Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 20

Fréttablaðið - 05.03.2004, Page 20
Fimmtudagskvöldið 26. febrúarfóru fram tónleikar með rokk- bandinu Mínus í sal Verkmennta- skólans á Akureyri. Þeir tónleikar tókust einstaklega vel og erum við undirritaðir ásamt öðrum nemendafélagsfólki afskaplega ánægð með útkomuna. Mætingin var með besta móti og hljómsveit- in til fyrirmyndar, sannir atvinnu- menn. Vegna mikillar andúðar sem hljómsveitin hefur fengið í sinn garð á undanförnum vikum, þá sérstaklega frá Samfés, samtök- um félagsmiðstöðva á Íslandi, þá sáum við okkur knúna til að til að segja frá okkar reynslu af þessum drengjum. Eftir að hafa eytt einni dagsstund með þeim Mínus- drengjum hér á Akureyri þá vilj- um við fordæma alla þá vitleysu sem þetta svokallaða fullorðna fólk, sem eru forsvarsmenn Sam- fés, hafa látið dynja á þeim Mín- us-drengjum. Við erum sannfærð- ir um að samtökin gerðu mikil mistök þegar þau höfnuðu því að hafa Mínus á hinu árlega Samfés- balli sem fram fór í Reykjavík 27. febrúar. Hljómsveitin mun í byrjun apríl fara í víking erlendis og erum við sannfærðir um að þeir muni ekki einungis standa sig vel á erlendri grund heldur munu þeir „meika“ það eins og maður orðar það. Að lokum viljum við koma því á framfæri til strákanna í Mínus að það var sannur heiður að fá að eiga með þeim dagsstund hér á Akureyri og vonum við að þeir sjái sér fært að koma til okkar sem allra fyrst aftur. Þeir eru alltaf velkomnir hingað til okkar í Verkmenntaskólann á Akureyri því hér eiga þeir svo sannarlega góða vini. ■ Svar vegna greinar um öryggis-hlutverk Ríkisútvarpsins, þar sem Guðmundur Andri Thorsson spyr sig hvort hann eigi heima í Hlælandi í Fréttablaðinu 1. mars 2004. Í fyrstu skal geta þess að það er alltaf betra að fjalla um stað- reyndir máls, þegar menn tala um liðna hluti, heldur en að kasta ein- hverju fram í skáldsagnarstíl. Í skáldsögum er í lagi að fara frjálslega með atburði, þegar menn þurfa ekki að standa skil á því sem haldið er fram. Í grein Guðmundar segir hann: „Íþrótta- áhugi yfirmanna Sjónvarpsins jaðrar við að vera sjúklegur; meinloka. Frægasta dæmið sem ævinlega mun fylgja núverandi valdhöfum stofnunarinnar er vitaskuld þegar þeir tímdu ekki að rjúfa útsendingu á fótboltaleik vegna jarðskjálftanna miklu á Suðurlandi og kipptu þannig fót- unum undan helstu röksemdinni fyrir sjálfri tilvist stofnunarinn- ar: mátu meir gildi íþróttavið- burðarins en sjálft öryggis- og sameiningarhlutverk ríkissjón- varpsins“. Frjálslega farið með stað- reyndir Þarna er frjálslega farið með staðreyndir málsins. Klukkan 15.40 þann 17. júní 2000 varð stór jarðskjálfti, sem átti upptök sín í Holtunum. Skjálfti þessi fannst víða og þar á meðal í Reykjavík. Fyrstu upplýsingar frá jarð- skjálftadeild Veðurstofu Íslands um skjálftann bentu ekki til að um Suðurlandsskjálfta væri að ræða, enda töldu jarðskjálftafræðingar að hann hefði verði á bilinu 5,4–6 á Richter. Fréttastofa Útvarps rauf útsendingu Rásar 2 kl. 15.49 vegna málsins til að koma upplýs- ingum á framfæri við almenning og frá klukkan 16 voru Rás 1 og Rás 2 samtengdar þegar verið var að segja frá atburðinum. Klukkan 16.33 tæpri klukkustund eftir skjálftann var útsending rofin frá EM í knattspyrnu í Sjónvarpi og viðtal sem tekið var upp á Veður- stofu Íslands við Pál Halldórsson sent út. Klukkan 16.52 kom íþróttastjóri Sjónvarps fram í leikhléi og tilkynnti um harðan jarðskjálfta á Suðurlandi og almenningi bent á að stilla á Rás 2 í útvarpi til að fá frekari fréttir af atburðum. Aftur var útsending rofin af fréttastofu Sjónvarps klukkan 16.55 og fréttamaður kynnti stöðu mála eins og best var vitað á þeim tíma og almenningi bent á að stilla á langbylgju Ríkis- útvarpsins. 