Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2004, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 05.03.2004, Qupperneq 39
39FÖSTUDAGUR 5. mars 2004 Pondus eftir Frode Øverli SMS um nýjustu plöturnar Frumsýning á nýrri útgáfu af besta síma í heimi Sony EricssonT630 er ný og endurbætt útgáfa af T610 sem var valin besti farsími í heimi á GSM ráðstefnunni í Cannes 2004. Sony Ericsson T630 fer í sölu hjá okkur í dag föstudag 5. mars 2004 klukkan 10. You make it a SonyKringlunni 588 7669 www.sonycenter.is FERGIE Söngkonan Tracy „Fergie“ Ferguson úr bandarísku hip-hopsveitinni Black Eyed Peas á sviði. Myndin var tekin á miðviku- dag er sveitin hélt stærðarinnar tónleika í Brixton Academy í London fyrir fullu húsi. Noise - Pretty Ugly „Fyrir utan það að ekkert kemur á óvart á plötunni er það truflandi hver- su mikið vantar upp á sönginn og hljómar hann á köflum eins og léleg eftirlíking frábærrar raddar Kurts Cobain. Sterkasti hlekkur Pretty Ugly er vel útfærð gítarsólóin, meðal ann- ars í fyrstu þremur lögunum og Freeloader. Annars er fátt sem gleður eyrun, því miður.“ FB Ilya - They Died for Beauty „Pottþétt tónlist fyrir kvikmyndir, leik- og kaffihús. Hér eru nokkrar perlur og tónlistin framkallar afbragðs kvik- myndasenur í höfði manns. Senurnar eru flestar stórfenglegar og dreymandi en inni á milli eiga leikararnir það til að ofleika, og míkraófónninn kemur einu sinni inn í rammann.“ BÖS Courtney Love - America’s Sweetheart „Sama hversu duglegur ég yrði að finna jákvæða punkta á þessari plötu myndi það ekki breyta þeirri stað- reynd að mér fannst hún hundleiðin- leg. Óspennandi hljómur, óspennandi lög og Love hljómar full sjálfsvorkunn- ar og gremju. Ég held bara að hún eigi of mikið af peningum, hún kemst upp með það að þurfa ekki að hlusta á neinn og góð ráð ná þannig ekki eyrum hennar. Hún er á villigötum. Beint á útsöluna!“ BÖS Joss Stone - The Soul Sessions „Þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára hafa hæfileikar hennar laðað að sér hóp fag- manna og hér nýtur hún m.a. aðstoðar Angie Stone og liðsmanna hiphop- sveitarinnar The Roots, sem aðstoða við útsetningar. Öll platan er hrein sálar- sveifla og hljómar eins og hún sé hljóð- rituð á áttunda áratugnum. Röddin gerir plötuna, og hún er það stórkostleg að það er ekki hægt að kalla þetta annað en stórkostlega frumraun.“ BÖS Norah Jones - Feels Like Home „Noruh virðist líða vel í sveita- söngvadjass sínum og aðdáendum hennar á eflaust áfram eftir að líða vel með henni. Eins og fyrri platan er þessi álíka jafn ólíkleg til þess að ganga fram af nokkrum manni. Hún á því eflaust eftir að vera jafn lengi á repeat fyrir þá sem bíða á hold í símakerfi Norðurljósa og fyrri platan var.“ BÖS Það er eitt- hvað blíst- urshljóð í vélinni! Æ, æ, æ! Þetta er svokallað „Roger Whittaker-heil- kenni“! Það er vandræðaástand, skal ég segja þér... Dýrt? Mjaaa... þetta er auð- vitað þumbasláttur í olíurennutvíbreytinum og marglytturyðgun, þannig að við höfum það fimmtíu þúsund... bara fyrir þig! Fimmtíu þúsund? Þú ert algjört marmilaði! Ég er farinn annað! Eins og þú vilt! Blísturshljóð? Þá er náttúrlega beygju- glennan að hnoðast í kergjufælinum og inn- takssúrsunin klasnast fyrir vikið... vont mál! Bílaverks tæði Reimars Bób ó Knas tás

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.