Fréttablaðið - 05.03.2004, Side 17
Litháen
Nokkur fjöldi fólks í Litháen
hefur verið yfirheyrður og liggja
frekari yfirheyrslur fyrir. Lög-
reglan freistar þess að finna sam-
verkamenn þar í landi en bæði
Jucevicius og Malakauskas eru
frá um 35 þúsund manna bæ sem
heitir Telsiai. Tenginga á milli Lit-
háanna tveggja er leitað og sömu-
leiðis tengsla sem Íslendingarnir
tveir kunna að hafa í Litháen. At-
huga þarf hverja þremenningarn-
ir höfðu samband við frá því að
líkið fannst þar til þeir voru hand-
teknir.
Grunaðir á frumstigi rann-
sóknarinnar
Heimildir Fréttablaðsins
herma að skömmu eftir að líkið
fannst í höfninni hafi lögregla at-
hugað ferðir Grétars. Hann kom
til Neskaupstaðar þar sem hann
sagðist hafa fengið raflost þegar
hann var að vinna í íbúð sinni og
kosið því að fara til móður sinnar
til að jafna sig um tíma. Skýring-
arnar sem hann gaf á heimsókn-
inni þóttu undarlegar. Við nánari
athugun kom í ljós að tveir ungir
menn á Pajero-jeppa hefðu heim-
sótt Grétar. Þetta voru þeir Jónas
Ingi og Tomas. Athygli vakti að
þeir voru á dýrum bílaleigubíl
sem kostar allt að átján þúsund
krónum á sólarhring.
Fréttablaðið greindi frá því
fáum dögum eftir líkfundinn að
þrír menn væru grunaðir um að
tengjast málinu og að einn þeirra
væri frá Neskaupstað. Sam-
kvæmt þeim heimildum beindist
grunur lögreglunnar fyrir austan
að þremenningunum, sem nú eru í
gæsluvarðahaldi, strax á frum-
stigi rannsóknarinnar. ■
17FÖSTUDAGUR 5. mars 2004
SAMAN Í BÍÓ
Þegar kjósendur í Kaliforníu greiddu at-
kvæði um hvort skipta ætti um ríkisstjóra
stóð baráttan milli þessara manna, Gray
Davis sem var ríkisstjóri og Arnold
Schwarzenegger sem varð ríkisstjóri. Kosn-
ingabaráttan var hörð og sú dýrasta sem
hefur verið háð í einu ríki Bandaríkjanna.
Hún virðist þó ekki hafa gert keppinautana
að óvinum því það fór vel á með þeim á
frumsýningu myndarinnar Spinning Boris.
Sendifulltrúi Sameinuðu
þjóðanna:
Hitti Suu Kyi
MJANMAR, AP Sendifulltrúi Samein-
uðu þjóðanna er kominn til Mjan-
mar til að reyna að koma á sáttum
milli herforingjastjórnarinnar og
lýðræðissinna. Razali Ismail átti
fund með forsætisætisráðherra
landsins í gær en óstaðfestar fregn-
ir herma að hann hafi einnig hitt
Aung San Suu Kyi, leiðtoga
stjórnarandstöðunnar.
Ismail er skipaður af Kofi Annan,
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, og er hlutverk hans að miðla
málum í deilu herforingjastjórnar-
innar og lýðræðissinna. Hann hefur
tvisvar hitt Suu Kyi síðan hún var
tekin höndum af herforingjastjórn-
inni 30.maí á síðasta ári. ■
EVRÓPUMÁL Bryndís Hlöðversdótt-
ir, Samfylkingunni, segir að Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra verði að svara þeirri spurn-
ingu hvort ekki sé eðlilegt að stíga
næsta skref í Evrópumálunum og
sækja um aðild að ESB, nú þegar
fyrir liggi að ekki verði hægt að
tryggja uppfærslu EES-samnings-
ins. Halldór hafi margsinnis lýst
því yfir að hann vilji láta reyna til
þrautar á uppfærsluna.
„Samfylkingin telur ekkert að
vanbúnaði að sækja um ESB-að-
ild, en hefur sagt að það væri
mjög gott að reyna þá leið að upp-
færa EES-samninginn. Sú leið
virðist út af borðinu núna og þá er
bara að vinda sér í næsta skref.
Það væri rökrétt framhald utan-
ríkisráðherra, sem mun brátt
leiða ríkisstjórnina, að gera það,“
segir Bryndís. Hún bætir því við
að þróunin í Evrópu hafi verið
með þeim hætti að eðlilegt sé að
Íslendingar vilji koma þar að.
„Það hefur hins vegar gengið
illa og því hefur krafa verið gerð
um að EES-samningurinn verði
uppfærður. Þegar ljóst er að það
tekst ekki hljótum við að stíga
næsta skref og sækja um ESB-að-
ild og skilgreina samningsmark-
miðin,“ segir Bryndís. ■
Vaidas Jucevicius, Lithái
Fæddur 20. nóv-
ember árið 1974
Fannst látinn í
höfninni við neta-
gerðarbryggjuna í
Neskaupstað ell-
efta febrúar síð-
astliðinn.
Jónas Ingi Ragnarsson, Íslendingur
Fæddur 11. janú-
ar árið 1972
Jónas segist ekki
þekkja þann
látna. Kveðst hafa
verið í sambandi
við Litháa að
nafni Vaidas
vegna sumarhúsainnflutnings.
Seinkaði brottför hins látna.
Grétar Sigurðarson, Íslendingur
Fæddur 2. ágúst
árið 1976
Hann fór í líf-
varðaskóla í
Englandi. Grétar
hefur játað aðild
að málinu sam-
kvæmt heimild-
um blaðsins. Blóð úr honum og hinum
látna fannst í bifreið í hans eigu.
Tomas Malakauskas, Lithái
Fæddur 29. sept-
ember árið 1980
Tomas hefur búið
á Íslandi í nokkur
ár. Hann hafði bíl
Grétars, sem
blóðblettirnir
fundust í, til um-
ráða. Er frá sama bæ og hinn látni.
BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR
Þingmaður Samfylkingarinnar segir það
rökrétt framhald hjá utanríkisráðherra að
sækja um aðild að ESB, nú þegar fyrir liggi
að ekki takist að uppfæra EES-samninginn.
Bryndís Hlöðversdóttir, Samfylkingunni:
Halldór hugi að ESB-aðild