17.36 birtist fljótandi texti á skjánum, þar sem tilkynnt var að frekari upplýsingar af jarðskjálftanum yrði kl. 18.30. Fréttir af atburðinum aftur sagð- ar kl. 17.50 í Sjónvarpi. 18.31 voru fréttir sagðar af atburðinum í Sjónvarpi. 20.45 var aðalfrétta- tími Sjónvarps sendur út. Hvað öryggishlutverk Ríkisút- varpsins varðar þegar vá ber að garði, þá er það að miðla upplýs- ingum til almennings með frétta- flutningi frá viðkomandi ham- farasvæði og ekki síður að koma upplýsingum á framfæri til al- mennings fyrir almannavarna- deild ríkislögreglustjóra (áður Al- mannavarna ríkisins). Öryggishlutverk RÚV Þær leiðir sem bæði Ríkis- útvarpið og almannavarnir horfa hvað helst til þegar slíkum upp- lýsingum þarf að koma á fram- færi eru langbylgjusendingar Ríkisútvarpins og er RÚV með tvær slíkar sendistöðvar, aðra á Gufuskálum og hina við Egils- staði. FM-sendingar RÚV, sem Rás 2 sendir út á alla jafnan, eru varaleiðir í dreifikerfinu hvað öryggisjónarmið varðar og eins dreifikerfi Sjónvarps. Það skal tekið fram að þegar vá ber að höndum eru Rás 1 og Rás 2 sam- tengdar og allt dreifikerfið notað. Ekkert er hafið yfir gagnrýni hjá fyrirtæki eins og Ríkisútvarp- inu, enda fóru starfsmenn yfir öll öryggismál, eftir jarðskjálftann 17. júní, bæði innri og ytri örygg- ismál hvað varðar starfsemina sjálfa, dreifinguna og ekki síður öryggi þeirra aðila sem við kaup- um þjónustu af. Var þetta gert til að Ríkisútvarpið yrði hér eftir sem hingað til fremst á sviði ljós- vakamiðla í fréttaflutningi og dreifingu þess til almennings á ögurstundu. ■ Umræðan HAUKUR LOGI JÓHANNSSON OG BALDVIN GUÐMUNDSSON ■ í Þórdunu, nemendaráði Verk- menntaskólans á Akureyri, skrifa um rokkhljómsveitina Mínus. 20 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR Ásamt nokkrum félögum mín-um í Samfylkingunni hef ég lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um Lánasjóð íslenskra náms- manna. Meginbreytingar á lögum þessa mikilvæga jöfnunarsjóðs eru afnám krafna um ábyrgðar- menn, lækkun endurgreiðslubyrð- arinnar og að hluti lána breytist í styrk hafi námsmaður lokið námi á tilskildum tíma. Afnám ábyrgðarmanna- kröfunar Lánasjóðurinn er brjóstvörn jafnréttis til náms og gegnir miklu hlutverki sem slíkur. En krafan um ábyrgðarmenn á lánin vinnur gegn þessu markmiði og mismunar verulega enda ekki all- ir sem hafa aðgang að efnuðum ábyrgðarmönnum. Þá er það rétt- lætismál að lækka endurgreiðslu- byrðina sem gerir ungu barna- fólki nýkomnu úr löngu námi mjög erfitt fyrir við að framfleyta fjölskyldum sínum. Vitað er um mörg dæmi þess að ungt og efnilegt fólk hefur orð- ið að hverfa frá áætlunum um frekara nám vegna þess að það hefur ekki getað framvísað ábyrgðarmönnum sem lánasjóð- urinn tekur gilda. Hver námsmað- ur á sjálfur að vera ábyrgur fyrir endurgreiðslu síns námsláns og á að undirrita skuldabréf þess efn- is. Stjórn sjóðsins á að ákveða hvaða skilyrðum lántakandi þarf að fullnægja. Það er mun sann- gjarnara og réttlátara en núver- andi fyrirkomulag sem vinnur þvert gegn grundvallarmarkmiði sjóðsins, sem er að tryggja jafn- rétti til náms. Lán verði að hluta styrkur og léttari endurgreiðsla Aðrar breytingar sem við leggjum til eru þær helstar að þegar námsmaður hefur lokið lokaprófum á tilskildum tíma eða framvísað vottorði um lögmætar tafir á námi breytist 30% af upp- hæðinni sem hann hefur tekið að láni í óendurkræfan styrk. Styrk- urinn yrði hvorki tekjutengdur né skattlagður. Breytingar þær sem hér eru lagðar til taka mið af reglum ann- ars staðar á