hún fékk frá forsætisráð-
herranum. Hún áttaði sig þó fljótt á
því hvernig var í pottinn búið þegar
henni gafst ekki færi á að segja
neitt sjálf áður en Vajpayee þakkaði
fyrir sig og samtalinu lauk. ■
SVÍAR BANNA RUSLPÓST Svíar
hafa tekið upp lög Evrópusam-
bandsins sem banna ruslpóst í
tölvupósti. Sænska þingið sam-
þykkti lögin með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða eftir að
Evrópusambandið hafði sent út
viðvörun til Svíþjóðar og átta
annarra ríkja sem höfðu ekki tek-
ið upp bannið.
MINNA ATVINNULEYSI Í NOREGI
Atvinnuleysi í Noregi var aðeins
4,1% í febrúar sem er 0,2 prós-
enta lækkun frá því í janúar. Í
febrúar 2003 voru 3,9% atvinnu-
bærra manna í Noregi án vinnu.
Atvinnuleysið er mest hjá aldurs-
hópnum 20–24 ára. 9,5% karl-
manna á þessum aldri eru án
vinnu en 5,1% kvenna.
KOSNINGABAR-
ÁTTAN UNDIRBÚIN
Verkamenn setja upp
kosningaauglýsingu
með Vajpayee.
PARÍSARTÍSKAN
Tískuhúsin keppast við að kynna hönnun
sína fyrir næsta haust og vetur. Þessa
skrautlega klæddu fyrirsætu mátti sjá
þegar Stella Cadente kynnti sínar
hugmyndir í París í gær.
VIÐBÚNAÐURINN KVIKMYNDAÐUR
Bandarískir og filippseyskir hermenn æfa
nú aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum.
Fjölmiðlamenn sýndu þeim mikinn áhuga.