Norðurlöndum. Í Sví- þjóð eru 34,5% af þeirri upphæð sem námsmaður fær til ráðstöf- unar á námstíma hreinn styrkur sé miðað við fullt nám en það eru um það bil 7.200 sænskar krónur. Annars staðar á Norðurlöndum eru námsstyrkir ekki bundnir við að námsmaður ljúki formlegu námi en hér er lagt til að það verði skilyrði fyrir styrkveitingu. Þetta fyrirkomulag hvetur námsmenn til að ljúka námi fyrr en síðar og við það sparast miklir fjármunir hjá Háskólanum og er miklu vænlegri og réttlátari hvati en upptaka frekari skólagjalda. Einnig er lagt til að endur- greiðsluhlutfalli námslána verði breytt úr 4,75% í 3,75% í því skyni að greiðslubyrði afborgana verði viðráðanlegri. Þá er nauðsynlegt að hluti af endurgreiðslum náms- lána verði frádráttarbærar frá skatti og munu þingmenn Sam- fylkingarinnar flytja um það sér- stakt mál. ■ Sálfræði- meðferð við þunglyndi Sálfræðimeðferð við þunglyndihefur reynst árangursrík. Sál- fræðiþjónusta er hins vegar ekki niðurgreidd. Þunglyndi og meðferð við þung- lyndi hefur verið í umræðunni upp á síðkastið. Óski sá einstaklingur eftir að leita sér meðferðar hjá sál- fræðingi vegna sjúkdóms síns þarf hann að greiða fyrir meðferðina fullu verði þar sem ekki hefur verið gerður þjónustusamningur milli Sálfræðingafélags Íslands og Tryggingarstofnunar ríkisins. Tryggingarstofnunin hefur þó gert samninga um niðurgreiðslu þjón- ustu ýmissa annarra heilbrigðis- stétta. Árangur viðtalsmeðferðar Sálfræðileg viðtalsmeðferð hef- ur fyrir löngu sannað gildi sitt. Sýnt hefur verið að árangur viðtalsmeð- ferðar er jafnmikill ef ekki betri en árangur annarra meðferðarforma. Lyfjameðferð er eitt meðferðar- úrræði fyrir þá sem eiga við þung- lyndi að stríða. Flestir eru sammála um að lyfjameðferð ein og sér sé sjaldnast varanleg lausn á þung- lyndi auk þess sem verkun geð- deyfðarlyfja hafa ekki alltaf tilætl- uð áhrif. Í mörgum tilvikum er lyfjameðferð óumflýjanleg en hef- ur reynst árangursríkust sé henni beitt samhliða viðtalsmeðferð þar sem áhersla er lögð á kennslu sjálfs- hjálparaðferða. Þegar velja á bestu mögulegu meðferð við þunglyndi þarf að huga að eftirfarandi: 1. Að meðferðin sé sniðin að per- sónuleika einstaklingsins, þörf- um hans og væntingum. 2. Að meðferðin hafi ekki meira inngrip í daglegt líf manneskj- unnar en nauðsynlegt er. 3. Að meðferðin veiti einstaklingn- um aukið innsæi í sjúkdóm sinn og hjálpi honum að öðlast aukna færni í að takast sjálfur á við sjúkdómseinkennin. Sálfræðimeðferð, með eða án lyfjameðferðar er allt þetta þrennt. Val á meðferð Við val á meðferð fyrir þá sem eiga við þunglyndi að stríða er því rökrétt að spyrja hvort ekki ætti fyrst að reyna sálfræðilega viðtals- meðferð til að bæta líðan einstak- lingsins áður en reynd er meðferð sem jafnvel hefur meira inngrip í líf hans. Til þess að einstaklingurinn geti valið sálfræðimeðferð sem fyrsta kost til að ná betri líðan án til- lits til fjárhagslegrar afkomu þarf heilbrigðisráðherra að beita sér fyr- ir því að koma á þjónustusamningi milli Sálfræðingafélags Íslands og Tryggingarstofnunar ríkisins. ■ Umræðan BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON ■ skrifar um Lána- sjóð íslenskra námsmanna. Umræðan KOLBRÚN BALDURS- DÓTTIR ■ skrifar um sál- fræðimeðferð við þunglyndi. Róttækar breyt- ingar á LÍN Mínus rokkar UMRÆÐAN MÍNUS Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri eru ánægðir með hljómsveitina. Andsvar JÓN INGI BENEDIKTSSON ■ svarar grein Guð- mundar Andra Thors- sonar frá því 1. mars þar sem hann spyr sig hvort hann eigi heima í Hlælandi. Öryggishlutverk Ríkisútvarpsins

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.